Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 50
Náttúrufræðingurinn
50
Hvert skal stefnt?
Ljóst er að uppfyllingar á strand-
lengju Fossvogs hafa lítið að -
dráttar afl fyrir fugla. Helstu
ástæðurnar eru að kantar upp-
fyllinganna eru brattir og grófir og
fer því saman lítið flatarmál og
einsleitt umhverfi hefur lítið upp
á að bjóða, a.m.k. sem fæðustöðvar
fyrir sjó- og fjörufugla. Að sama
skapi er ljóst að Fossvogsleira og
lítt röskuð norðurströnd Fossvogs
(9. mynd) skipta allnokkru máli
fyrir fuglalíf svæðisins. Þangað
sækja tegundir á borð við heiðlóu
í stórum hópum á haustin og
rauðbrystingar nýta leiruna á vorin
til að fylla á tankinn fyrir farflug
sitt til hánorrænna varpstöðva.
Jafnframt nýta tjaldar þessi svæði
yfir vetrartímann.
Eins og fram hefur komið getur
verið sterkt samband milli fjölda
fugla og flatarmáls fjörusvæða.
Því má ljóst vera að athafnir sem
þrengja að fjörusvæðum geta haft
bein áhrif á fjölda fugla sem nýta
viðkomandi svæði. Komi til frekari
framkvæmda, svo sem uppfyllinga,
frekari þrengingar eða brúargerðar
yfir Fossvog, er afar nauðsynlegt
að fram fari vandað mat á áhrifum
framkvæmdanna á strauma og
sjóskipti í Fossvogi. Breytingar á
straumum og sjóskiptum geta haft
mikil áhrif á búsvæði hryggleysingja
í voginum og þar með á fæðu-
framboð fyrir fugla. Fossvogur
innan bæjarmarka Kópavogs nýtur
búsvæðaverndar samkvæmt aug-
lýsingu umhverfisráðherra frá 2012
og er nauðsynlegt að skoða allar
framkvæmdir í því ljósi.13 Meta
þarf magn ferskvatns sem rennur í
Fossvog og er það sérlega mikilvægt
ef fyrirsjáanlegar eru breytingar á
straumum eða sjóskiptum. Lækki
selta að einhverju marki getur það
m.a. haft áhrif á ísmyndun að
vetri. Brúargerð dregur jafnframt
úr getu Fossvogs til að losa sig við
ís með sjávarföllum og vindi, sér í
lagi ef brúin verður stutt. Ekki þarf
að fjölyrða um þann vanda sem
ísilagður vogur getur valdið fuglum
í fæðuleit.
Ekki er vitað til þess að til séu
birtar athuganir á fuglalífi Fossvogs
áður en byrjað var að fylla upp í
fjörurnar og því er varla hægt að
segja til um áhrif uppfyllinganna
fram til þessa. Í þessu sambandi
má benda á að samkvæmt lögum
um mat á umhverfisáhrifum þarf
að fara fram umhverfismat vegna
uppfyllinga í sjó sem eru yfir 5
hektarar að flatarmáli.14 Núverandi
fylling við vesturenda Kársness
er þegar orðin um 20 hektarar og
nýleg fylling við Naustvör er um 4
hektarar.
Gera má ráð fyrir að flestir
þeirra fugla sem sjást í Fossvogi
séu hluti af stofnum sem nýta
Skerjafjarðarsvæðið í heild sinni.
Því má ætla að allar breytingar
sem valda neikvæðum áhrifum
innan þess, svo sem á fuglalíf í
Fossvogi, valdi samhliða álagi
á fuglalíf og mögulega annað
lífríki Skerjafjarðarsvæðisins í
heild. Náttúran virðir ekki sveitar-
félagamörk og því er ekki hægt
að skoða áhrif framkvæmda eða
breytinga á búsvæðum í Fossvogi
sem staðbundin heldur verður
að athuga voginn sem hluta af
Skerjafirðinum öllum. Í þessu
sambandi er vert að benda á orðalag
auglýsingar nr. 190 frá 30. janúar
2012 í Stjórnartíðindum þar sem
friðlýsing í Fossvogi og Kópavogi
er skilgreind sem „búsvæðavernd
í Skerjafirði innan bæjarmarka
Kópavogs“.13
summary
Number and distribution of birds
in Fossvogur
Skerjafjörður is a sheltered and shallow
coastal area with a high conservation
value, especially in relation to birdlife.
Despite this, some areas have been
changed with landfills and further
changes are considered. These construc-
tions are likely to affect environmental
factors in Fossvogur such as currents
but effects on birdlife are less obvious.
The aim of this study was to gather in-
formation regarding present habitat
quality for birds in Fossvogur.
A total of 40 bird species were seen
with the grand total of 10,047 birds in 44
counts over a period of three and a half
year in 2008–2011. The twelve most
common species counted for 92% of the
total. A great difference in number of
birds was detected between areas. This
was strongly related to area size but dif-
ferent species also showed preferences
towards certain habitats. Landfills had
low average counting numbers (5–11
birds per counting tour) and low species
9. mynd. Horft inn eftir Fossvogi að norðanverðu. – Northern part of Fossvogur. Ljósm./
Photo: Náttúrufræðistofa Kópavogs.