Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 22
22 Bókasafnið 40. árg – 2016
Síðustu mánuði hefur verið unnið að gerð nýs vefvið-móts fyrir gegnir.is hjá Landskerfi bókasafna hf. Það leit dagsins ljós 15. febrúar 2016. Notendum sem fara
inn á slóðina gegnir.is er nú vísað áfram yfi r í nýja viðmótið
sem er sjálfstæður hluti af leitir.is. Slóðin fyrir nýja vefi nn er
leitir.is/gegnir. Auðvelt er að ferðast á milli vefviðmóta nýs
gegnir.is og leitir.is og leita ýmist aðeins í Gegni eða í öllum
þeim fj ölbreytta safnkosti sem er í leitir.is.
Rétt er að taka fram að breytingin á einungis við um vef-
viðmót Gegnis, það er gegnir.is, og tekur ekki til starfs-
mannaaðgangs Gegnis.
Markmið með nýjum vef
Markmiðið með því að skipta um vefviðmót Gegnis er
að bjóða upp á öfl ugan og nútímalegan vef. Gamli gegnir.
is sem fylgdi með í kaupunum á bókasafnskerfi nu Gegni
(Aleph) var barn síns tíma og hafði ekki verið þróaður í
mörg ár. Landskerfi hafði af því nokkrar áhyggjur að sú
staða gæti komið upp að vefurinn yrði ónothæfur í kjölfar
uppfærslna á Gegni og taldi heppilegra að stýra því hvenær
vefurinn færi úr almennri notkun. Þess ber einnig að geta
að við kaup á hugbúnaðnum sem liggur að baki leitir.is
(Primo) var hugsunin sú að sá vefur kæmi í stað gegnir.is og
væri fyrsta skref í áttina að kaupum á nýju bókasafnskerfi
framtíðarinnar. Vefumsjónarkerfi ð að baki leitir.is byggir á
tækni sem býður upp á fj ölþætta leitar- og umsýslumögu-
leika. Leitir.is var opnaður síðla árs 2011 og síðan þá hafa
leitir.is og gegnir.is keyrt samhliða með tilheyrandi óhag-
ræði varðandi reksturinn. Í kjölfar ábendinga frá notendum
um að Gegnisgögnin myndu „týnast“ innan um erlendu
gagnasöfnin í leitir.is var ákveðið að bjóða upp á leið til þess
að leita einungis í gögnum bókasafnanna (Gegnir) ásamt
því að bjóða upp á samleit í öllum gagnasöfnunum í leitir.
is. Réttlætingin fyrir því að setja upp sérstakt vefviðmót í
leitir.is fyrir Gegnisgögnin er að önnur íslensk gagnasöfn
sem eru í leitir.is eiga einnig sína eigin vefi , dæmi um slíkt
eru sarpur.is og Ljósmyndasafn Akraness. Því var nærtækast
að gegnir.is yrði sjálfstæður hluti af leitir.is. Vegferðinni við
þetta ferli verður lýst nánar hér á eftir.
Framkvæmdin
Verkefnið um nýtt vefviðmót á gegnir.is stóð yfi r í um níu
mánuði eða frá júní 2015 fram til febrúar 2016. Það teygði
anga sína víða og margir komu að vinnunni auk Lands-
kerfi s bókasafna svo sem bókasöfnin sjálf, vefhönnuður og
forritari auk kerfi sstjóra hjá hýsingarfyrirtæki. Upphafl ega
hugmyndin var að bjóða upp á aðgang að Gegni í gegnum
samleit í leitir.is. Þegar lengra leið kom fram hugmynd
um að bjóða einnig upp á möguleikann á að leita aðeins í
Gegnisgögnum. Nokkrar hugmyndir urðu til um útfærslu
en eftir samráð við Alefl i og aðra sérfræðinga varð niður-
staðan sú að gera það í gegnum sérstakan fl ipa í leitir.is.
Með því að smella á fl ipann „Leit í Gegni“ í leitir.is getur
notandi fært sig yfi r á Gegnishluta síðunnar sem hefur
eigið útlit og er auðkennd með bláum lit. Vilji notandi leita
samtímis í öllum þeim fj ölbreytta safnkosti sem er í leitir.is
smellir hann á „Leit í leitir.is“ fl ipann. Græni liturinn verður
áfram auðkennislitur leitir.is hlutans. Notaðir eru mis-
munandi litir á vefhlutana til auðvelda notendum að átta sig
á hvar þeir eru staddir.
Þegar ákvörðun um leiðarkerfi lá fyrir var næsta skref að
einangra Gegnisgögnin frá öðrum gagnasöfnum í leitir.is
þannig að hægt væri að leita eingöngu í þeim. Í því sam-
bandi þurfti að taka ýmsar ákvarðanir um útlit og aðgengi
að upplýsingunum. Búa þurfti til undirsíður og skilaboð
sem hentuðu nýju leitinni. Breyta þurfti reglum og still-
ingum til samræmis við þessa nýju leit og sem dæmi má
nefna að bjóða einungis upp á þær efnistegundir sem er að
fi nna í Gegnisgögnunum í ítarlegu leitinni í stað allra efnis-
tegundanna fyrir leit í öllu efni í leitir.is. Þrátt fyrir að gamli
vefurinn sé ekki lengur aðgengilegur lifa áfram sértækar
síður vegna skráningarumhverfi s Gegnis. Starfsfólk í skrán-
ingu þarf til dæmis að hafa aðgang að fullri færslu í gegnum
biðlara MARC-færslu (úr fullri færslu í leitir.is) ásamt
Nýtt vefviðmót á Gegni
– gegnir.is og leitir.is í eina sæng
Sveinbjörg Sveinsdóttir er menntuð sem rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla
Íslands (CS) og Technische Hochschule Darmstadt (Dipl. Ing.). Hún er
vottaður IPMA verkefnastjóri (B-vottun) og hefur lagt stund á nám í opinberri
stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hún starfar sem framkvæmdastjóri Landskerfi s
bókasafna hf. og jafnframt framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Sarps.
Telma Rós Sigfúsdóttir er menntuð sem bókasafns- og upplýsingafræðingur
(BA og Bibliotekar DB) frá Danmarks Biblioteksskole í Kaupmannahöfn og
kennari (B.Ed.) frá Kennaraháskóla Íslands. Hún starfar sem vefstjóri
hjá Landskerfi bókasafna hf. og hefur umsjón með safnagáttinni leitir.is.