Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 75

Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 75
75 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags lítill sem benti til að nýliðun úr árgangi 2005 væri slök. Sumarið 2008 styrkt ist þessi niðurstaða því lítið veiddist af þriggja ára fugli, auk þess sem sáralítið veiddist af tveggja ára fugl um af 2006 árganginum. Það sumar vantaði því í veiðina tvo árganga sem oftast eru uppistaðan í veiðinni. Frá og með sumrinu 2008 hefur lítið veiðst af tveggja ára lundum. Árin 2010 og 2011 var um þriðjungur lundaveiðinnar þriggja ára fuglar og þar virðist sem fuglar af árgöngum 2007 og 2008 geri vart við sig. Þessum niðurstöðum ber þó að taka með ákveðnum fyrirvara því lundaveiði var lítil. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna árgangarnir frá 2007 og 2008 skila sér fyrst sem þriggja ára, en hugsanlega hefur lít- ið fæðuframboð við Vestmanna eyjar haldið tveggja ára fuglum frá. Ef veiði á lundum í Vestmannaeyjum á að byggjast að mestu á geldum ungfuglum, eins og hefð er fyrir, þá verður nýliðun í lundastofninn að vera góð í nokkur ár. Varptilraunir lunda í Vestmanna- eyjum frá 2007 til 2012 hafa verið á bilinu frá 23–74% en fjögur sumur hefur varp hafist í 51–66% þeirra hola sem tiltækar eru. Þessi hlutföll eru lág í samanburði við Bretlands- eyjar þar sem ábúðarhlutfall er 70–80% í hefðbundnu árferði. Eðli- legt er að varp lunda í Vestmanna- eyjum sé borið saman við rannsóknir á Bretlandi þar sem athuganir hafa staðið yfir áratugum saman.30 Ein- ung is árið 2010 var ábúð í Vest- manna eyjum sambærileg við það sem gerist á Bretlandi og þá var ábúðin einnig jöfn meðaltali lunda- varpa norðanlands.26 Sumarið 2011 mældist ábúðarhlutfallið lægst. Varpárangur, sem er mælikvarði á afdrif þeirra afkvæma sem stofnað var til, hefur legið á bilinu frá því að vera enginn upp í um 37% sumarið 2012. Algengt hlutfall varpárangurs á Bretlandseyjum er 57%.30,31,32 Fjöldi pysja sem komst á legg, eða viðkoma, hefur verið frá engum pysjum upp í 22% sumarið 2007. Á Bretlandseyjum hefur viðkoma gjarnan verið 43%.30,31,32 Í ljósi þess hve illa hefur gengið hjá verpandi lundum í Vestmannaeyjum árin 2007–2012 verður að álykta að stofn lunda þar fari minnkandi. Tilhneiging virðist vera fyrir því að lífslíkur þyngri pysja séu meiri en þeirra léttari. Vænta má þess að frekari rannsóknir á pysjum og afdrifum þeirra varpi skýrara ljósi á þetta atriði. Aukin þyngd pysja getur haft jákvæð áhrif á lífslíkur þeirra á að minnsta kosti tvennan hátt. Í fyrsta lagi getur mikil þyngd pysja gefið vísbendingar um gott ástand í lífríki hafsins þannig að þegar pysjurnar leita til sjávar er þar gnótt fæðu og auðvelt að afla hennar. Í öðru lagi gætu þungar pysjur haft meiri fituforða en léttar. Fita gegnir hlutverki varaforða hjá mörgum fuglategundum og meiri forði gefur því að öðru óbreyttu lengri tíma fyrir pysjur til að finna heppilega fæðu þegar út á sjó er komið. Fæða fullorðinna lunda við Vest- mannaeyjar er í samræmi við fyrri athuganir þar sem aðalfæðan var sandsíli.7,8 Helstu undantekn ing ar frá því voru þegar lundar átu mar- flær og ljósátu suður af landgrunninu. Einnig vekur það athygli að finna trönusíli í lundum, en sú tegund hlýtur að vera í það stærsta fyrir fuglinn. Áður hefur verið sýnt fram á að sandsíli er trúlega helsta fæða lunda við Ísland,7,8 og það er einnig mikilvæg fæða lunda víða annars staðar svo sem við Bretlandseyjar.29 Í nokkrum tilfellum í þessari rannsókn hafa lundar úr Vest- manna eyjum fundist étandi innan fæðuöflunarsvæðis þeirra frá árun um 1994 og 1995.7,8 Í öðrum tilvikum hafa lundar þurft að sækja fæðuna lengra og skýring á því er líklega sú að fuglarnir hafi ekki fundið hentuga fæðu nálægt varp- inu. Lengstu ferðir lunda úr varpi til fæðuöflunar í þessari rannsókn voru tæplega 120 km flug að Grinda vík og um 75 km flug í suðvestur frá Vestmannaeyjum. Fyrir lunda, eins og aðrar tegundir af ætt svartfugla, er flug orkufrekt og kostnaðarsamt. Því borgar það sig ekki fyrir fuglana að sækja fæðuna of langt eða eyða of miklum tíma í að afla hennar. Senni lega er hér kominn hluti skýr- ingarinnar á því hve illa hefur gengið í varpi lunda undanfarin ár. Ekki er mögulegt að tiltaka nákvæm- lega hvar mörkin liggja í fjarlægð frá vörpum þar sem kostnaður og ávinningur er jafn.33 Það er þó líklega talsvert breytilegt og fer að mestu eftir því hve orkurík fæðan er eða þéttleiki hennar mikill á fæðu slóð. Lengstu ferðir lunda til fæðu öflunar sem vitað er um eru frá Noregi þar sem lundar sóttu 137 km á haf út til að afla fæðu. Ólíklegt er að það hafi svaraði kostnaði því varp lunda gekk þá mjög illa.34 Undanfarin ár, á sama tíma og varp lunda hefur verið lélegt í Vest- mannaeyjum, hefur sandsíli nær alveg skort í grennd við eyjarnar 16. mynd. Lundi með sandsíli. – Atlantic puffin with sandeels. Ljósm./Photo: Jóhann Óli Hilmarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.