Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 63
63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
breytileika en greindist innar í landi
nálægt Lakagígum, sýni frá Sandi
í Aðaldal með minni breytileika
en sýni frá Herðubreið og sýni frá
Hrauni í Ölfusi með minni breyti-
leika en í Þingvallavatni. Þá var
breyti leiki einnig tengdur hæð yfir
sjávarmáli, svæði neðan við 100 m,
sjávarstöðu við lok síðustu ísaldar
og því óbyggileg fyrir flærnar, voru
með minni breytileika.
Athugun á erfðaefni tegundanna
og samanburður við skyldar teg-
und ir staðfesti fyrri flokkun á útliti.
C. islandicus er ný tegund og sýnir
meiri skyldleika við norður-amer-
ískar tegundir en evrópskar3 (4.
mynd). Sérstaða C. thingvallensis
sem nýrrar ættar er studd en enn
vantar sýni til samanburðar af
öðrum ættum innan yfirættar þess-
ara ætta. Töluvert ósamræmi kom
í ljós við samanburð á ættartrjám
byggð um á DNA og útlitseigin-
leikum.3,4 Teg und ir úr ólíkum ætt-
kvíslum hópast saman og ljóst er að
þörf er á meiri vinnu til að yfirfara
þessa flokkun. Vegna aðlagana að
3. mynd. Ættartré hvatberaarfgerða Crangonyx islandicus. Tréið er byggt á Bayesískri
aðferð við greiningar á DNA-röð COI og 16S RNA.2 Greinamót endur spegla sameiginlega
forfeður gerða sem koma frá ólíkum landsvæðum (sjá 2. mynd). Tölur við greinamótin sýna
tíma í milljónum ára. Skyggðir punktar á greinamótunum endurspegla áreiðanleika aðgrein-
ingarinnar sem hlutfall af einum (eftir á líkur). Skalinn vísar til 0,5 basabreytinga fyrir hverja
100 basa. – Mitochondrial phylogeny of Crangonyx islandicus. The tree is based on a
Bayesian analysis of the COI and 16S RNA genes.2 Nodes respond to common ancestors
of different types found in different geographic regions (see figure 2). Nodelabels present
times in million years, as also shown by a separate scale. Shading of dots at the nodes
present the reliability of the clustering in proportion of 1 (posterior probabilities).
4. mynd. Ættartré tegunda úr þremur ættum grunnvatnsmarflóa: Crangonyctidae, Crymostygidae og Niphargidae. Tréin eru byggð á
Bayesískri aðferð við greiningar á 18S (a) og 28S (b) ríbósómal-genum.3 Tölur við greinamótin sýna tíma í milljónum ára. Skyggðir
punktar á greinamótunum endurspegla áreiðanleika aðgreiningarinnar sem hlutfall af einum (eftir á líkur). Stjörnur og kassar vísa til
uppruna tegundanna í gamla (Evrópu og Asíu) og nýja heiminum (N-Ameríku). – Phylogeny of three families of groundwater amphipods:
Crangonyctidae, Crymostygidae and Niphargidae. The trees are based on a Bayesian analysis of the 18S (a) and 28S (b) ribosomal-genes.3
Nodelabels present times in million years. Shading of dots at the nodes present the reliability of the clustering in proportion of 1 (posterior
probabilities). Symbols refer to geographic origin, stars to Europe and Asia and filled squares to N-America.