Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 101

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 101
101 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Fundir stjórnar Á aðalfundi HÍN, sem haldinn var 26. febrúar 2011, var útrunnið tveggja ára kjörtímabil þeirra Esterar Ýrar Jónsdóttur, Estherar Ruthar Guðmunds dóttur og Hilmars J. Malmquists. Þau gáfu öll kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og hlutu til þess kosningu. Frá síðasta aðalfundi hefur stjórn haldið níu venjubundna stjórnar- fundi. Flestir þeirra voru haldnir í húsakynnum Náttúruminjasafns Íslands í Loftskeytastöðinni gömlu við Suðurgötu. Á fyrsta fundi skipti stjórnin með sér verkum, öðrum en formannsstarfinu en formaður var kosinn til tveggja ára á aðalfundinum 2010. Engar breytingar voru gerðar á hlutverkaskipan: Árni Hjartarson formaður, Esther Ruth Guðmunds- dóttir varaformaður, Hilmar Malm- quist ritari, Kristinn Albertsson gjald- keri, Ester Ýr Jónsdóttir fræðslu- stjóri, Jóhann Þórsson félags vörður, Rannveig Guicharnaud með - stjórnandi. Rannveig fékk síðan góða stöðu suður á Ítalíu og hvarf af landi brott sl. haust en þar sem engir varamenn eru í stjórn félagsins var enginn til að fylla hennar skarð. Maífundur félagsins var haldinn í húsi Náttúrufræðistofnunar á Urriða holti og skjalasafn félagsins skoðað. Félagsmenn Fjöldi félagsmanna nú er samkvæmt félagatali 1.296. Í fyrra voru félags- menn 1.314 skv. gögnum félags- varð ar. Í félagið gengu 26. Alls hættu 44 þar af dóu 3. Á meðal þeirra sem létust var einn heiðurs félagi, Einar B. Pálsson, verkfræð ingur. Hann gerðist félagi í HÍN árið 1944 og var kjörinn heiðursfélagi 1991. Fækkun félagsmanna í HÍN á starfsárinu er því 18 manns. Þótt fækkun hafi orðið á árinu þá eru félagarnir samt 60 fleiri en um aldamótin. Fræðsluerindin Fræðslufundirnir voru haldnir í stofu 132 í Öskju. Reglan er sú að þeir eru haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar á tímabilinu septem- ber til maí að desember undan- skild um. Frá síðasta aðalfundi hafa verið sjö fundir. Aprílfundurinn færð ist fram í maí vegna páska- helgarinnar. Febrúarfundurinn með erindi Páls Imsland, Að fara litum, um litbreytingaferli litföróttra hrossa, verður núna strax eftir helgi. Aðsókn á þessa fundi hefur verið allsæmi- Skýrsla stjórnar HÍN fyrir árið 2011 1. mynd. Stjórn HÍN 2011. Jóhann Þórsson félagsvörður, Kristinn Albertsson gjaldkeri, Árni Hjartarson formaður, Esther Ruth Guðmundsdóttir varaformaður, Hilmar Malmquist ritari og Ester Ýr Jónsdóttir fræðslustjóri. Á myndina vantar Rannveigu Guicharnaud. Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 101–104, 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.