Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 30

Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 30
30 Bókasafnið 40. árg – 2016 Ljósmyndasafn Akraness hefur allt frá stofnun safns-ins árið 2002 haldið úti myndavef þar sem valdar myndir í eigu safnsins eru birtar. Myndavefi nn hann- aði Jóhann Ísberg og er vefurinn gagnvirkur, þ.e. hægt er að senda inn ábendingar um myndir og aðstoða við að full- skrá þær. Myndavefurinn hefur frá upphafi verið gífurlega vinsæll og innsendar upplýsingar frá hollvinum tvær til þrjár alla daga ársins. Á forsíðunni er gefnir þrír leitarmöguleikar. Hægt er að slá inn leitarorð eða númer, velja efnisorðafl okk og einnig er hægt að velja eftir ljósmyndurum. Auk þess er boðið upp á ítarleit. Frá upphafi hefur verið leitast við að afl a heimilda um myndir og frá árinu 2014 hafa verið haldnir opnir grein- ingarfundir eða vinnufundir á Bókasafni Akraness, þar sem áhugasamir hafa mætt til að aðstoða við fullskráningu mynda. Fundirnir hafa verið vel sóttir og ómetanlegar upp- lýsingar fengist um atburði, húsasögu og fl eira sem tengist sögu Akraness og nágrennis. Á myndinni eru þátttakendur á fyrsta vinnufundi ársins, þann 20. janúar 2016, hjá Ljósmynda- og Héraðsskjalasafni Akraness. Lengst til hægri er Nanna Þóra Áskelsdóttir deildarstjóri Ljósmyndasafns Akraness. Jóhann Ísberg hefur unnið að þróun vefsins ásamt starfs- fólki safnsins þeim Nönnu Þóru Áskelsdóttur deildarstjóra og Halldóru Jónsdóttur bæjarbókaverði og hefur sú vinna skilað sér í aðgengilegri og betri vef, og nú er hann einn af íslensku gagnasöfnunum á leitir.is. Telma Rós Sigfúsdóttir vefstjóri hjá Landskerfi bókasafna hf. hefur einnig komið að þróunarvinnunni, en Landskerfi bókasafna rekur sem kunnugt er safnagáttina leitir.is. Nú hefur sem sé sú vinna borið árangur og er myndavefurinn einn þeirra íslensku gagnasafna sem þar eru leitarbær. Ljósmyndasafnið hefur notið styrks frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands, áður Menningarsjóði Vesturlands, en án þess stuðnings hefði ekki verið hægt að fara í þá þróunarvinnu sem nauðsynleg var til að ná settu marki. Auk þess hefur Akraneskaupstaður hefur stutt dyggilega við verkefnið, en rekstur ljósmyndasafns er e kki lögboðið hlutverk sveitar- félaga. Um langt árabil hefur verið mikil samvinna í skráningu og heimildaröfl un milli Ljósmyndasafns og Haraldar Stur- laugssonar sem rekur ljósmyndavef af sömu gerð, vefurinn haraldarhus.is. Nú í dag er sá vefur í varðveislu Ljósmynda- safns Akraness. Ljósmyndasafnið hýsir ljósmyndir fj ölda ljósmyndara, bæði faglærðra og áhugaljósmyndara. Í safninu erum um 44.000 myndir. Myndir frá safninu hafa birst á sýningum og í fræðiritum og með því að vera á leitir.is verða myndir safnsins sýnilegri. Markmið Ljósmyndasafns Akraness er að gefa heildarmynd af þeirri ljósmyndamenningu sem stunduð hefur verið í bænum frá því að byrjað var að taka ljósmyndir á Akranesi. Meðal þekktra ljósmyndara í safninu er Árni Böðvarsson (1888-1977) ljósmyndari og sparisjóðsstjóri á Akranesi. Hann er meðal annars kunnur fyrir handlitaðar myndir. Ljósmyndasafnið er deild í Héraðsskjalasafni Akraness og deila þessi söfn húsnæði með Bókasafni Akraness og hafa undanfarin ár verið rekin sem ein rekstrareining undir stjórn Bókasafnsins. Samvinnan hefur gert söfnin að sterkum og öfl ugum einingum og í heild að öfl ugri menningarstofnun. Ljósmyndasafn Akraness Halldóra Jónsdóttir hefur B.A. próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands og diplomapróf í Opinberri stjórnsýslu frá H.Í. Hún starfar sem bæjarbókavörður á Bókasafni Akraness, en var auk þess á árunum 2007- 2015 forstöðumaður Héraðsskjala- og Ljósmyndasafns Akraness. Akranes, ljósmyndari Árni Böðvarsson 1888-1977

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.