Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 38

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 38
38 Bókasafnið 40. árg – 2016 Skyggnst yfi r pollinn – Bókasöfn í Svíþjóð og Danmörku sótt heim Auður M. Aðalsteinsdóttir Bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands 2005. Bókasafnsfræðingur í Kvennaskólanum í Reykjavík frá árinu 2006. Ása Þorkelsdóttir Bókasafns og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands 1989. Forstöðumaður bókasafns Borgarholtsskóla frá 2013. Ásdís H. Hafstað Bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands 1983. Forstöðumaður bókasafns Menntaskólans við Hamrahlíð. Ásgerður Sveinsdóttir Íslenskufræðingur og Master í ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands 2011. Bókavörður og vefstjóri í Tækniskólanum frá 2010 Bókasafns- og upplýsingafræðingar í framhalds-skólunum, sem eru félagar í SBF (Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum), hittast reglulega yfi r vetrartímann og ræða starfi ð í skólunum. Hópurinn var lengi búinn að gæla við þá hugmynd að fara saman í fræðsluferð til Norðurlandanna. Slík ferð var farin til Skotlands haustið 2007 (til Glasgow og Edinborgar) og löngu kominn tími til að endurtaka leikinn. Ákveðið var að sækja um Erasmus+ styrk til Rannís til að fj ármagna ferðina. Reglur varðandi styrkumsókn eru þannig að ein- staklingar geta ekki sótt um styrk heldur þarf hver skóli að gera það fyrir sína starfsmenn. Ekki eru alþjóðafulltrúar í öllum skólum svo í nokkrum tilfellum þurftu félagsmenn að sjá um þetta sjálfi r. Allt gekk að óskum og allir skólar sem sóttu um styrk fyrir sitt fólk fengu jákvætt svar. Þátt- takendur í ferðinni voru eftirfarandi 13 starfsmenn frá sjö skólum á höfuðborgarsvæðinu sem standa sameiginlega að greininni: Auður M. Aðalsteinsdóttir og Svanhildur Agnarsdóttir, Kvennaskólinn, Ása Þorkelsdóttir, Borgar- holtsskóli, Ásdís Hafstað og Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Ásgerður Sveinsdóttir, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, María Bjarkadóttir og Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir, Tækniskólinn, Ingibjörg Jónsdóttir, Menntaskólinn í Kópavogi, Kristín Björgvinsdóttir og Þóra Kristín Sigvaldadóttir, Fjölbrautarskólinn við Ármúla og Þórdís T. Þórarinsdóttir, Menntaskólinn við Sund. Að mörgu er að hyggja þegar sótt er um styrk í Erasmus+. Í fyrsta lagi þarf að ákveða hvert á að fara, hvað á að kynna sér og hver á að vera ávinningur ferðarinnar. Hópurinn skoðaði vefi ýmissa skóla í Malmö og Kaupmannahöfn og síðan var haft samband við þá sem voru áhugaverðastir og athugað hvort þeir vildu taka á móti okkur. Móttöku- skólar hópsins voru þrír í Malmö og einn í Kaupmanna- höfn. Einnig var haft samband við almenningsbókasafnið í Malmö og það heimsótt ásamt aðalsafninu í Kaupmanna- höfn, Svarta demantinum og Árnastofnun. Þegar styrkurinn var í höfn og allir móttökuskólar búnir að bjóða okkur velkomnar var okkur ekkert að vanbúnaði. Flug og hótel voru pöntuð og allir gátu farið að hlakka til. Ferðin var skipulögð 17. – 23. maí 2015. Värnhemsskolan – brúar bilið á milli skóla og atvinnulífs Fyrsti skólinn sem við heimsóttum var Värnhemsskolan í Malmö. Skólinn er verkmenntaskóli þar sem bæði eru kenndar ýmsar starfs- og iðngreinar og hefðbundnar grein- ar til stúdentsprófs. Einkunnarorð skólans eru „Värnhems- skolan – brúar bilið á milli skóla og atvinnulífs”. Skólinn á sér langa sögu en hann var stofnaður árið 1831 sem sunnudagaskóli þar sem fátækir lærlingar fengu til- sögn í lestri, skrift og reikningi en ekki þótti við hæfi að Ingibjörg Rögnvaldsdóttir MPA frá Háskóla Íslands 2007 Forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar Tækniskólans Kristín Björgvinsdóttir MSc Forstöðumaður bókasafns Fjölbrautaskólans við Ármúla Þórdís T. Þórarinsdóttir MLS Forstöðumaður Bókasafns og upplýsingamiðstöðvar Menntaskólans við Sund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.