Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 40

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 40
40 Bókasafnið 40. árg – 2016 lesefni á lesbretti og þetta greiðir hið opinbera. Einnig eru keypt tímarit sem tengjast kennslugreinum skólans og tímarit sem höfða sérstaklega til ungmenna. Á bókasafninu er samstarfið mest við kennara í félagsfræði, sögu og móðurmáli (sænsku) eins og algengt er á skóla- bókasöfnum. Bókasafnið í Värnhemsskolan er rúmgott og bjart og búið fallegum og þægilegum húsgögnum. Ekki væsir um gesti við vinnu í slíku umhverfi enda er safnið mikið notað, bæði af kennurum og nemendum. Almenningsbókasafnið - Stadsbiblioteket Malmö Eftir hádegi þennan fyrsta dag var aðalsafn almennings- bókasafnsins í Malmö heimsótt. Safnið er staðsett í ein- staklega fallegri byggingu og er gott dæmi um hvernig hægt er að byggja myndarlega við gamalt hús þannig að bæði nýbygging og eldri bygging njóta sín. Pauliskolan Malmö – traust þekking og metnaðarfull kennsla Næst var haldið í Pauliskolan. Skólinn á sér 160 ára sögu, í byrjun sem fyrsti tækni/gagnfræða- og menntaskóli Sví- þjóðar en er í dag talinn nútímalegasti menntaskóli lands- ins. Einkunnarorð skólans, „traust þekking og metnaðarfull kennsla“, hafa borið ávöxt í námsárangri nemenda sem hefur batnað á hverju ári. Pauliskólinn hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir kennslu og lögð er áhersla á ein- staklingsmiðað nám þar sem horft er á færni nemandans í sköpun, læsi og sjálfbærni. Um 1000 nemendur stunda nám við skólann. Af þeim eru 800 í dagskóla en einnig er boðið upp á fullorðinsfræðslu og bæði dag- og kvöldskóla á fram- haldsskólastigi. Auk þess er í boði fjarnám sem er meira einstaklingsmiðað líkt og í fjarnámi og öldungadeildum á Íslandi. Menntaskólanámið tekur þrjú ár og geta nemendur valið um fjögur svið: félagsfræðisvið 1 og 2, náttúrufræðisvið og tæknisvið. Einnig er boðið upp á fjórða ár á tæknisviði ef nemandinn hefur lokið stúdentsprófi á því sviði. Bókasafnið Líkt og hjá fleiri skólum kallast bókasafnið „mediatek“, enda veitir það nemendum og starfsfólki bæði tæknilega aðstoð og upplýsingaþjónustu. Þangað héldum við til að kynna okkur starfsemi safnsins. Tveir bókasafns- og upplýs- ingafræðingar tóku á móti okkur og kynntu okkur áherslur safnsins sem felast meðal annars í góðu samstarfi við kennara og nemendur ásamt því að veita annan stuðning. Starfsmenn bókasafnsins eru mjög metnaðarfullir í störfum sínum. Á síðasta námsári skrifa nemendurnir lokaritgerð og stendur þá til boða hálfrar klukkustundar fundur með bókasafns- og upplýsingafræðingi. Mikil áhersla er lögð á að bókasafnið sé aðlaðandi, „góður staður til að vera á“. Bókaárás og bókmenntaviðburðir Bókasafns- og upplýsingafræðingar gera svokallaða „bóka- árás“ þegar þeir fara inn í kennslustundir í nokkrar mínútur og kynna nýja bók og höfund hennar. Með því er verið að vekja áhuga nemenda á lestri og góðum bókum. Í tengslum við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum er haldið „Nobels Party“. Þá eru veitt verðlaun fyrir lestur sem flestra bóka. Einnig er haldinn „Dagur bókarinnar“ (World Book Day) en þá velja nemendur og kennarar uppáhalds- bók sem er svo merkt með rós. Bókasafnið hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar, meðal annars var það valið bókasafn ársins 2010. Nationella skolbiblioteksgruppen stendur fyrir þessari viðurkenn- Sagt frá samspili birtu og skugga í almenningsbókasafninu í Malmö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.