Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 57
Bókasafnið 40. árg – 2016 57
Fallin er frá Helga Jónsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, fv. forstöðumað-
ur Bókasafns Menntaskólans í Kópavogi. Helga varð bráðkvödd að heimili sínu í
Reykjavík þann 17. janúar 2016. Hún fæddist í Reykjavík 20. maí 1939, ólst upp í
Reykjavík og bjó þar alla sína tíð. Foreldrar Helgu voru þau Jón Björnsson
Jónsson, 1899-1983, fulltrúi í Reykjavík og kona hans Sólveig Daníelsdóttir,
1898-1980, húsfreyja í Reykjavík. Eiginmaður Helgu var Tómas Tómasson,
auglýsingateiknari í Reykjavík, f. 1939. Hann lést árið 2012. Sonur þeirra er
Jón Bertel Tómasson f. 1960. Kona hans er Martina Tómasson f. 1969. Börn þeirra
eru Solveig Helga f. 2003 og Magnús Karl f. 2008.
Árið 1978 lauk Helga stúdentsprófi frá máladeild Öldungadeildar Menntaskólans
við Hamrahlíð og B.A. - prófi í bókasafns- og upplýsingafræði og almennri bók-
menntafræði frá Háskóla Íslands í júní 1990. Sama ár var hún ráðin forstöðumaður
bókasafns Menntaskólans í Kópavogi og starfaði þar til hún lét af störfum árið
2008. Hún sinnti starfi sínu af alúð, dugnaði og samviskusemi.
Helga gekk til liðs við Samstarfshóp bókasafns- og upplýsingafræðinga í framhaldsskólum þegar hún réðst til
Bókasafns Menntaskólans í Kópavogi og tók þátt í störfum hópsins og var dugleg að mæta á fundi allt þar til hún
lét af störfum.
Helga var hógvær einstaklingur en dagsins önn á einyrkjasafni bauð ekki upp á mikinn tíma fyrir náin kynni en
við fundum að hún var gagnfróð kona og víðlesin og miðlaði þekkingu sinni af hógværð og yfirvegun. Helga var
dul á eigin hagi en smám saman kynntumst við skemmtilegri konu með góða kímnigáfu sem kom vel í ljós þegar
hópurinn brá undir sig betri fætinum og fór í fræðslu- og kynnisferð til Skotlands árið 2007. Þar gáfust meiri
tækifæri til nánari kynna og samræðna sem voru einkar ánægjuleg og hver sem kynntist Helgu er ríkari eftir. Í ljós
kom að Helga hafði búið eitt ár í Glasgow þannig að hún var þar að koma á fornar slóðir sem góðar minningar voru
bundnar við. Gaman var að hitta Helgu á förnum vegi og spjalla við hana. Barnabörnin voru henni mjög kær og
miklir gleðigjafar.
Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum kveður Helgu með virðingu og þakklæti og sendir syni
hennar og hans fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur sem og öðrum ættingjum hennar og vinum.
Minning
Helga Jónsdóttir 1939-2016