Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 55
Bókasafnið 40. árg – 2016 55
Í kjölfar efnahagsþrenginga á síðustu árum dró verulega úr
fjárframlögum til bókasafna og auknar kröfur voru gerðar
til að hagræðingar í rekstri. Fækka þurfti starfsfólki á sama
tíma og efla átti þjónustu. Með þetta að leiðarljósi fór
af stað heildarendurskipulagning á bókasafninu. Sérstök
áhersla var lögð á þjónustu við notendur, bæði varðandi
framboð á efni og breyttar þarfir hvað snertir aðstöðu til
náms og vinnu innan safnsins. Má þar nefna vinnuaðstöðu
sem hentar mismunandi þörfum hvers og eins, aðgang allan
sólarhringinn og alhliða þjónustuborð.
Við upphaf sameiningarinnar var starfsemin mjög dreifð
um háskólasvæðið. Hún þótti einhæf og ekki standast nú-
tíma kröfur. Með endurskipulagningu var útibúum fækkað
og húsnæði endurhannað. Eitt af því sem vakti athygli var
að horfið var frá stórum afgreiðsluborðum eins og við eigum
að venjast og í staðinn komu margar litlar afgreiðslueiningar
þar sem hugmyndin er að starfsfólk og viðskiptavinir mætist
á sama plani.
Öll þjónusta og starfsemi bókasafnsins var endurskipulögð
og þróuð í nánu samstarfi við stjórnsýslu, nemendur og
kennara, en mikilvægt þótti að treysta samvinnu og tiltrú á
safninu. Ýmsar leiðir voru notaðar til að safna athugasemd-
un hagsmunaaðila, til dæmis á vef, með ýmis konar fundum,
vinnustofum og með þjónustukönnunum. Mikið er lagt
upp úr því að hlusta á athugasemdir og bregðast við þeim.
Afraksturinn er endurbætt háskólabókasafn skipulagt í fullu
samstarfi við háskólasamfélagið og þá ekki síst nemendur.
Bókasafninu er ætlað að vera mikilvægur hlekkur í stoð-
þjónustu háskólans og markmiðin eiga að vera í samhengi
við stefnu skólans. Í nýrri stefnu fyrir árið 2016 er sérstök
áhersla lögð á húsnæðismál þar sem safnið á að verða að-
laðandi og þægilegur samverustaður, en einnig á mikilvægi
mannauðsins. Í því skyni á að skilgreina þá hæfni og þekk-
ingu sem starfsmenn eiga að búa yfir, en aukin sérhæfing og
sérhæfðari verkefni eru talin æskileg.
Eins og komið hefur fram eru þarfir notandans hafðar í
fyrirrúmi. Mikil áhersla er lögð á þjónustu, markaðssetningu
og að skapa andrúmsloft í takt við síbreytilega þróun í
kennslu, námi og rannsóknum og á nauðsyn þess að efla
samvinnu við háskólasamfélagið. Með endurskoðun og hag-
ræðingu verður stefnt að því að ná enn betur því þjónustu-
stigi sem háskólasamfélagið gerir kröfu til.
Niðurlag
Okkur sem sóttum ráðstefnuna frá bókasöfnum Háskóla
Íslands ber saman um að hún hafi verið einkar áhugaverð og
opnað nýja sýn. Það er fróðlegt að heyra hvernig háskólar
og háskólabókasöfn í nágrannalöndunum eru að endur-
skipuleggja húsnæði og þjónustu með það fyrir augum að
koma betur til móts við þarfir nemenda og kennara í breyttu
samfélagi og umfjöllunarefnið á brýnt erindi við okkur sem
störfum á þessum vettvangi hérlendis. Það vekur athygli
hversu mikið er lagt í undirbúningsvinnu og hversu margir
koma þar að málum. Þar er miklu til kostað. Samvinna og
áherslan á aðkomu nemenda þegar verið er að skipuleggja