Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Side 45

Bókasafnið - 01.06.2016, Side 45
Bókasafnið 40. árg – 2016 45 Hægt var að skrá sig í alla ferðina, sem við gerðum, eða velja bara eitt eða tvö lönd eða staka daga. Þátttökugjald var 300 evrur eða um 43.000 krónur, í því fólst gisting, morgunverður og hádegismatur. Oft var kvöldmaturinn niðurgreiddur með ýmsum styrkjum eða jafnvel í boði einhverra stofnana, fyrirtækja eða bókavarða- félaga. Hægt var að leigja hjól til ferðarinnar og notfærðum við okkur það. Farangur var fluttur á milli staða en þátttakendur fluttu með sér á hjólinu það sem þeir töldu sig þurfa yfir daginn. Matarbíllinn fylgdi okkur og þeir sem honum stjórnuðu settu upp mataraðstöðu og töfruðu fram fyrirtaks morgun- mat og hádegismat sem oftast var neytt utandyra. Eins og gera mátti ráð fyrir með ekki hærra þátttökugjaldi var gistingin ekki upp á margar stjörnur. Við gistum í litlum kofum á tjaldstæðum, í íþróttahúsi, á farfuglaheimilum og eina nóttina sváfum við á bókasafni (í hljóðbókunum). Til gamans má nefna að á hverju kvöldi var skipt í nýja hópa, það er hverjir ættu að sofa saman í húsi/herbergi. Þetta var mjög meðvitað og framfylgt mjög ákveðið til að hrista fólk sem best saman. Ferðasagan Þann 31. ágúst var valfrjáls dagur í Osló, heimsóknir í bóka- söfn fyrir hádegið og var úr sjö söfnum að velja. Eftir há- degi var málstofa í Høgskolen i Oslo og Akershus (HiOA): Discussion and debate in Norwegian libraries: Libraries as meeting places. Meðal fyrirlesara voru Ragnar Audunson, prófessor, sem kynnti norska bókasafnaumhverfið og nýleg lög (sett 2014) þar sem meðal annars kemur fram að bókasöfnin skulu vera óháðir fundarstaðir og vettvangur fyrir opinbera umræðu eða samtal í nærsamfélaginu. Hann minnti þó á að það er engin nýjung að ræða um að auka pláss og aðstöðu fyrir fundi en sú þörf er kannski komin aftur upp vegna alþjóða- væðingar og fjölmenningar. Bókasöfnin hafa nú nýtt hlut- verk að vera milliliður milli fólks og yfirvalda í fjölmenn- ingarlegu og rafrænu umhverfi nútímans og þau brúa bil á milli hópa samfélagsins. Kristin Danielsen, forstöðumaður Deichmanske bibliotek, ræddi áfram mikilvægi þess að bókasafnið væri þessi vett- vangur samtals og samneytis. Kristin er skelegg og sann- færandi í sínum málflutningi og hrífur mann auðveldlega með sér en það hefur líka gustað um hana og hennar stjórn- unarstíl. Aslak Sira Myhre, landsbókavörður, minnti á að bókasöfnin eru mikilvægari en nokkru sinni því búið er að loka mörg- um stöðum þar sem fólk var vant að hittast, hann nefndi til dæmis afgreiðslur pósthúsa og banka og kaupmanninn á horninu. Hann sagði forstöðumenn velja og meta sjálfir Höfundar

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.