Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2016, Qupperneq 56

Bókasafnið - 01.06.2016, Qupperneq 56
56 Bókasafnið 40. árg – 2016 námsrými og þjónustu vekur eftirtekt og einnig vangaveltur varðandi kennslufyrirkomulag og það hvernig nemendur læra. Talið er að einungis lítill hluti af námi fari fram í hefð- bundnum fyrirlestrum en stærsti hlutinn fari fram með óformlegum hætti og meðal annars utan kennslustofunnar. Þess vegna eru það ekki bara kennslustofurnar sem skipta miklu máli heldur allt það umhverfi sem háskólarnir bjóða upp á og þar gegna háskólabókasöfnin mikilvægu hlutverki sem þekkingarveitur og námssetur. Mikil áhersla er á almenna þátttöku nemenda í kennslu- stundum og að þeir fái aðstöðu til að læra þegar og við þær aðstæður sem hverjum og einum hentar, hvort sem það er sitjandi, liggjandi, í einrúmi eða fjölmenni, þögn eða skvaldri. Námsrýmið þurfi að vera aðlaðandi, fjölbreytt, sveigjanlegt og umfram allt þannig að hverjum og einum líði vel. Mörkin milli náms, starfs og einkalífs hafa rofnað og það kallar á meiri sveigjanleika og krafan um aðgang að vinnuaðstöðu allan sólarhringinn verður sífellt háværari. Með nútíma tækni færist safnkostur háskólabókasafna æ meira út fyrir veggi safnanna og verður aðgengilegur hvar sem er og hvenær sem er. Þetta veldur því að auknar áherslur verða á fjölbreytta aðstöðu og þjónustu innan safnanna í stað varðveislu prentheimilda. Nútíma háskóla- bókasafn hefur margs konar hlutverki að gegna sem þekk- ingarmiðstöð, vinnustaður, samverustaður og griðastaður þar sem boðið er upp á víðtæka þjónustu og ráðgjöf meðal annars varðandi útgáfu í opnum aðgangi. Náið samstarf við hið akademíska umhverfi skiptir miklu máli og að hlusta á óskir notenda, bregðast við og breyta. Sífellt fleiri háskólabókasöfn eru að auka samstarf við önnur þjónustu- svið háskólanna og koma upp alhliða þjónustuverum þar sem nemendur leita alls kyns upplýsinga og ráðgjafar og það er kannski kominn tími til að huga meira að slíku hér hjá okkur. Í þessum anda var tölvu- og bókasafnsþjónusta starf- rækt undir einum hatti síðustu árin áður en Kennaraháskóli Íslands var sameinaður Háskóla Íslands. Við sameininguna var skorið á þetta samstarf og stigið skref afturábak og úr takti við það sem þróunin er í vestrænum háskólum í dag. Náið samstarf ritvers og bókasafns Menntavísindasviðs síðan 2009 er þó spor í rétta átt. Samstarfið hefur gefist afskaplega vel og komið bæði bókasafni og ritveri til góða. Núna í byrjun árs 2016 var einnig opnað ritver í húsakynn- um Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Heimildir NUAS. (e.d.). Member institutions. Sótt af http://nuas.org/university/ NUAS joint conference 2015: Co-creating learning environments – collaboration across expertise: Aarhus 18-20 November 2015. (2015, 24. nóvember). Sótt af http://nuas15.au.dk/ Uppsala universitet. (e.d.). Uppsala universitetsbibliotek: Om biblio- teket. Sótt af http://www.ub.uu.se/om-biblioteket/
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.