Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 68

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 68
Náttúrufræðingurinn 68 Upplýsingar um þyngdir pysja eftir að þær hafa yfirgefið holur sínar eru tiltækar frá árinu 1996, en þá hóf Gísli J. Óskarsson að vigta pysjur. Frá árinu 2003 hafa pysjur verið vigtaðar í Pysjueftirlitinu. Sam - hliða þessum athugunum hefur verið fylgst með afdrifum árganga lunda frá tímabilinu 1996–2004 með því að kanna hve hátt hlutfall þeirra hefur verið endurheimt í háfaveiði fyrstu fimm ár ævinnar. Endur heimtuhlutfallið var síðan borið saman við meðalþyngd pysja í árgang inum. Jafnframt því sem fylgst var með varpinu sumarið 2008 var athugað hvenær lundar byrjuðu að bera fæðu í pysjur sínar. Stundum misstu fuglarnir fæðuna og voru þá nýleg fæðusýni tínd í lunda- byggðunum. Fæðan var fryst eins fljótt og verða mátti en seinna þýdd upp á rann sóknastofu og greind til tegunda eða fæðuhóps. Í þeim tilfellum þar sem fleiri en ein tegund var í sýninu var mikilvægi fæðutegunda ákvarð að út frá hlutfallslegri votvigt. Alls voru 283 eintök greind til fæðu hóps (samtals 201 g), en þessi gögn veita einungis vísbendingar um breytingar á milli tímabila en leyfa ekki tölfræðilegan samanburð. Aðferðir við öflun upplýsinga um fæðu fullorðinna lunda voru þær sömu og voru notaðar 1994 og 1995.7,8 Magasýnum var safnað tvisvar á hverju sumri, fyrst þegar fuglar voru líklega á eggjum í seinni hluta júní og aftur þegar pysjur höfðu líklega klakist í lok júlí eða byrjun ágúst. Aðferðin byggist á því að finna varpfugl í æti á sjó, skjóta fugla og taka magasýni, en ekki er hægt að taka sýni í byggðunum því þar eru magar lunda yfirleitt tómir.29 Lundar þurfa að fljúga reglulega á milli varpbyggða sinna og fæðu- svæða á sjó. Athugunin hófst á því að finna út hvert flestir fuglarnir flugu og síðan var þeirri flugstefnu fylgt á litlum bátum, þar til lundar fundust í æti. Staðsetning fæðu- slóð ar var skráð og fuglarnir krufðir og meltingarvegir fjarlægðir og sett ir í geymsluvökva (ísóprópanól). Fæðan var síðan greind til tegunda á rannsóknastofu og aldur fiska ákvarð aður út frá kvörnum eða lengd. Einnig voru tekin saman gögn sem aflað var um helstu fæðusvæði lunda við Vestmannaeyjar á árunum 1994 og 19957,8 og þau borin saman við þau svæði sem fundist hafa í þessu verkefni. Sandsíli Sandsíli hafa verið veidd árlega frá 2006 á fjórum svæðum við land ið sunnan- og vestanvert sem öll eru þekkt fyrir að hafa í gegnum tíðina geymt mikið af sandsíli. Svæðin eru Breiðafjörður, Faxaflói, frá Vest- manna eyjum austur að Vík í Mýrdal, og út af Ingólfshöfða (3. mynd). Við sílisveiðar var notuð seiða- flot varpa og er togað bæði uppi í sjó og niður við botn. Toglengd var ein til tvær sjómílur og togað var á tveggja sjómílna hraða. Auk trolls var notast við plóg við sýnatöku á sandsíli (4. mynd). Plógur er hent- ugur til sýnatöku þegar sílið er grafið í botninn og ekki aðgengilegt í troll og voru þau gögn notuð til að fá vísitölu á þéttleika sandsílis á ein stökum svæðum. Í fyrstu var not aður lítill og handhægur kúf- skelja plógur með smágerðu neti sem var dreginn um 0,3 sjómílu í hvert skipti. Á slíkum plógum vísa tennur fram og niður þar sem ætlun in er að tennurnar fangi skeljar sem eru grafnar niður í botninn. Lítil möskvastærð í plógnum olli því að plógurinn fylltist stundum af seti. Því var hannaður annar plógur þar sem tennurnar vísa aftur. Hug- mynd in byggir á því að nægilegt sé að rispa yfirborð botnsins með 4. mynd. Teikningar af plógunum sem voru notaðir. A) Plógur fyrir kúfskel Arctica islandica og B) Sandsílaplógur þar sem tennurnar vísa aftur. Plógarnir eru 65 cm breiðir og möskvastærð í neti er 7 mm. – Dredges used for catching sandeel buried in the bottom sedi- ment. A) A dredge conventionally used in fishing for ocean quahogs Arctica islandica. B) A modified sandeel version with the teeth pointed backwards to minimize the amount of sediment caught. The dredges are 65 cm wide with a mesh size of 7 mm. Ár – Year Dagsetning – Date (dd.mm) Vestmannaeyjar – Vík Önnur svæði – Other areas Fjöldi stöðva – No. of stations Mælingar – Measurements Fjöldi stöðva – No. of stations Mælingar – Measurements Alls – Total Með síli – With sandeels Aldursgreint – Aged Alls – Total Með síli – With sandeels Aldursgreint – Aged 2006 03.07.–18.07. 31 8 20 38 25 755 2007 10.07.–21.07. 18 9 22 56 38 601 2008 08.07.–20.07. 53 43 531 88 67 1.182 2009 06.07.–17.07. 60 52 572 80 60 879 2010 05.07.–15.07. 67 39 302 84 58 929 2011 04.07.–13.07. 50 22 66 87 42 611 2012 03.07.–12.07. 50 23 62 90 49 963 2. tafla. Umfang gagnaöflunar vegna rannsókna á sandsíli 2006–2012. Tímasetning leiðangra, fjöldi stöðva og fjöldi mældra fiska. – An overview of data collected on Sandeels 2006–2012. Dates of research cruises, number of stations and number of fish measured.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.