Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 43

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 43
Bókasafnið 40. árg – 2016 43 Next Library ráðstefnan er haldin annað hvert ár í Árósum í Danmörku. Dagana 12.-15. september síðastliðna var ráðstefnan haldin í nýjum höfuð- stöðvum almenningsbókasafnsins í Árósum, Dokk1. Þegar kemur að ráðstefnum er varða almenningsbókasöfn er Next Library ráðstefnan ein sú besta sem undirritaðar hafa farið á. Ráðstefnan er byggð upp á nýtískulegan máta hvað varðar umgjörð og þátttöku þeirra sem hana sækja enda hæfi lega stór í sniðum og hnitmiðuð. Fyrirlestrarnir eru áhugaverðir, koma beint að efninu og höfða til okkar Íslendinga þar sem við berum okkur gjarnan saman við Norðurlönd. Að- standendur ráðstefnunnar vinna við almenningsbókasafnið í Árósum og eru einstaklega hugmyndarík þegar kemur að skemmtilegum viðburðum og það skilar sér í þessari ráðstefnu. Meðal þess sem okkur þótti athyglisvert á ráð- stefnunni síðastliðið haust var erindi Juliu Bergmann frá Þýskalandi en hún er meðlimur Library Avengers sem eru sjálfstætt starfandi hagsmunasamtök sem berjast fyrir fram- gangi bókasafna. Library Avengers eru með Facebooksíðu þar sem hægt er að fræðast meira um þau. Hún er sjálfstætt starfandi leiðbeinandi í upplýsingalæsi og tækninýjungum. Í erindi hennar kom fram að það er ekki nóg að byggja fl ott hús og setja af stað ný verkefni ef starfsfólk er tregt til að taka þátt í að aðlagast nýjum tímum og nýrri hugsun í þjónustu almenningsbókasafna við notendur. Bergmann lagði áherslu á að starfsfólk bókasafna þurfi að komast inn í 21. öldina og að það þurfi mikla hugarfarsbreytingu með áherslu á að það og rýmið sem unnið er með þróist saman til nýrra tíma. Hönnun og nýting rýmis er einmitt eitt helsta umræðuefnið í bókasafnsheiminum í dag. Nýtt húsnæði skiptir ekki höfuðmáli heldur hvernig núverandi húsnæði er nýtt til að þjóna því samfélagi sem safnið er í. Oft þarf ekki nema litlar breytingar, eins og að grisja safnkost og nota plássið sem losnar í aðra þjónustu sem hægt er að bjóða notendum í nær- samfélagi safnsins upp á. Til dæmis er þá hægt að samnýta húsnæði með borgaralegri þjónustu, bjóða frumkvöðlum afnot af húsnæðinu á meðan þeir eru að koma sér á framfæri eða nýta það undir fj ölbreytta viðburði á vegum safnanna. Annað sem okkur þótti fróðlegt var það sem Deborah Jacobs, forstöðumaður Global Libraries Initiative hjá stofnun Bill og Melindu Gates, sagði meðal annars um almenningsbókasöfn. Að hennar mati eiga þau að vera öfl ugt hreyfi afl í samfé- laginu með því að vera virkir þátttakendur í nærumhverfi sínu. Deborah ræddi einnig um nauðsyn á breyttum áherslum við mælingu á notkun bókasafna. Nú er nær eingöngu stuðst við útlánatölur og/eða gestafj ölda en nauð- synlegt er að hennar mati að mæla hvaða áhrif safnið hefur á samfélagið sem það er í, til dæmis með tilliti til notkunar og upplifunar safngesta á húsnæði og dagskrá sem safnið býður upp á. Má þar með nefna hversu lengi gestir staldra við á safninu og hvað þeir eru að gera þar annað en að fá lánuð gögn. Þar sem hönnun og nýting rýmis er eins og áður segir ofar- lega á baugi í dag, verðum við að nefna húsnæðið sem Next Library ráðstefnan var haldin í eða Dokk1. Dokk 1 er ætlað sem fj ölnota staður fyrir íbúa Árósa og nágrennis, opinn, aðgengilegur og hagnýtur. Húsnæðið er hugsað sem griða- staður fyrir gesti í leit að þekkingu, innblæstri og persónu- legum þroska og sem opið og aðgengilegt námsumhverfi sem styður lýðræði og samfélagið. Dokk1 er stærsta al- menningabókasafn Evrópu og nær yfi r 28.000 m2. Fyrir utan bókasafnið eru í húsinu bæjarskrifstofur, kaffi hús, hópvinnu- herbergi, fundarsalir, kennslustofur, leiksvæði og margt fl eira en bókasafnið er svo að segja allt um kring. Að meðaltali hafa komið 4500 gestir á dag frá opnun Dokk1 síðastliðið sumar en þó hafa mest komið 18 þúsund manns yfi r eina helgi. Undirritaðar komu í Dokk1 bæði um helgi sem og virka daga og var alla dagana mjög margt fólk í safninu. Þó var munur á því hverskonar notendahópar voru að nýta sér húsnæðið. Um helgina var meira um fj ölskyldufólk og börn að leik. Það var sérstök sjón að sjá krakka renna sér á hjólabrettum niður rampinn í miðju húsinu og unga feður á röltinu með barnavagna um safnið. Sá hópur er sá sem minnst notar söfn á Íslandi en í Dokk1 voru þeir duglegir að láta sjá sig með börnin sín og dunda sér með þeim og rölta um. Á virku dög- unum var mikið um skólafólk og mæður með lítil börn ásamt leikskólahópum og eldri borgurum en síðasttaldi hópurinn er duglegur að koma og fá sér göngutúr á gríðarstórri verönd- inni sem umlykur húsið. Á veröndinni eru einnig bekkir og aðstaða til að borða nesti og gríðarstór leiktæki sem eru vinsæl hjá yngri kynslóðinni að leika sér í. Ef almenningsbókasöfn ætla sér að vera þetta nauðsynlega hreyfi afl í samfélaginu þurfa þau að aðlagast breyttum kröfum notenda sinna og við sem þar vinnum að vera tilbúin í þær breytingar sem nauðsynlegar eru til þess að halda velli. Ráðstefna eins og Next Library er vel til þess fallin að fylgjast með því nýjasta og ferskasta sem er að gerast í bókasafns- heiminum og til hvatningar að hugsa út fyrir kassann sem við erum mörg hver svo föst í. Við mælum eindregið með því að fólk drífi sig á næsta ári eða kíki við í Dokk1 ef það á leið um Árósa. Ný hugsun eða dauði? – Next Library og Dokk1 í Árósum Sigríður Júlía Sighvatsdóttir er BA í bókasafns-og upplýsingafræði og er með viðbótardiplóma í safnafræði og í upplýsingafræði. Hún starfar hjá Bókasafni Kópavogs og 365 miðlum. Sigrún Guðnadóttir er BA í Bókasafns-og upplýsingafræði og MA í Hagnýtri menningarmiðlun. Hún starfar sem útibústjóri hjá Bókasafni Kópavogs, Lindasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.