Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Page 32

Bókasafnið - 01.06.2016, Page 32
32 Bókasafnið 40. árg – 2016 Ég stend fyrir utan útibú Borgarbókasafnsins í Kringlunni í hálfrökkri rétt eftir kvöldmatarleytið. Fáir eru á ferli enda er búið að loka Kringlunni. Ég tek upp há- tæknitölvuna mína, opna aðgang að orkugátt Kringlusafns og byrja að hakka mig inn. Ég næ að tengja saman tvö staf- brigði af þremur áður en tíminn rennur út. Næst opna ég vopnabúrið mitt og vel öfl ugan Xmp sundrara til þess að ráðast á orkugáttina. Hjartað fer að slá örar því um leið og fyrsta skotið ríður af veit ég að Andspyrnan fær aðvörun í hátæknitölvunum sínum um að árás sé hafi n á Kringlusafn. Árásin gengur vel og ég er búinn að eyðileggja fi mm af átta endurvörpum safnsins. Það sprettur út á mér kaldur sviti þegar ég sé unga stelpu nálgast mig með heyrnartól í eyrum og hátæknitölvu á lofti. Mér léttir þegar hún gengur áfram án þess að verja Kringlusafn. Ég hef nú eyðilagt orkugáttina og hefst handa við að setja upp mína eigin endurvarpa fyrir hönd Upplýstra og gleðst þegar grænn ljómi Upplýstra umvefur Kringlusafn. Næst geng ég í áttina að Grímu, styttunni fyrir utan Borgarleikhúsið, þar sem ég veit að ég get myndað hugarafl ssvið með tengingu við orkugáttir Kringlusafns og Grensáskirkju... Ofangreind lýsing hljómar eins hreinn skáldskapur en hún er lýsing á daglegum aðstæðum. Það geysar nefnlega stríð allt í kringum okkur. Ekki bara í Reykjavík og á Íslandi, heldur á heimsvísu. Það sem á sér raunverulega stað í ofan- greindri lýsingu er að ég er þátttakandi í risastórum “lífl eik” þar sem leikmenn þurfa að ferðast um með snjallsímann sinn (hátæknitölvuna) á milli raunverulegra staða sem hafa á einhvern hátt áhrif á huga okkar. Leikurinn kallast Ingress. Orkugáttirnar eru raunveruleg mannvirki svo sem listaverk, vegglist, sögulegir staðir, opinberar byggingar og aðrir mikilvægir menningarstaðir. Allar orkugáttir verða til út frá ábendingum frá leikmönnum sjálfum og fj ölgar því stöðugt eftir því sem leikmenn fi nna fl eiri menningarverðmæti á Íslensk bókasöfn þátttakendur í alþjóðlegu stríði Höfundur að leik Óskar Þór Þráinsson er BA í bókasafns- og upplýsingafræði og verkefnastjóri skjalamála og rafrænnar stjórnsýslu hjá Mosfellsbæ. athygli á tilvist íslenskra myndasagna og hvetja þá fáu listamenn sem gefa út myndasögur til dáða. Þessar sýningar hafa tekist vel, þarna hafa sýnt ólíkir og misþekktir mynda- sagnahöfundar: Bjarni Hinriksson, Lóa Hlín Hjálmtýsdótt- ir, Halldór Baldursson, Sunna Sigurðardóttir, Jan Pozok, Elísabet Rún og Elín Edda Þorgeirsdætur, Ingi Jensson og myndasöguteymið Sirrý og Smári, svo nokkrir séu nefndir. Einnig hefur safnið fengið erlendar myndasögusýningar, frá norræna myndasögufélaginu Nordicomics (staðsett í Helsinki) og frá Goethe-Institut. Þessum sýningum hafa fylgt myndasögusmiðjur sem hafa heppnast vel. Í það heila er starfsemi myndasögudeildarinnar í blóma, vinsældir myndasagnanna haldast stöðugar og vel hefur gengið að skapa jafnvægi milli þess að eiga það nýjasta og mest spennandi og að halda til haga verkum sem teljast klassísk eða markverð innan menningarheims mynda- sögunnar. Sjálf er myndasagan smátt og smátt að vinna sig upp úr skotgröfunum og skipa sér sess meðal annarra viðurkenndra listforma.

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.