Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 41
41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
7. mynd. a. Heilbrigð frumurækt úr kindaheila. Endurprentað með leyfi Springer Science+Business Media B.V.23 b. Frumubreytingar í sýktri
frumurækt. Endurprentað með leyfi Elsevier.27 (Giemsa litun.) – a. Monolayer of uninfected sheep cells. Reprinted with kind permission from
Springer Science+Business Media B.V.23 b. Cytopathic effect in infected sheep cells, consisting of multinucleated cell syncytia. Reprinted with
kind permission from Elsevier.27
tekin nokkrum sinnum og komu
sams konar breytingar í ljós eftir
1–3 vikur, eftir því úr hvaða visnu-
heilum síaði safinn var tekinn. Safi
úr heilum heilbrigðra kinda olli
engum breytingum í frumurækt-
inni.
Síuðum vökva af frumurækt með
sjúklegum frumubreytingum var
sáð í heilbrigða rækt og komu þá
breytingarnar fyrr í ljós en eftir að
síuðum heilasafa var sáð í frumu-
rækt. Þetta benti til þess að veiran
fjölgaði sér í ræktinni.
Til að athuga hvort veiran sem
sýkti frumuræktina væri orsök
visnu í kindum var síuðum vökva
af sýktri frumurækt sprautað í heila
heilbrigðra lamba. Nokkrum vikum
seinna hækkaði frumutala ein-
kjörnunga í mænuvökva lambanna,
sem er fyrsta einkenni visnusýk-
ingar, og seinna komu í ljós visnu-
skemmdir í heila. Síuðum mænu-
vökva úr sýktum lömbum var sáð
í frumurækt og olli þar sjúklegum
breytingum. Þynningum af frumu-
ræktarvökvanum var þá sáð í nýja
rækt, og svo koll af kolli. Vökvanum
var loks sprautað í lömb sem aftur
sýndu einkenni um visnu.23 Þessar
tilraunir gáfu sterka vísbendingu
um að veiran sem óx í frumurækt
væri visnuveiran, og hafa allar síðari
rannsóknir staðfest það.
Rannsóknir í frumu-
rækt á stöðugleika
visnuveiru
Eftir ræktun visnuveiru í frumu-
rækt gátu nákvæmar rannsóknir ha-
fist á eiginleikum veirunnar. Áður
þurfti þó að svara mikilvægum
spurningum um þessa nýju og áður
óþekktu veiru, ekki síst vegna hins
alvarlega, banvæna sjúkdóms sem
hún olli. Athugað var annars vegar
hvernig hægt væri að gera veiruna
óvirka og skaðlausa ef nauðsyn
bæri til, og hins vegar hvernig hún
héldi virkni við mismunandi hita-
stig. Einfaldar tilraunir sýndu að
stöðugleiki visnuveiru var svipaður
og annarra þekktra manna- og dýra-
veira.24 Hitun við 57°C, 0,04% form-
aldehýð, 50% etanól og útfjólublátt
ljós gerðu hana skaðlausa á svip-
uðum tíma og aðrar veirur. Hún
var stöðug við 4°C í að minnsta
kosti viku og í marga mánuði við
–50°C, og hún þoldi vel endurtekna
frystingu og þiðnun. Þetta auðveld-
aði rannsókn á henni í frumurækt,
t.d. við geymslu á sýnum.
Sýking á frumurækt úr
mönnum og dýrum,
öðrum en kindum
Afmýlun í hvítu miðtaugakerfis
er áberandi í kindum með langt
gengna visnu. Þetta vakti sérstaka
athygli og áhuga Björns Sigurðs-
sonar sem taldi hugsanlegt að visna
og MS (heila- og mænusigg, e.
multiple sclerosis) væru skyldir sjúk-
dómar. Hann setti fram þá tilgátu að
MS og aðrir langvinnir miðtauga-
kerfissjúkdómar í mönnum væru
af völdum hæggengra veirusýk-
inga og að ef til vill mætti nota
hæggenga dýrasjúkdóma sem rann-
sóknarlíkan fyrir þessa sjúkdóma.22
Þótt síðar kæmi í ljós við nákvæm-
ari rannsóknir að afmýlun í visnu
og MS eru af ólíkum toga25 vakti sú
hugmynd að veira væri orsök MS
mikla athygli og ýmsar veirur voru
í kjölfarið rannsakaðar sem hugsan-
legir orsakavaldar MS. Sá möguleiki
að visnuveira gæti valdið MS eða
skyldum sjúkdómum í mönnum
olli þeim nokkrum áhyggjum sem
voru að rannsaka veiruna í frumu-
rækt þar sem veirumagnið gat verið
allt að 10 milljón sýkjandi einingar í
millilítra. Tilraunir voru því gerðar
til að rannsaka hvort veiran gæti
valdið sjúklegum breytingum og
fjölgað sér í frumurækt úr manns-
heila. Miklu magni af visnuveiru
var sáð í frumuræktina og síðan
fylgst með henni í nokkra mánuði.
Stöku fjölkjarna risafruma sást í
frumulaginu og veiran hélst þar í
litlu magni. Mannafrumurnar höfðu
því mjög lítið næmi fyrir veirunni26