Bókasafnið - 01.06.2016, Side 48
48 Bókasafnið 40. árg – 2016
Næsta dag hjóluðum við næstlengstu dagleiðina, góða 90
km, og tvö stór bókasöfn heimsótt, bókasafnið í Viborg
og bókasafnið í Randers. Á báðum þessum söfnum, eins
og öðrum dönskum söfnum sem við heimsóttum, eru fjöl-
breytt verkefni í gangi og rétt að minna á að söfnin geta sótt
um verkefnastyrki til danska menningarmálaráðuneytisins.
Hugtök eða verkefni eins og hack your library, maker space,
test lab, pop up experimentarium, multimodal storytelling, bor-
gersevice, meråbent, voru kynnt og útlistuð og má lesa meira
um þau á heimasíðum bókasafnanna.
Síðasta dag ferðarinnar, 10. september, hjóluðum við
rakleitt frá Randers til Árósa og nú höfðum við allt í einu
nægan tíma svo einum stað var bætt inn, Maker Space,
sem er tækniklúbbur rekinn í samstarfi bókasafna Árósa.
Við skoðuðum Statsbiblioteket, háskólasafnið sem m.a.
þjónar sem millisafnalánabókasafn fyrir alla Danmörku. Við
komum líka að elliheimili þar sem heimilisfólki er boðið í
hjólaferðir. Þessi skemmtilega hugmynd, Hjólað óháð aldri,
hefur skotið rótum hérlendis líka og má benda á samnefnda
Facebook-síðu þar sem áhugasamir geta kynnt sér verkefnið
og skráð sig sem sjálfboðaliða.
Hópurinn frá elliheimilinu hjólaði með okkur síðasta
spölinn og hjólað var í þéttum hópi gegnum miðbæinn og
að Dokk1, þessari glæsibyggingu sem hýsir aðalsafn Árósa
og „Borgerservice“ og var opnuð fyrr um sumarið. Þarna var
tekið á móti okkur með lúðrablæstri, blöðrum og fánum og
síðan var móttaka inni og matur og gleði fram eftir kvöldi.
Þar með lauk þessari hjólaferð. Við hjóluðum 735 km á tíu
dögum, um þrjú lönd í fjölbreyttu landslagi og á alls konar
vegum, sigldum með þremur ferjum, þrjár málstofur voru
haldnar og við heimsóttum nálægt 30 söfn og stofnanir,
þar með talið Cykelköket í Gautaborg og Danmarks
Cykelmuseum í Aars.
Lokaorð
Eftir ferðina er okkur efst í huga gott skipulag á öllu, hve
vel gekk að stjórna umferð 80–90 manna hjólahóps um allt
frá þröngum skógarstígum upp í hraðbrautir. Þægileg og
afslöppuð samskipti fólks sem kom frá fjölmörgum Evrópu-
löndum, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu, og notaleg
samvera. Faglegur metnaður stjórnenda og mikil gróska
í málefnum almenningsbókasafna blasti alls staðar við.
Áherslan var frekar á að kynna átaks- og þróunarverkefni en
að sýna söfnin sjálf. Fjölmiðlar gerðu ferðinni góð skil enda
vel undirbúnir, skipuleggjendur höfðu ekki vanrækt heima-
vinnuna sína þar heldur, enda snar þáttur í hugmyndafræði
hjólaráðstefnusamtakanna að útbreiða málefni bókasafna
með öllum ráðum og miðlum.
Næsta ferð verður í Kanada, nánar tiltekið í Ontario-fylki
dagana 5.-11. ágúst. Hún hefst og endar í nágreni Toronto
og þaðan er beint flug til Columbus, Ohio, þar sem IFLA-
ráðstefnan hefst þann 13. ágúst. Áhugasamir eru hvattir til
að fylgjast með vefsíðu og Facebook-síðu Cyc4Lib.
Athugasemd
1. Hugtakið „unconference“ hefur verið haft um fundi
eða samkomur sem þátttakendur stjórna og leiða sjálfir
og sneiða þá hjá ýmsu sem einkennir hefðbundnar
ráðstefnur eins og til dæmis niðurnegldri dagskrá, ráð-
stefnugjöldum, styrktum kynningum og yfirbyggingu.
Fáeinar vefslóðir
Vefur Cyc4Lib: http://www.cyclingforlibraries.org
Chalmers: http://www.lib.chalmers.se/
Deichmanske bibliotek, Oslo: https://www.deichman.no/sites/default/
files/deichmans_strategi_folder.pdf
Dokk1: https://dokk1.dk/om-dokk1
Hjørring: http://www.bibliotekerne.hjoerring.dk/
Högskolen Väst: http://www.bibliotek.hv.se/sv/om-biblioteket
Vesthimmerlands biblioteker https://www.vhbib.dk/
Hjørring bibliotek