Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 11

Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 11
Bókasafnið 40. árg – 2016 11 Mikilvægi mats Þjónustugæði eru mikilvæg þegar kemur að því að halda í viðskiptavini, en þeir hafa tilhneigingu til að færa viðskipti sín annað séu þeir ekki ánægðir með þjónustuna eða vöruna sem þeir fá (Hernon, Nitecki og Altman, 1999). Það er því nauðsynlegt að meta gæði þjónustu háskólabókasafna, rétt eins og annarra stofnana og fyrirtækja, til að kanna hversu ánægðir viðskiptavinir safnsins eru. Segja má að enn meiri áhersla þyrfti að vera á slíkt mat nú til dags í ljósi þess að með aukinni og fjölbreyttari samkeppni, auk framfara í raf- rænu umhverfi upplýsinga, verða kröfur viðskiptavina há- skólabókasafna meiri (Hernon o.fl., 1999) og aðgangur að slíkri þjónustu utan háskólabókasafna er orðinn betri. Þar sem bókasöfn starfa í umhverfi sem er sífellt að breytast er sérstaklega mikilvægt að ná til viðskiptavina. Til þess að tryggja að það sé gert og til að öruggt sé að þjónustan sem í boði er sé viðeigandi þurfa kynningar og markaðsmál að vera í réttu samhengi og þar kemur gæðamat inn með veigamikið hlutverk. Með slíku mati fæst skilningur á þörf- um viðskiptavina og tækifæri til að uppfylla þær, auk þess sem bera má kennsl á styrkleika og veikleika bókasafnsins með úrbætur í huga (Babalhavaeji, Isfandyari-Moghaddam, Seyed Vahid og Shakooii, 2010). Mat á þjónustu getur að auki sagt til um hvernig staða bókasafnsins er á ákveðnum tímapunkti, hvar úrbóta er þörf, það getur hjálpað með skipulag þjónustunnar auk þess sem hægt er að leggja mat á þær breytingar eða nýjungar sem framkvæmdar hafa verið (Van House, Weil og McClure, 1990). Auk þessa getur könnun á ánægju viðskiptavina gefið góðan grunn þegar verið er að sækja um meira fjármagn til handa bókasafninu (Balog og Plascak, 2012). Til að undirstrika það hversu mikilvægt er fyrir bókasöfn að framkvæma mat á þjónustugæðum má nefna rannsókn sem gerð var við háskólann í Tehran í Íran. Rannsóknin leiddi í ljós að þrátt fyrir að bókasafnið hafi staðið fyrir ýmsum verkefnum til að bæta þjónustuna þá mistókst það því ekki var búið að greina þá þætti sem notendum þóttu mikilvæg- astir (Nejati og Nejati, 2008). Enn einn kostur við mat á þjónustugæðum samkvæmt Hakala og Nygrén (2010) er að ánægja viðskiptavina með þjónustu bókasafnsins hefur já- kvæð tengsl við ímynd háskólans og fjárhagsstöðu hans. Matið verður því ekki aðeins til að hjálpa bókasafninu innan háskólans að uppfylla skyldur sínar og kröfur viðskiptavina heldur getur það orðið til þess að hjálpa stofnuninni í heild sinni. Bókasafn Menntavísindasviðs Háskólabókasöfn, að bókasafni Menntavísindasviðs með- töldu, heyra undir bókasafnalög (Bókasafnalög nr. 150/2012.). Einu sérlögin um bókasöfn gilda fyrir Lands- bókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, 2013), en bókasafn Menntavísindasviðs heyrir ekki undir það safn heldur beint undir Menntavísindasvið Háskóla Íslands (Þórhildur S. Sigurðardóttir, 2009). Mikil áhersla er lögð á nálægð bókasafnsins við Menntavísinda- svið, enda er vilji til að safnið gegni mikilvægu hlutverki í stoðþjónustu sviðsins. Einnig er mikilvægt að safnið sé stað- ur sem nemendur vilja sækja og að þar finni þeir bæði fyrir vellíðan og stuðningi (Gunnhildur Kr. Björnsdóttir, 2011). Í 7. grein bókasafnalaga eru bókasöfn í skólum tilgreind sem upplýsingamiðstöðvar fyrir kennara og nemendur og fram kemur að starfsemi slíkra safna eigi að leggja áherslu á að þjálfa upplýsingalæsi nemenda og starfsfólks (Bóka- safnalög nr. 150/2012.). Á bókasafni Menntavísindasviðs er boðið upp á hefðbundna þjónustu svo sem útlán, millisafna- lán, upplýsingaþjónustu og aðstoð við heimildaleit. Lögð er áhersla á að efla sjálfstæði nemenda við upplýsingaöflun meðal annars með því að bjóða upp á fræðslu í upplýsinga- læsi (Bókasafn, 2012). Í upphafi náms fá grunnnemar þjálf- un og kennslu þar sem veitt er þjálfun í upplýsingaleit á Leitir.is. Einnig fer fram kennsla í upplýsingalæsi þar sem kennt er á hvernig leitarferlið fer fram og hvernig miðla á fræðilegri þekkingu (Bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands: Notendafræðsla, 2014). Lögð er áhersla á að fjar- nemar búsettir utan höfuðborgarsvæðisins njóti sambæri- legrar þjónustu og aðrir nemendur (Ársskýrsla bókasafns Menntavísindasviðs 2013). Tilgangur rannsóknar og rannsóknarspurningar Rannsóknin, sem er þjónustukönnun, var unnin fyrir bóka- safn Menntavísindasviðs. Megin tilgangur hennar var að kanna hvort og hversu ánægðir nemendur á sviðinu væru með þjónustuna á safninu. Einnig var kannað hversu oft nemendur nýta sér mismunandi þjónustuþætti safnsins, hvaða leiðir þeir fara í upplýsingaleit og hvort nemendur hefðu fengið kennslu á safninu. Megin áherslan var á ánægju notenda og var leitað svara við eftirfarandi rann- sóknarspurningum: 1) „Eru nemendur Menntavísindasviðs ánægðir með þjónustu safnsins?“, 2) „Hvaða þætti þjónust- unnar eru nemendur helst ánægðir/óánægðir með?“. Aðferð Um megindlega rannsókn er að ræða þar sem lögð var fyrir spurningakönnun sem hönnuð var sérstaklega í þessum til- gangi. Gagnaöflun Þátttakendur voru nemendur á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Alls tóku 375 manns af um 2.150 manna þýði þátt í könnuninni, svarhlutfall var því 17,4%. Af þeim 375 sem tóku þátt voru 323 (86%) konur og 48 (13%) karlar en ekki er vitað um kyn fjögurra þátttakenda (1%). Þátttakendur voru á aldrinum 20-64 ára og skiptust niður á allar þrjár deildir Menntavísindasviðs, 182 þátttakendur (48,5%) voru í Kennaradeild, 133 (35,5%) í Uppeldis- og menntunar- fræðideild og 52 (14%) í Íþrótta-, tómstunda- og þroska- þjálfadeild. En átta þátttakendur (2%) tiltóku ekki deildina sem þeir stunda nám við. Þar sem fáir þátttakendur eru á sumum námsstigum eru þátttakendur teknir saman í tvo flokka eftir námsstigi, þátt- takendur í grunnnámi (BEd/BA/BS, sambærilegt eða minna) og þátttakendur í framhaldsnámi (viðbótardiplóma, meistaranám og doktorsnám). Sé þátttakendum skipt niður með þessum hætti hefur fyrrnefndi hópurinn 158 (42%)

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.