Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 96

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 96
Náttúrufræðingurinn 96 gos sprungan næði upp í jökul og gæti þá skapað hættu á jökulhlaupi. Rým ingaráætlun var hrint í fram- kvæmd svo 300–400 manns þurftu að yfirgefa heimili sín í snatri. Næsta dag var ljóst að gosið var á auðu landi í um 1.000 m hæð norðan vatna skila og virtist hættulítið. Fólk gat því snúið heim þá um kvöldið. Þetta var fremur lítið og rólyndislegt gos, túristagos af bestu gerð nema hvað árstíminn var ekki réttur. Þrátt fyrir það var mikil umferð við gos stöðvarnar og ferðamenn, frétta menn og vísindamenn komu hvaðan æva að. Gígar hlóðust upp og gló andi kvikustrókar náðu í 100–150 m hæð. Hraunið var úr basalti, úfið og seigfljótandi og hneig hægt til að byrja með um hallalítið land við gos stöðvarnar. Það stefndi til norð urs í átt að Þórsmörk en féll síðan í háum hraunfossum niður í Hrunagil og Hvannárgil. Að kvöldi 31. mars opnaðist ný gossprunga vestan við þá fyrri og gusu þær báðar í nokkra daga. Smám saman dró úr gosinu og hinn 13. apríl var það yfirstaðið. Hraunið teygði sig þá niður undir jafnsléttu norðan við Fimmvörðu háls og var um 1,5 km2 að flatarmáli. Aðalgígar gossins fengu nöfnin Magni og Móði en hraunið kallast Goðahraun. Gosið í Eyjafjallajökli Þótt eldgosið á Fimmvörðuhálsi hjaðn aði og kulnaði loks út varð ekk ert lát á skjálftavirkni undir Eyja fjallajökli enda dró nú til meiri tíðinda. Klukkan 01.15 aðfararnótt 14. apríl hófst eldgos í háfjallinu. Gosmökkur reis hratt í 6 km hæð og síðan í allt að 10 km og öskufall hófst. Eyjafjallajökull er 1.667 m hár með stóran jökulfylltan toppgíg og skriðjökul, Gígjökul, sem hnígur um skarð í gígveggnum til norðurs og endar í lóni niður undir Markar- fljótsaurum. Mönnum var þegar í stað ljóst að jökulhlaup væri yfir- vof andi. Rýming hófst og 700–800 manns urðu að hraða sér að heiman og á öruggari stað. Bændur urðu að skilja búsmala sinn eftir heima sem fáum þótti skemmtilegt. Hringveg- inum var lokað og vegagerðarmenn gerðu skörð í hann við Markar fljóts- brú. Fyrsta jökulhlaupið kom niður Gígjökul þegar um morguninn og náði hámarki við jökulsporðinn um hádegisbil. Kolgrár flaumurinn bylt- ist yfir Gígjökulslón og fyllti það af framburði og flæddi svo út á Markarfljótsaura. Klukkutíma síðar var hlaupið í hámarki við Markar- fljótsbrú. Brúin stóð hlaupið af sér m.a. vegna þeirra ráðstafana sem grip ið hafði verið til. Vatna mælinga- menn Veðurstofunnar töldu að vatns magnið hefði verið 2.700 m3 á sekúndu. Hlaupið olli ein hverju tjóni á ræktarlandi og gróðri en ekki miklu. Annað jökul hlaup, af völdum skammvinnra umbrota í suðurhlíð jökulsins, fór til suðurs og kom niður Svaðbælisá skammt aust an Þorvaldseyrar og bar með sér mikinn aur. Gosið færð ist í aukana fram eftir fyrsta gosdeg inum og síðdegis þann dag kom annað hlaup niður Gígjökul nokkru minna en hið fyrsta. Daginn eftir kom svo þriðja hlaupið niður Gígjökul og var það sínu mest. Í öll skiptin var rýming sett í gang svo fólk var mjög á faraldsfæti þessa daga. Fyrstu dagana meðan bræðslu- vatn streymdi stöðugt inn að gosrás- unum var mikil sprengivirkni og kvikan sundraðist í fíngerða ösku sem barst allt að 10 km í loft upp og dreifðist yfir land og haf og barst langt suður og austur yfir meginland Evrópu. Þann 18. apríl minnkaði sprengivirkni og gjóskuframleiðsla og hraun tók að flæða frá gígnum. Þetta var seigfljótandi andesíthraun. Hraunrennslinu lauk 4. maí en eftir það var allnokkur sprengivirkni og oft talsvert gjóskufall í nærsveitum fjallsins, síðan tók að draga verulega af gosinu uns samfelldri gosvirkni lauk að kvöldi 22. maí. Bændur höfðu verulegar áhyggj- ur af skepnum sínum og ekki síður 2. mynd. Gos í Eyjafjallajökli 17. 4. 2010. Myndin nefnist Eldhestur. Ljósm./Photo: Martin Gasser.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.