Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 49

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 49
Bókasafnið 40. árg – 2016 49 Dagana 27. – 29. ágúst 2015 sótti höfundur árlega ráðstefnu, málstofur og aðalfund ARLIS/Norden (Art Libraries Society á Norðurlöndum) sem að þessu sinni voru haldin í Umeå í Sví- þjóð. Þátttakendur ráðstefnunnar voru um 50 og með höfundi frá Íslandi voru þær Auður Sigurðardóttir frá Þjóðminjasafni Íslands, Elín Guðjónsdóttir frá Listasafni Íslands, Guðrún Eggertsdóttir frá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni og Gunn- hildur Björnsdóttir frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Umeå, sem talin er höfuðborg Norður-Svíþjóðar, var önnur tveggja menningarborga Evrópu árið 2014 ásamt Riga í Lettlandi og má með sanni segja að borgin beri þess glögg merki. Hvarvetna má sjá að mikið hefur verið lagt í hvers kyns menningarstarfsemi, sem sagt alúð við listsköpun og framþróun í menntamálum. Til dæmis er listum og menningu gert afar hátt undir höfði í háskól- anum í Umeå sem er einn fj ögurra stærstu háskóla Sví- þjóðar. Þar er einnig lögð mikil rækt við menningu Sama, þessa einu náttúruþjóð Norðurlandanna, og rannsóknir á þjóðháttum þeirra sem og varðveislu. Höfundur fékk styrk frá Starfsþróunarsetri BHM í sam- ræmi við starfsþróunarstefnu og starfsþróunaráætlun Þjóð- minjasafnsins og má segja að sá styrkur hafi nýst afar vel. Fyrsti dagur ráðstefnunnar fór fram í Arts Campus, en þar eru Bildmuseet (listasafn háskólans), ásamt Umeå School of Architecture, Umeå Institute of Design, Umeå Academy of Fine Arts og listbókasafni háskólans. Þær byggingar sem hýsa þessa starfsemi eru nýjar og glæsilegar og voru fl estar opnaðar fyrir tveimur árum síðan. Formleg dagskrá ráð- stefnunnar hófst með innskráningu og fundum einstakra faghópa innan félagsins í kjölfarið. Höfundur hefur umsjón með íslenska hluta heimasíðu ARLIS/Norden og því hitti ég kollega mína frá hinum Norðurlöndunum í vefhópnum. Sömuleiðis hitti ég kollega minn frá Riksantikvarens bibliotek í Oslo til skrafs og ráðagerða en við höfum um árabil haft nána samvinnu. Engin var frá þjóðminjasöfnum hinna Norðurlandanna að þessu sinni en við höfum engu að síður mikið og gott samstarf. Að þessum fundum loknum fengu gestir ítarlega og afar vandaða leiðsögn um Bildmuseet þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja og stendur bygg- ingin á bökkum hinnar breiðu Ume älv. Þetta glæsilega safn er teiknað og hannað af Henn- ing Larsen Architects og fékk heiðursverðlaun EMYA sem European Museum of the Year 2014. Það er þegar skilgreint sem „ett av världens vackraste universitetsmuseer.“ Safnið leggur jafna rækt við að sýna hönnun, arkitektúr og auðvitað list hvers konar. Sú sýning sem sýnd var í nánast öllu húsinu er meðal þeirra allra áhrifamestu sýninga sem höfundur hefur séð. Hún bar heitið Mien Meo Mieng eða Land afbakananna og er frá Víetnam. Þarna sýndu 15 víetnamskir listamenn verk sín á mjög frjóan og fj ölbreyttan hátt, allt frá hefðbundnum málverkum, höggmyndum og ljósmyndum, til vídeóverka og innsetninga. Alvarlegur og gagnrýninn tónn, en jafn- vel kómískur, liggur að baki verkunum sem öll má fl okka sem samfélagsleg og lýsa samfélagi sem enn er í sárum eftir óhugnanlegt stríð og ekkert er sem sýnist. Sérlega áhrifaríkt var eitt vídeóverkið sem sýndi fólk í eðlilegri stærð vera að borða standandi. Var myndum varpað af hverjum og einum einstaklingi á spjald í sömu stærð þannig að þarna virtist vera kominn salur fullur af lifandi fólki. Þetta bar líka með sér hárfína gagnrýni því í Víetnam þykir það mikill dóna- skapur að borða standandi og er slíkt oft brottrekstrarsök á vinnustöðum. Sömuleiðis voru áhugaverðir allir fi ngurnir sem birtust í ólíkustu myndum um alla sýninguna eins og þema, líkt og verið væri að „gefa einhverjum fi ngurinn.“ Að lokinni leiðsögn um Bildmuseet og síðan aðrar bygg- ingar listaháskólans, hófst ársfundur ARLIS/Norden sem gekk vel fyrir sig. Fyrir Íslands hönd tóku nú sæti í stjór- ninni þær Gunnhildur Björnsdóttir frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Ingibjörg Rögnvaldsdóttir frá Tækni- skólanum. Engar nýjungar varðandi hefðbundna starfsemi voru boðaðar aðrar en þær að það er hugur í fólki að endur- Árlegur fundur og ráðstefna ARLIS/Norden – í Umeå 27. – 29. ágúst 2015 Gróa Finnsdóttir lauk BA-námi í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands og BA-námi í almennri bókmenntafræði frá sama skóla. Hún starfar sem bókasafns- og upplýsingafræðingur Þjóðminjasafns Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.