Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 53
Bókasafnið 40. árg – 2016 53
Dagana 18. til 20. nóvember síðastliðinn var haldin ráðstefna í Árósum sem bar yfi rskriftina CO-CREATING
NEW LEARNING ENVIRONMENTS –
COLLABORATION ACROSS EXPERTISE.
Ráðstefnan var haldin á vegum NUAS (Nordic
Association of University Administrators) sem
eru samtök norrænna háskóla (www.nuas.org).
Háskóli Íslands er eini íslenski háskólinn sem
er aðili að samtökunum, en alls tilheyra þeim 62
norrænir háskólar. Til að fá aðild þarf háskóli að bjóða upp
á rannsóknartengt nám og útskrifa doktora.
Tilgangur NUAS er að efl a faglega hæfni, miðla þekk-
ingu, efl a samstarf og tengsl milli starfsmanna á sem
fl estum sviðum stjórnsýslunnar. Innan samtakanna starfa
nú 13 mismunandi faghópar sem standa reglulega fyrir
ráðstefnum og málstofum um tiltekin málefni sem varða
starfsemi háskóla. Þar á meðal er bókasafnshópur sem
stofnaður var 2013, með tveimur fulltrúum frá hverju Norð-
urlandanna og einum héðan. Megin áhersluefni hópsins
eru námsumhverfi , rafrænt efni, opinn aðgangur, höfundar-
réttarmál, markaðssetning bókasafna, gæðamál og hlutverk
háskólabókasafna í framtíðinni.
Ráðstefnan í Árósum fj allaði um það sem efst er á baugi í
námsumhverfi háskóla. Fjórir faghópar stóðu að ráðstefn-
unni; námsráðgjöf, byggingar og umhverfi , upplýsingatækni
og bókasöfn. Þetta er í fyrsta sinn að fl eiri en einn hópur
innan samtakanna skipuleggur ráðstefnu með þessum hætti
en með samstarfi fj ögurra mismunandi faghópa gafst ein-
stakt tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn, kynna sér
nýjungar og leggja grunn að þverfaglegu samstarfi . Þátttak-
endur frá Háskóla Íslands voru 14, þar af þrír frá bókasafni
Menntavísindasviðs og tveir frá Landsbókasafni Íslands -
Háskólabókasafni.
Aðalfyrirlesarar
Boðið var upp á fj ölbreytt efni á ráðstefnunni í formi
fyrirlestra og fj ölda vinnustofa. Þarna voru saman komnir
framúrskarandi fyrirlesarar víða að af Norðurlöndum og
aðalfyrirlesarar frá Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku.
Frá Finnlandi komu Olli Niemi og Suvi Nenonen en Kristi
Lonka, ein þeirra sem undirbjó fyrirlesturinn forfallaðist.
Olli Niemi er aðjúnkt við tækniháskólann í Tampere í
bygginga- eða framkvæmdahagfræði (construction econo-
mics). Hann er einnig í forsvari fyrir rannsóknir og þróun
hjá University Properties of Finland þar sem viðfangsefnin
eru rými, svæði, þjónusta við kennslu og námsumhverfi
og sjálfbær þróun orkunýtingar. Meðal verkefna sem Olli
hefur unnið að eru mótun námsumhverfi s í fi nnskum há-
skólum og endurskipulagning háskólasvæða. Suvi Nenonen
er doktor í heimspeki og vinnur sem rannsóknarstjóri í
Built Enviornment Services Research Group í Aalto-há-
skólanum, en hún er einnig aðjúnkt við tækniháskólann í
Tampere. Sérsvið Suvi er stjórnun vinnustaða (workplace
management) og hefur hún unnið að rannsóknum á þróun
vinnu og námsumhverfi s.
Þau Olli Niemi og Suvi Nenonen fj ölluðu í fyrirlestri
sínum um mikilvægi þess að horfa á háskólasvæði sem heild
og að námsumhverfi framtíðarinnar ætti fyrst og fremst að
skipuleggja út frá námi en ekki kennslu og miðast við þá
þjónustu sem eigi að veita. Þau bentu á niðurstöður rann-
sókna sem sýna að formleg kennsla í kennslustund skili
nemendum aðeins tíundaparti af því sem þeir læra, 20%
komi frá verkefnavinnu en 70% eða stærsti hlutur náms
fari fram með óformlegum hætti eins og með samræðum
Co-Creating New Learning Environments –
Collaboration Across Expertise
Gunnhildur Björnsdóttir er BA í bókasafns- og upplýsingafræði og MPA í opinberri stjórnsýslu.
Hún starfar sem forstöðumaður bókasafns Menntavísindasviðs.
Ingibjörg Bergmundsdóttir er BA í bókasafns- og upplýsingafræði og M.Sc.Econ frá University of Wales,
Aberysthwyth. Hún vinnur á þjónustusviði Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Rósa Bjarnadóttir hefur lokið B.Ed. og MLIS. Hún starfar sem fagstjóri upplýsingaþjónustu og notendafræðslu
hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.