Bókasafnið - 01.06.2016, Side 36
36 Bókasafnið 40. árg – 2016
Alþjóða skjalaráðið, ICA (International Council on Archi-ves), stendur árlega fyrir alþjóðlegum ráðstefnum þar sem fagfólk og hagsmunaaðilar koma saman og ræða
málefni sem varða skjalasöfn, meðferð og umsýslu gagna og
upplýsinga sem þar eru varðveittar.
Ráðstefna á Íslandi
Vorið 2014 var komið að máli við þjóðskjalavörð um að Þjóð-
skjalasafn Íslands yrði gestgjafi og samstarfsaðili ICA um þriðju
árlegu ráðstefnuna haustið 2015. Áður höfðu Þjóðskjalasafn Belgíu
og Borgarskjalasafn Girona á Spáni verið gestgjafar. Eftir að hafa lagt
fram tillögu að efni og umgjörð ráðstefnunnar var afráðið að hún skyldi
haldin í Reykjavík í lok september 2015. Þjóðskjalasafn gekk til samstarfs
við CP Reykjavík um framkvæmdina enda ærið verkefni að taka á móti svo
stórum og fj ölbreyttum hópi gesta með skömmum fyrirvara.
Reykjavík er vinsæl til ráðstefnuhalds og ekki var seinna vænna en að bóka
Hilton Reykjavík Nordica sem varð fyrir valinu sem vettvangur. Áætlanir
okkar gerðu ráð fyrir um 400 gestum víðs vegar að og í göngufæri eru hótel
í öllum verðfl okkum. Þegar upp var staðið voru skráðir til leiks rúmlega 500
gestir frá 80 löndum í öllum heimshornum. Margir gestanna nýttu tæki-
færið og skoðuðu sig um í borginni og nágrenni. CP Reykjavík skipulagði
hefðbundnar skoðunarferðir og Þjóðskjalasafn bauð gestum að heimsækja
Landnámssýninguna og Sjónarhorn í Safnahúsinu auk sýningar Borgar-
skjalasafns Reykjavíkur í Ráðhúsinu. Ráðstefnukvöldverðurinn var haldinn í
Hörpu og var þar boðið upp á sérsniðinn matseðil með íslensku yfi rbragði.
Alþjóðaráðstefna um skjalastjórn
og skjalavörslu á Íslandi 2015
Þema ráðstefnunnar
Ráðstefnan fór fram dagnna 28.-29. septem-
ber 2015. Dagana á undan voru námskeið
um skjalastjórn og skjalavörslu frá helstu
sérfræðingum heims í greininni og fundir
ýmissa nefnda og ráða Alþjóða skjalaráðsins.
Þema ráðstefnunnar var Archives: Evidence,
Security and Civil Rights. Ensuring trust-
worthy information og var samtals boðið
upp á 22 málstofur um efnið þar sem 74
fyrirlesarar hvaðanæva úr heiminum fl uttu
erindi. Málstofurnar voru fj ölbreyttar en
eins og yfi rskrift ráðstefnunnar ber með sér
var áherslan lögð á öryggi skjalasafna og
viðbrögð við ógnum sem að þeim steðja
og á upplýsingaöryggi með það að leiðar-
ljósi að tryggja réttindi borgaranna. Mikil-
vægi skjalasafna í mannréttindamálum var
viðamikið umfj öllunarefni. Einnig var sér-
staklega fj allað um það hvernig tryggja megi
áreiðanleika og uppruna skjala sem varða
réttindi.
Aðalræðumenn ráðstefnunnar drógu einnig
að sér athygli. Guðni Th . Jóhannesson,
dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands,
kom inn í stað Kára Stefánssonar sem
forfallaðist sem aðalræðumaður á síðustu
stundu. Guðni sagði frá persónulegri
reynslu sinni um að fá aðgang að gögnum á
skjalasöfnum. Gísli Guðjónsson, réttarsál-
fræðingur og prófessor emeritus við King‘s
College í London var aðalræðumaður seinni
Ungt íslenskt tónlistarfólk lék létta tónlist undir ráðstefnukvöldverði í Hörpunni.
Boðið var upp á standandi hlaðborð með úrvali íslenskra rétta
Brynja Björk Birgisdóttir er B.A. í sagnfræði og Cand.Philol. í fornleifafræði. Hún starfar sem sviðsstjóri á
upplýsingasviði Þjóðskjalasafns Íslands.
Njörður Sigurðsson er með MA-próf í sagnfræði. Hann starfar sem sviðsstjóri skjalasviðs Þjóðskjalasafns Íslands.