Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 26

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 26
26 Bókasafnið 40. árg – 2016 Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, SBU, er sérstakt stéttarfélag þeirra sem lokið hafa grunn- eða framhaldsnámi í bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærilegu námi frá erlendum háskólum. Félagið býður einnig upp á nemaaðild fyrir einstaklinga sem lokið hafa að minnsta kosti 60 einingum (ECTS) í upplýsingafræði. Þótt bókasafns- og upplýsingafræðingar starfi á breiðu sviði og eigi aðild að mörgum ólíkum stéttarfélögum er SBU það stéttarfélag sem hefur fl esta bókasafns- og upplýsinga- fræðinga innanborðs. Félagið hefur frá stofnun verið hluti af Bandalagi háskólamanna, BHM, og tekur virkan þátt í starfi samtakanna. Hverjir eru í SBU? Félagið var stofnað árið 1999 eftir að Félag bókasafns- fræðinga og Bókavarðafélag Íslands voru sameinuð og sú ákvörðun tekin að gera starfsemi Kjaradeildar Félags bókasafnsfræðinga að sérstöku og sjálfstæðu stéttarfélagi. Félagafj öldi SBU var þá um 100 manns. Félagið hefur vaxið talsvert síðan þá, en árið 2007 voru félagsmenn 186 og í janúar 2016 voru þeir orðnir 268. Bókasafns- og upplýsingafræðingar hafa lengi tilheyrt þeim hópi stétta sem teljast kvennastéttir og það endurspeglast í tölum um félagsmenn SBU. Mikill meirihluti félagsmanna eru konur, og karlar telja innan við 10%. Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt síðustu ár en þó hefur körlum fj ölgað lítillega. Þeir voru um 7,5% félagsmanna árið 2007 og tæp 9% í janúar 2016. Virkir félagsmenn eru á aldrinum 25-70 ára og er meðal- aldur félagsmanna heldur hærri en fyrir BHM-félaga í heild. Meðalaldur fer þó lækkandi. Hann var árið 2007 54,9 ár, en mældist 50,5 ár í janúar 2016. Ef menntun félags manna er skoðuð kemur í ljós að um 75% félagsmanna hafa bakkalárpróf eða sambærilega menntun og 25% eru með meistaraprófsgráðu eða sambærilega menntun. Stærstur hluti félagsmanna SBU er starfandi hjá ríki (35%), Reykjavíkurborg eða öðrum sveitarfélögum (47%) og um 18% félagsmanna er við störf hjá einkafyrirtækjum, sjálfs- eignarstofnunum, félagasamtökum eða öðrum vinnuveit- endum. Árið 2007 störfuðu um 38% félagsmanna hjá ríki, 53% hjá borg og sveitarfélögum og innan við 9% hjá öðrum vinnuveitendum. Stór hluti félagsmanna gegnir lögverndaða starfsheitinu í starfi og kallar sig bókasafns- og upplýsingafræðing (28%), bókasafnsfræðing (4%) eða upplýsingafræðing (6%). Ýmis önnur starfsheiti eiga við um félagsmenn, svo sem for- stöðumaður, sérfræðingur, skjalastjóri, deildarstjóri og verkefnastjóri. Þessi fj ölbreytni í starfsheitafl órunni er von- andi vísbending um að menntun í upplýsingafræði skili sér í fj ölbreyttum möguleikum á vinnumarkaði. Samkvæmt rannsóknum félagsins er ekki kynbundinn launamunur innan stéttarinnar. SBU er hins vegar eitt þeirra aðildarfélaga BHM sem ítrekað mælist með einna lægstu launin, en kjarakannanir hafa sýnt fram á að meðal- laun stéttarfélaga innan BHM fara lækkandi eftir því sem hlutfall kvenna er hærra innan þeirra. Þetta endurspeglast í niðurstöðum kjarakönnunar BHM 2015 þar sem aðeins 15% félagamanna SBU sögðust vera ánægðir með þau laun Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga Hallfríður Kristjánsdóttir er MLIS í bókasafns- og upplýsingafræði. Hún starfar sem fagstjóri (íslenskrar skráningar og bókfræðistjórnar) á Landsbókasafni Íslands – Háskóla- bókasafni. Auk þess situr hún í stjórn Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.