Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 19
Bókasafnið 40. árg – 2016 19
sem það er í gegnum samskipti við aðra, þátttöku, menn-
ingu og listir.
Síðast en ekki síst er talað um að Borgarbókasafnið sem
fyrirmynd þar sem það er upplýsinga- og menningar-
miðstöð sem gegnir forystuhlutverki meðal almennings-
bókasafna landsins og sækir fyrirmynd sína til fremstu safna
heims.
Samhliða því að setja safninu nýja stefnu var einnig sam-
þykkt nýtt skipurit fyrir Borgarbókasafnið. Settar voru á
stofn þrjár nýjar deildir sem starfa þvert á sex starfsstaði
safnsins. Stjórnendur verða 7 auk borgarbókavarðar. Safn-
stjóri aðalsafns í Grófinni er jafnframt staðgengill borgar-
bókavarðar en aðrir stjórnendur bera titilinn deildarstjóri
sem er til samræmis við starfsheiti innan menningar- og
ferðamálasviðs. Tveir deildarstjórar stýra hvor um sig
tveimur menningarhúsum. Stjórnun menningarhúsa í Sól-
heimum og í Kringlunni var sameinuð undir einn hatt og
sömuleiðis eru menningarhúsin í Spönginni og í Árbæ.
Deildarstjóri fræðslu, miðlunar og viðburða hóf störf um
áramótin 2015. Enn hefur ekki verið auglýst eftir deildar-
stjóra þjónustu- og þróunardeildar sem sinna mun þjónustu
og þróun hennar innan safnsins. Rekstrardeild er stýrt af
skrifstofustjóra Borgarbókasafnsins.
Starfsemi Borgarbókasafnsins hefur verið að taka miklum
breytingum hin síðari ár til að mæta breyttu samfélagi og
kröfu um fjölbreyttari þjónustu. Störf innan almennings-
bókasafna hafa breyst og nauðsynlegt að ráða inn í söfnin
fólk með alls kyns hæfni enda hafa hæfniskröfur til starfs-
fólks almenningasbókasafna breyst afar mikið síðastliðinn
áratug hérlendis sem og erlendis. Almenningsbókasöfn
snúast fyrst og fremst um fólk. Starfsfólk þarf fyrst og
fremst að hafa áhuga á fólki til að starfa þar. Auðvitað sakar
ekki að vera vel að sér í bókmenntum en það er ekki síður
mikilvægt að hafa á að skipa starfsfólki sem er fært um að
koma fram, sinna sérverkefnum sem lúta að skipulagðri
dagskrá, svo sem eins og leiðsögnum um sýningar, stýra
smiðjum, leshringjum, kenna á nýja tækni eins og t.d.
rafbækur, spjaldtölvur, lesbretti svo fátt eitt sé nefnt. En
fyrst og fremst þarf starfsfólk bókasafna að vera opið fyrir
nýjungum og fagna fjölbreytileikanum sem einkennir sam-
félagið og litar mannlífið.
Við Borgarbókasafnið starfar nú fólk úr ýmsum geirum og
hefur fjölbreytni meðal starfsfólksins margfaldast á síðari
árum. Það hefur m.a. á að skipa bókavörðum, deildarbóka-
vörðum, og verkefnastjórum sem eru menntaðir bókasafns-
og upplýsingafræðingar, sagnfræðingar, íslenskufræðingar,
kennarar, leikskólakennarar, bókmenntafræðingar, leikarar,
leiðsögumenn, með próf í tungumálum, hönnun, menn-
ingarmiðlun, menningarstjórnun, mannauðstjórnun og
myndlist. Mannauðurinn er frábær og hjarta starfseminnar
og það veit á bjarta framtíð fyrir stærsta almenningsbóka-
safn landsins.
Heimildir:
Borgarbókasafn Reykjavíkur. (E.d.). Stefna Borgarbókasafns
Reykjavíkur 2015-2020. Sótt af http://borgarbokasafn.is/node/430