Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 61
61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Flær undir jökli
elstu tegundir Íslands
Inngangur
Fundur tveggja tegunda grunn-
vatns marflóa á Íslandi um síðustu
aldamót er án efa ein merkilegustu
tíð indi í rannsóknum á lífríki
Íslands. Sá sem fyrstur fann flærnar,
Bjarni K. Kristjánsson, prófessor
við Háskólann á Hólum og
Jörundur Svavars son, prófessor
í sjávar líffræði við Háskóla
Íslands, lýstu tegundunum út frá
útlitseiginleikum og sýndu fram á
að um áður óþekkt ar tegundir er að
ræða.1 Önnur tegundin, Crangonyx
islandi c us, tilheyrir algengri
undirætt grunn vatns marflóa, hinni,
Crymosty gious thingvallensis, hefur
verið lýst sem nýrri undirætt
marflóa (1. mynd). C. islandicus
hefur fundist víða í uppsprettum
á eldvirkum svæðum á Íslandi,
en C. thingvallensis er sjaldgæf og
hefur, auk þess að hafa fundist
í lind í Þingvallavatni, fundist í
maga úr dvergbleikju sem veiddist
í Herðubreiðarlindum.
Fundur þessara tegunda vakti
upp spurningar. Hvernig bárust
teg undirnar til Íslands og hvaðan
komu þær? Grunnvatnsmarflærnar
eru að lagaðar að grunnvatni og hafa
tak markaða dreifigetu þannig að
ólík legt er að þær hafi náð að berast
hing að frá öðrum svæðum yfir
Atlants hafið og þær þekkjast ekki
jafn norðarlega nema á svæðum
sem voru íslaus á kuldaskeiðum
ísaldar eins og í austurhluta Síberíu.
Gætu tegundirnar jafnvel hafa lifað
af kuldaskeiðin allt frá fyrstu tíð
landsins (um 24–40 milljónir ára)
eða frá því að landbrú milli Græn-
lands og Ísland rofnaði? Ekki eru
þekkt nein dæmi þess að slík dýr
hafi lifað af hérlendis á kulda-
skeiðum ísaldar eða undir jökli á
landi. Hugsanlegt er að eldvirkni
Íslands hafi skapað þeim búsvæði
hér, í grunnvatni í sprung um og í
hraunum þar sem þær hafa þrifist
um milljónir ára, jafnvel allt frá því
að forveri Íslands aðgreindist frá
Grænlandi. Hverjir eru nánustu
ætt ingjar þessara tegunda?
Til að svara þessum spurningum
ákvað undirritaður, sem stýrði
verk efninu í samvinnu við Jörund
og Bjarna, að hefja rannsókn á
stofn erfðafræði og flokkun íslensku
Greinin segir frá niðurstöðum nýlegra rannsókna á erfðafræðilegum
samanburði á grunnvatnsmarflóategundunum Crangonyx islandicus og
Crymostygius thingvallensis sem nýlega fundust á Íslandi. Athugað var í
fyrsta lagi breytileiki innan C. islandicus m.t.t. landfræðilegrar dreifingar
sýnatökustaða og hæðar yfir sjávarmáli. Í ljós kom að tegundin hefur
aðgreinst í erfðafræðilega ólíka hópa innan Íslands á síðustu fimm
milljónum ára og því lifað af kuldaskeið ísaldar hér á landi ólíkt öðrum
tegundum. Í öðru lagi kom í ljós að sameindaupplýsingar studdu fyrri
flokkunargreiningar, bæði víkur C. thingvallensis sem skilgreinir nýja ætt
sig vel frá öðrum ættum og tegundin C. islandicus er skyldust norður
amerískum tegundum. Athugun á flokkun C. islandicus og tegunda innan
sömu ættar bendir hinsvegar til að þörf sé á að endurskoða flokkun
tegunda til ættkvísla innan ættarinnar Crangonyctidae.
1. mynd. Smásjármyndir af íslensku grunnvatnsmarflónum; Crymostygius thingvall-
ensis til vinstri, Crangonyx islandicus til hægri. – The Icelandic groundwater amphi-
pods, left Crymostygius thingvallensis, right Crangonyx islandicus. Ljósm./Photos:
Þorkell Heiðarsson / Snæbjörn Pálsson.
Snæbjörn Pálsson
Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 61–64, 2013
Ritrýnd grein