Bókasafnið - 01.06.2016, Qupperneq 16
16 Bókasafnið 40. árg – 2016
Opið rými Borgarbókasafnsins í Grófarhúsi kallaði á margvíslega möguleika til að bjóða upp á umgjörð fyrir viðburði, sýningar og uppákomur af ólíku tagi.
Meðal þess sem bókasöfn starfa stöðugt að er að lokka
ungmenni inn á bókasafnið, en það er þekktur
vandi að stór hluti gesta tilheyrir sitthvorum
enda aldursskeiðsins, börn og eldri borgarar.
Einnig hafði starfsfólk safnsins hug á að efna
til viðburða sem byðu upp á að sköpunar-
kraftur ungs fólks nyti sín, en bókasöfn eru
einmitt kjörinn (hlutlaus) vettvangur fyrir
sköpunargleði af ólíkum toga.
Árið 2007 var ákveðið að efna til viðburðar á Borg-
arbókasafni Reykjavíkur sem fékk heitið Ljóðaslamm.
Hugmyndin var innblásin af grein úr breska tímaritinu
Time Out, en þar stóð einhverskonar frístundamiðstöð fyrir
árlegu ljóðaslammi fyrir unglinga í úthverfi , einmitt með
það að markmiði að bjóða þeim upp á vettvang til að fi nna
eigin leiðir til að takast á við ljóðið annarsvegar og hins-
vegar að fi nna farveg fyrir þörf unglinga til að koma fram
og tjá sig. Lýsingarnar voru svo skemmtilegar að það þótti
spennandi að reyna eitthvað svipað. Hugmyndin um að
hafa þema á hverju slammi kom líka úr greininni.
Frá upphafi var ákveðið að fara afar frjálslega með hugtakið
ljóðaslamm. Samkvæmt ströngustu skilgreiningum er það
skylt rappi, orðinu tónlist / hljómorðum og er kannski best
lýst þannig að það gangi út á hraðan og kraftmikinn fl utn-
ing, oft með nokkrum pólitískum undirtónum. Flutningur
ljóðsins skiptir semsagt máli, líkami og nærvera skáldsins á
sviðinu í ham; andstæða við kyrrlátan lestur sem svo oft er
hvað helst tengdur ljóðinu.
Það var talið vænlegast að galopna þetta hugtak og í þeirri
skilgreiningu sem lögð er Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins
til grundvallar gengur ljóðaslammið fyrst og fremst út á að
koma ljóðinu á framfæri sem sviðslist. Það getur falið í sér
allt sem tengist sviðslistum (tónlist (undirspil/millispil),
hljóðmynd, leiklist, dans, leikrænar hreyfi ngar, leikmunir,
ljósasjó myndasýningar og svo framvegis) og gjörningum,
en mörg atriðanna eru mjög í anda gjörninga. Sem dæmi
má nefna atriði þegar stúlka hlóð upp stafl a af bókum
meðan hún fl utti ljóð um bóklestur. Á endanum hvarf hún
bakvið bókastafl ana.
Í leiðbeiningum segir eftirfarandi:
„Ljóðaslamm felst í fl utningi frumsamins ljóðs / ljóða á
íslensku þar sem áherslan er ekki síður á fl utninginn,
„performansinn“ eða gjörninginn, en á ljóðið sjálft.
Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til
ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðafl utning
sem sviðslist og miðað við að fl ytjandi / fl ytj-
endur fari með ljóðið samhliða tónlist, mynd-
list eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur
eða hópur getur fl utt ljóðið.“
Reglan er sú að ljóðið (eða textinn, við skil-
greinum ljóð líka mjög opið) verður að vera
óbirt,frumsamið og á íslensku og að gæta verður
þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og/eða
hópum.
Fimm manna dómnefnd velur þrjú bestu atriðin. Í henni
sitja tveir starfsmenn Borgarbókasafns. Aðrir dómnefndar-
meðlimir hafa verið rithöfundar, tónlistarfólk og leikarar,
meðal annars Bragi Ólafsson, Stefán Máni, Ragnheiður
(Heiða) Eiríksdóttir, Óttarr Proppé, Bóas Hallgrímsson og
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir.
Kynnar skipta miklu máli: þar hafa komið fram Bóas Hall-
grímsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Freyr Eyjólfsson og
Ugla Egilsdóttir svo nokkrir séu nefndir.
Dagskrárnar hafa einkennst af hugmyndaauðgi, krafti og
frumleika en þemun hafa verið „spenna“, „hrollur“, „væmni“,
„sjálfstæði“, „myrkur“, „bilun“, „af öllu hjarta“ og „fl ótti“.
Það er gaman að rifj a upp að Halldóra Ársælsdóttir, þá ekki
orðin 15 ára gömul, var sigurvegari fyrsta ljóðaslammsins.
Hún söng eigið ljóð sem nefndist „Verðbréfadrengurinn“
við lagið „Litli trommuleikarinn“ og spilaði hún sjálf undir
á gítar. Atriðið átti seinna eftir að vekja nokkra athygli í
netheimum (upptaka var sett á youtube og á heimasíðu
Borgarbókasafns), en textinn fj allar um verðbréfagaur sem
er búinn að tapa öllu. Þess ber að geta að atriðið var fl utt
í febrúar 2008 og því ljóst að þessi 14 ára stúlka var ansi
forspá! Allavega framsýnni en margur bankastjórinn, svo
ekki sé talað um stjórnmálamenn.
Ljóð með læti
– Ljóðaslamm á Borgarbókasafni
Úlfhildur Dagsdóttir er MA í almennri bókmenntafræði frá HÍ.
Heimasíða Úlfhildar er garmur.is/varulfur.