Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 25

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 25
Bókasafnið 40. árg – 2016 25 Þar sem margbreytileikinn lifir Menningarmót – fljúgandi teppi er þverfagleg kennsluað- ferð sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningarheima þátttakenda. Menningar- mót má útfæra með mörgum námsgreinum og námssviðum og oft tengjast þau vinnu með sjálfsmynd barna, skapandi greinar, lífsleikni og íslensku- og tungumálakennslu. Verk- efnið höfðar einnig til ungmenna og fullorðinna. Lykilatriði við útfærslu Menningarmóts, sem og í öðrum fjölmenn- ingarlegum verkefnum Borgarbókasafnsins, er að litið sé á hugtakið fjölmenningu í víðum skilningi – eitthvað sem varðar alla, ekki einungis ákveðna hópa. Áhersla er lögð á að hver og einn kynni sín áhugamál og menningu og þarf ekki endilega að tengjast þjóðmenningu. Menningarmótin hafa verið notuð með góðum árangri í kennslu bæði í Danmörku og á Íslandi undanfarin 12-15 ár og eru sjö skólar í Reykja- vík orðnir formlegir Menningarmótsskólar. Verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni er höfundur verkefnisins og hefur útbúið heimasíðu með leiðbeiningum fyrir kennara og aðra áhugasama: www.menningarmot.is Verkefnið er, eins og Café Lingua – lifandi tungumál, dæmi um starfsemi sem nær út fyrir veggi bókasafnanna og hvetur til þverfaglegs samstarfs. Tvær ritgerðir fjalla um verkefnið: „Þar sem margbreytileikinn lifir“, MS ritgerð eftir Hildi Hrönn Oddsdóttur og „Gagnrýni og von“, lokaverkefni Oddnýjar Sturludóttur til B.Ed.-prófs. Sögum fjölgar á Íslandskortinu Til viðbótar við ofangreind verkefni má nefna Söguhring kvenna sem er öflugt samstarf Borgarbókasafnsins við Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Sögu- hringurinn var stofnaður í nóvember 2008 og er ætlaður öllum konum sem hafa áhuga á notalegri samveru sem byggir meðal annars á því að deila menningarlegum bak- grunni sínum með öðrum. Markmið Söguhringsins er að skapa vettvang þar sem konur af erlendum og íslenskum uppruna skiptast á sögum og reynslu. Starfsemin felst meðal annars í skapandi vinnu og að skapa tengsl milli menningarheima og þekkingarsviða. Söguhringur kvenna hefur útbúið þrjú listaverk; „Tölum saman“ skapað úr tölum og hangir í Borgarbókasafninu Grófinni, „dot.com“ sem er breytt og litríkt Reykjavíkurkort sem hangir í Ráðhúsinu og er tákn borgarinnar um fjölmenningu og loks „Íslandskort Söguhrings kvenna“, málverk sem sýnir persónuleg tákn 35 kvenna frá 18 löndum, búsettum á Íslandi. Verkið er unnið með aðferð frumbyggja Ástrala sem byggir meðal annars á því að margir vinni í sameiningu að því að skapa listaverk. Myndin er hönnuð fyrir fyrirtækið Kaffitár sem hafði sam- band við safnið til að fá listaverk skapað af Söguhringnum til notkunar á kaffihúsum, kaffiumbúðum og annarri kynn- ingu fyrirtækisins. Það má segja að þátttakendur hafi bók- staflega sett sín spor á íslenskt landslag – og sporin ratað víða um landið. Launin sem Söguhringurinn fékk fyrir þessa listsköpun hafa meðal annars farið í að halda opin leiklistarnámskeið undir handleiðslu Helgu Arnalds og Aude Busson sem lauk með tveimur leiklistargjörningum í Reykjavík. Starfið felst ýmist í að hittast yfir kaffibolla í notalegu umhverfi bóka- safnsins eða fara í vettvangsferðir, ýmist til að taka þátt í skapandi smiðjum og námskeiðum eins og til dæmis núna á vorönn 2016 þar sem trúðatækni og grunnatriði í teikningu og myndbyggingu er í boði. Gátt inn í samfélagið Almenningsbókasöfn eru öllum opin og öllum er velkomið að njóta þess sem þau hafa upp á að bjóða. Gestir geta fengið tónlist, bækur og annað efni að láni frá öllum heims- hornum eða notið þess á staðnum, lesið fréttir á netinu, litið í dagblöðin sem liggja frammi, leitað að uppáhaldshöfund- inum sínum og sest niður í næsta stól eða sófa, hvort sem er einir með sjálfum sér eða með öðrum. Bókasöfnin eru einstök gátt inn í samfélagið og þar blómstrar menning og mannlíf. Með því að kynna söfnin vel fyrir til dæmis ís- lenskunemendum, bjóða uppá heimanámsaðstoð (sjá www. heilahristingur.is), efla þátttökumenningu, viðburði og fasta liði í starfinu, sem skapa vettvang fyrir upplifun og samveru, opnum við fjársjóð bókasafnsins fyrir sem flesta. Lykillinn að fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns er samstarf . Sjá nánar www.borgarbokasafn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.