Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 20

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 20
20 Bókasafnið 40. árg – 2016 Flestir leiðarvísanna sem komnir eru á netið tengjast ein- stökum námsbrautum Háskóla Íslands, svipað og í „Fræði- greinin þín“ sem verið hefur á aðalvef safnsins um árabil. Þar er að fi nna almennar upplýsingar um safnið, hvernig fi nna má bækur og tímarit, tímaritsgreinar og gagnasöfn, uppsláttarrit og spennandi vefi sem tengjast viðkomandi fagi og einnig síður um heimildaskráningu, ritun, forrit og staðla. Þessir leiðarvísar eða áttavitar eru einnig hugsaðir sem stuðningur við safnkynningar svo og staður til að rifj a upp það sem þar fór fram, sem upplýsingagátt um heim- ildaleit og verkefnavinnu og jafnvel leið til sjálfsnáms í upplýsingalæsi. Aðrir leiðarvísar eru t.d. um Alþingistíðindi, millisafnalán og landsaðgang að rafrænum áskriftum og enn aðrir um þjónustu og gagnasöfn einstakra stofnana sem við erum í tengslum við s.s. OECD, ILO, Alþjóðavinnumálastofn- unina, og fl eiri eru í undirbúningi. Frekari þróun viðmóts og mótun stefnu út frá fenginni reynslu er einnig í fullum gangi. Meginmarkmið Áttavitans er að bæta sýnileika safnkosts og auka notkun mikilvægra gagna sem aðgangur er að. Í nýlega sameinuðu þjónustuborði útlána og upplýsinga- þjónustu og í návígi við nýbyrjaða þjónustu ritvera háskól- ans í Þjóðarbókhlöðu bindum, við vonir við að geta gert Áttavitann að öfl ugum upphafsstað fyrir upplýsingaöfl un og verkefnavinnu. Tilgangurinn með þessum pistli er að vekja athygli á Áttavitanum, nýlegum safnfræðsluvef Lands-bókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Kynningar og safnfræðsla eiga sér um fj ögurra áratuga langa sögu í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og fyrrum Háskólabókasafni. Í fyrstu voru kynningarnar í formi skoðunarferða og fyrirlestra, leiðarvísa og bæklinga, að talskyggnunum ógleymdum. Síðan kom kennsla með verkefnagerð, myndböndum, glærukynningum, svo og fræðsluefni á vefj um safnsins eftir að Internetið kom til sögunnar auk kynninga og frétta með tölvupósti og á sam- félagsmiðlum. Rauði þráður kynningarstarfsins hefur ávallt verið að miðla, vekja athygli og áhuga á því sem safnið hefur upp á að bjóða, auk þess að leiða notendur í átt að upplýsingalæsi og til sjálfstæðis í öfl un þekkingar. Í hringiðu tækniþróunar síðustu áratuga og með auknu aðgengi að hvers konar gögnum á rafrænu formi, öfl ugum leitarvélum og aragrúa samskiptaleiða, hefur þörf notenda fyrir leiðsögn og bókasafna fyrir vettvang sem gerir safn- kostinn sýnilegri, kannski aldrei verið meiri. Árið 2007 kom nýtt vefumsjónarkerfi , LibGuides, fram á sjónarsviðið í Bandaríkjunum. Það var sérstaklega þróað fyrir bókasöfn með það fyrir augum að gera starfsmönnum þeirra kleift að halda utan um og útbúa kynningarefni á einfaldan hátt. LibGuides náði á skömmum tíma mikilli útbreiðslu, einkum í Bandaríkjunum, en er nú notað í um 4700 bókasöfnum í 78 löndum. Vorið 2014 var ákveðið að slást í hópinn og nota LibGuides til að færa safnfræðslu- efni, sem fyrir var á vef safnsins og í bæklingum, í nýjan búning og gera það aðgengilegt á einum stað. Síðan höfum við verið, og erum enn, að kynnast möguleikum kerfi sins og gera tilraunir með útlit og framsetningu efnis. Þótt uppbygging leiðarvísanna sé einföld eru möguleikar varð- andi bæði útlit og innihald ómældir. Fyrstu leiðarvísar safnsins fóru í loftið í september 2014 samhliða safnkynningum á haustmisseri og er þá að fi nna undir fyrirsögninni „Áttavitinn“ sem er á áberandi stað á heimasíðu safnsins. Áttavitinn opnast síðan á nýjum vef sem sýnir bæði heildarlista útgefi nna leiðarvísa, sem eru um 50 talsins þegar þetta er skrifað, og yfi rlit yfi r efnis- fl okkana. Þeir helstu eru: þjónusta, félagsvísindi, heil- brigðisvísindi, heimildaleit og skráning, hugvísindi, lög og stjórnsýsla, rafræn gögn, stofnanir, verkfræði og náttúru- vísindi, ásamt nokkrum leiðarvísum á ensku. Áttavitinn Halldóra Þorsteinsdóttir lauk námi í bókasafnsfræði frá l’École nationale supérieure de bibliothécaires (ENSB) í Lyon, Frakklandi. Hún starfar sem deildarstjóri í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.