Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 27
Bókasafnið 40. árg – 2016 27
sem þeir höfðu árið 2014. Í sömu könnun kemur hins
vegar fram að 81% félaga SBU voru ánægðir í starfi sínu
árið 2014, sem er fjórða hæsta hlutfall meðal aðildarfélaga
BHM.
Stjórn og störf félagsins
Stjórn félagsins er skipuð fimm aðilum: formanni, varafor-
manni, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda, sem kosnir eru
til tveggja ára í senn. Kosning fer fram á aðalfundi félagsins
í mars eða apríl ár hvert. Hlutverk félagsins er að standa
vörð um kjaraleg réttindi félagsmanna, að semja um kaup
og kjör þeirra, að stuðla að samstarfi við önnur stéttarfélög
og að fræða félagsmenn um réttindi þeirra og skyldur.
Stjórnin gætir jafnframt eigna félagsins og ber ábyrgð
á vörslu þeirra, beitir sér fyrir því að trúnaðarmenn séu
kjörnir í samræmi við lög og reglur og er málsvari félagsins
út á við. Þá styrkir félagið verkefni sem stuðla að framgangi
stéttarinnar, eitt verkefni á ári, allt að 200.000 krónum og er
það í verkahring stjórnar að auglýsa eftir styrkbeiðnum og
úthluta styrk.
BHM og þjónustuskrifstofan
Þar sem SBU er eitt aðildarfélaga BHM hafa félagsmenn
aðgang að ýmsum sjóðum og styrkjum sem ákvarðast af því
hjá hvaða vinnuveitanda þeir starfa. Upplýsingar um sjóði
og styrki má finna á vef SBU og þar má sækja rafrænt um
úthlutanir. BHM hefur einnig boðið upp á fræðsludagskrá
á hverjum vetri sem félagar í SBU geta nýtt sér.
SBU er aðili að samningi um samstarf og rekstur sameigin-
legrar þjónustuskrifstofu fyrir fimm aðildarfélög BHM.
Þjónustuskrifstofan er til húsa í Borgartúni 6 og heldur úti
vefnum stett.is. Meðal verkefna þjónustuskrifstofunnar er
að aðstoða félagsmenn við hvers kyns kjara- og réttindamál
eða ágreiningsmál sem varða framkvæmd og túlkun á kjara-
samningum inni á vinnustöðum. Þangað geta félagsmenn
snúið sér með lögfræðileg álitamál sem falla undir starfssvið
stéttarfélaga, til þess að fá aðstoð við gerð og túlkun ráðn-
ingarsamninga eða við útreikning á launum og innheimtu ef
þörf er á.
Stjórn SBU hvetur félagsmenn sína til að kynna sér þá
þjónustu sem félagsmönnum býðst og leita óhikað til þjón-
ustuskrifstofunnar eða stjórnar félagsins með kjara- og rétt-
indamál.
Árið 2015 hjá SBU
Árið 2015 einkenndist af kjaradeilum við ríkið og markaðist
starf stjórnar félagsins af því. Félagið fór fram ásamt 17
öðrum félögum innan BHM með kröfur um að menntun
skyldi metin til launa. Samningaviðræður gengu illa og
kjaradeilan endaði með verkfallsaðgerðum sem stóðu í 10
vikur og gerðardómi sem féll í ágúst. Félagsmenn SBU tóku
ekki beinan þátt í verkfallsaðgerðum en félagið tók þátt í að
fjármagna framkvæmdina með greiðslum í sameiginlegan
verkfallsjóð. Félagið átti fyrir talsverða upphæð og þurfti því
ekki að skuldsetja sig eða gera sérstakar ráðstafanir vegna
kostnaðarins. Í kjölfarið tóku svo við kjarasamningar við
Reykjavíkurborg sem lauk með samþykktum kjarasamningi
rétt fyrir árslok. Samningaviðræður við önnur sveitarfélög
standa enn yfir þegar þessi grein er skrifuð.
Stjórn SBU, frá vinstri: Hallfríður Kristjánsdóttir, Dagný Jónsdóttir, Sigrún Guðnadóttir, Óskar Þór Þráinsson og Óskar Guðjónsson