Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 97
97
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
gróðri vegna gjóskunnar. Reynsla
aldanna hefur kennt þeim að
gjóskufall að vori er afdrifaríkara
en á öðrum árstímum. Það var
líka auðn arlegt að horfa yfir tún
og ræktarlönd undir Eyjafjöllum
á þessu vori. Allt var svart yfir að
líta og hvergi stingandi strá að því
er virtist. Hins vegar stóðu bæði
gróð ur og dýr þetta áfall furðu vel
af sér. Grasið óx upp úr öskunni
svo þegar leið á sumarið var erfitt
að ímynda sér að hvernig umhorfs
hafði verið um vorið. Ferða þjón-
ustufólki var líka mjög brugðið.
Gosið í Eyjafjallajökli var ekki
túrista gos þvert á móti virtist það
ætla að umturna öllum ferða manna-
iðnaðinum. Þótt það væri hvorki
til takanlega mikið né langvinnt olli
það miklu meiri truflunum á flug-
sam göngum en nokkurn hefði órað
fyrir að óreyndu. Askan, sem var
óvenju fíngerð og barst því víða,
var talin geta eyðilagt þotuhreyfla
jafn vel þótt lítið væri af henni í
loftinu. Því var sett á flugbann sem
tók yfir mikið svæði um austanvert
Norður Atlantshaf og teygði sig yfir
Skandi n av íu og Bretlandseyjar og
jafnvel lengra. Þetta bann stóð yfir
dagana 15.–21. apríl. Flugfélög urðu
fyrir tjóni, öngþveiti skapaðist í
flug stöðv um og farþegar fyrir veru-
leg um óþægindum. Eyjafjallajökull
fékk á sig illt orð um heimsbyggðina
og Ísland með og mátti vart við því
í miðri Ice-Save deilunni. „Send
cash not ash“ sögðu Bretar sárreiðir.
Ferðafólk afpantaði ferðir, gistingu
og aðra þjónustu í hópum og hætti
við að koma til Íslands. Hrun virtist
blasa við. Ferðamannastraumurinn
glæddist þó fljótt og er leið að árs-
lok um var ljóst að orðstýr Eyja-
fjalla jökuls var farinn að verka með
örf andi hætti á ferðamanna straum-
inn.
Skriðuföll og snjóflóð
Að sögn Halldórs G. Péturssonar
jarð fræðings á Akureyrarsetri Nátt-
úru fræðistofnunar er ekki hægt að
segja annað en árið 2010 hafi verið
með rólegasta móti hvað snert ir
skriðuföll. Fyrstu mánuði ársins
urðu nokkur stök grjót hruns tilvik
á vegakerfi landsins en í lok mars
varð töluvert grjóthrun úr Svínahlíð
við Þingvallavatn. Litlu munaði að
tjón yrði á sumarhúsum sem standa
þar neðan við hlíðina en trjágróður,
girðingar og bátaskýli skemmdust.
Um miðjan apríl gerði skarpa leys-
ingu norðvestanlands með sunnan
hvassviðri, hlýindum og talsverðri
rigningu ofan í nýsnævi. Í kjölfarið
féllu nokkrar skriður í Húnavatns-
sýsl um, aðal lega í Langadal, Svart-
ár dal og Vatns skarði, sem ollu
minni háttar gróður skemmdum.
Þann 11. maí varð mikil ásýndar-
breyt ing á Bjarn ar ey í Vestmanna-
eyjum, þegar allt að þúsund tonna
fylla hrundi úr 120 m háum sjávar-
hömrum svo grjótfjara myndaðist,
þar sem áður var 15–20 m dýpi
undir klettum. Í lok maí féll, í kjöl far
leysinga og mikillar rigningar, stór
skriða á Uxa hryggjar veg í Lunda-
reykjadal í Borgarfirði. Fyrstu viku
júlí var leiðinda tíðarfar víða um
land með hvassviðri og mikilli
rigningu á austanverðu landinu.
Skriðuföll urðu í kjölfarið út með
sunnan verðum Seyðisfirði og á
Búlandsdal við Djúpavog féll stór
skriða. Sú olli talsverðu tjóni á
vatns veitu Djúpa vogshrepps. Seint
í ágúst féllu skriðuspýjur víða á
Miðnorðurlandi í kjölfar mikillar
rign ingar og sama gerðist um
miðj an september í Jökulsárhlíð. Í
desember var lítilsháttar grjóthrun
á þjóðvegi lands ins, aðallega á Vest-
fjörðum þar sem tjón varð á bifreið
í eitt skiptið.
Verarmánuðir ársins voru snjó-
léttir. Í ofanflóðagagnasafn Veður-
stofu Íslands eru skráð fjölmörg
snjóflóð en flest voru þau smá í
snið um. Ekkert manntjón varð en
nokkr um sinnum skall hurð nærri
hælum. Aldrei þurfti að grípa til
rýminga vegna snjóflóðahættu en
nokkrum sinnum voru gefnar út
viðvaranir til ferðafólks, aðallega
um mánaðarmótin mars og apríl.
Lítið sem ekkert fjárhagslegt tjón
varð fyrir utan kostnað af flóðum
sem féllu yfir vegi. Eitt flóð olli tjóni
á lyftumannvirki skíðasvæðisins á
Siglufirði.
Jöklar og jökulhlaup
Sporðamælingar á jöklum sýna
alstaðar hörfun nema á einum stað.
Þetta er í samræmi við það sem
vænta mátti miðað við tíðarfarið.
Heimildirnar eru úr skýrslu Odds
Sigurðssonar jarðfræðing í Frétta-
bréfi Jöklarannsóknarfélags ins.
Sum ar ið var með alhlýjasta móti
3. mynd. Gjóskufall á Þorvaldseyri 24. 4. 2010. Ljósm./Photo: Ingibjörg Kaldal.