Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 28

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 28
Náttúrufræðingurinn 28 Fæðu- og óðalsatferli ungra laxfiska í íslenskum ám INNGANGUR Skyldar lífverur hafa oft ámóta lifn- aðarhætti og nýta sambærilegar vistir.1,2 Þótt tegundir séu skyldar er þó iðulega blæbrigðamunur á aðlögun þeirra, og getur hann leitt til mismunar í búsvæðavali og út- breiðslu.2 Slíkur munur getur m.a. falist í útliti, lífeðlisfræðilegum þáttum og ekki síst atferli.2,3 Rann- sóknir á atferli geta því veitt nokkra innsýn í stofnvistfræði dýra og í það hvernig einstaklingar skyldra tegunda velja búsvæði, keppa um þau og deila þeim.4 Hérlendis lifa þrjár tegundir villtra laxfiska, bleikja (Salvelinus alpinus), urriði (Salmo trutta) og lax (Salmo salar) (1. mynd). Þær nýta sér fjölbreytt búsvæði í íslenskum ám, sem eru ólíkar að vatnshita, framleiðni og straumlagi. Þessir umhverfisþættir ráðast einkum af aldri og gegndræpi berggrunns- ins þar sem áin rennur, af gróðri á vatnasviði árinnar og af því hvort í ána rennur jökulvatn.5 Tegund- irnar þrjár gera ólíkar kröfur til þessara umhverfisþátta.6,7,8 Bleikjan velur lygnustu búsvæðin og hana er helst að finna í kaldari og nær- ingarsnauðari ám.6 Lax velur straumhörð búsvæði og er ríkjandi í hlýjustu og frjósömustu ánum,8 en urriðinn nýtir sér oft búsvæði og straumvötn sem liggja á milli hinna tegundanna tveggja hvað varðar þessa umhverfisþætti (2. mynd). Þrátt fyrir þessa almennu Fæðu- og óðalsatferli hefur mikil áhrif á þéttleika og útbreiðslu ungra laxfiska í ám. Til þessa hefur atferli íslenskra laxfiska og samspil þess við vistfræðilega þætti lítt verið rannsakað. Hér eru kynntar niðurstöður tveggja rannsókna um fæðuatferli (153 fiskar; bleikja, urriði og lax) og óð- alsatferli (61 fiskur; bleikja og urriði) vorgamalla (0+) laxfiska í íslenskum ám. Flestir fiskar leita úr kyrrstöðu að bráð sem berst með vatnsstraumnum en þó má finna talsverðan einstaklings-, stofna-, og tegundamun í hreyfan- leika við fæðuleit og óðalsatferli. Bleikja heldur sig í lygnasta vatninu og er hreyfanlegust, lax notar straumhörðustu svæðin og hreyfir sig minnst, en atferli og búsvæðaval urriðans liggur þar á milli. Óðul bleikju eru stærri en urriða, stærri fiskar helga sér stærri óðul og óðul minnka með auknu fæðuframboði. Þá virðist urriði verja óðul sín betur en bleikja. Íslenskir laxfiskar sýna því mikinn fjölbreytileika í fæðu- og óðalsatferli, sem tengist búsvæðanotkun þeirra og mótar hana jafnframt. Rannsóknir á atferli auka skilning okkar á þeim ferlum sem liggja að baki búsvæðavali, hæfni og út- breiðslu villtra laxfiska í íslenskum ám. Stefán Óli Steingrímsson, Tyler Douglas Tunney og Guðmundur Smári Gunnarsson Náttúrufræðingurinn 85 (1–2), bls. 28–36, 2015 Ritrýnd grein 1. mynd. Vorgömul (0+) seiði íslenskra laxfiskategunda. Frá vinstri urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og lax (Salmo salar). Á þessu aldursskeiði er urriði með rauðleit- an veiðiugga, hjá bleikju er fremsti uggageisli bakuggans ljósari að lit en hjá hinum tegundun- um, og lax er með áberandi stóra eyrugga.– Young-of-the-year (0+) individuals of each Icelandic salmonid species, from left brown trout (Salmo trutta), Arctic charr (Salvelinus alpinus) and Atlantic salmon (Salmo salar). At this age, brown trout have a reddish adipose fin; Arctic charr have much lighter coloured fin ray at the front of the dorsal fin than the other two species, and Atlantic salmon have very big pectoral fins. Ljósm./Photo: Stefán Óli Steingrímsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.