Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Movie Star hvíldarstóll Verð 433.000,- Vertu upplýstur! blattafram.is MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI ÞOLENDUR OG GERENDUR KYNFERÐISOFBELDIS PERSÓNULEGA. ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI? Fylgist með okkur á faceboock Kringlunni 4c – Sími 568 4900 KÁPUR FYRIR VETURINN HVAÐ HENTAR ÞÍNU STARFSFÓLKI? Hjá okkur færðu ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni. • Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti. • llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum. • Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi. • Brakandi fersk salöt og ávexti. • Við komum til móts við ykkar óskir kryddogkaviar.is kryddogkaviar@kryddogkaviar.is Sími 515 0702 og 515 0701 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Túnikur Str. S-XXL 3 litir Kr. 5.900 Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is Dagana 23.-24. september fer fram á Akureyri alþjóðleg og þverfagleg ráðstefna um stjórnarskrárendur- skoðun. Ráðstefnan hefst í Háskól- anum á Akureyri í dag kl. 10 og henni lýkur á morgun klukkan 15:50. Hún er öllum opin án endurgjalds. Ráðstefnan er haldin í samstarfi forsætisráðuneytis, stjórnarskrár- nefndar og Háskólans á Akureyri. Markmiðið er að efna til upplýstrar umræðu um málefni stjórnarskrár- innar í aðdraganda alþingiskosn- inga. Upphafsávarp á ráðstefnunni flyt- ur Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands. Fjöldi innlendra og erlendra fræðimanna flytur erindi um marg- víslegar hliðar stjórnarskrárendur- skoðunar hér á landi og erlendis. Sjá nánar í dagskrá málþingsins. Að loknu ávarpi Sigurðar Inga Jó- hannssonar forsætisráðherra í lok fyrri dags ráðstefnunnar, munu fara fram pallborðsumræður fulltrúa stjórnmálaflokkanna í stjórnarskrár- nefnd. Rætt um endur- skoðun stjórnarskrár Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka Íslands, og Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri verðbréfasviðs, voru í gær sýknaðir af öllum kröfum slitastjórnar bankans. Kröfurnar námu 1,2 milljörðum auk vaxta vegna fjártjóns sem þeir áttu að hafa valdið bankanum með at- höfnum sínum eða athafnaleysi í tengslum við hlutabréfakaup á árun- um 2007-2008. Þá var slitastjórninni gert að greiða Sigurjóni og Yngva fimm milljónir í málskostnað. Héraðsdómur hafði áður dæmt Sigurjón og Yngva til að greiða sam- tals 237,7 milljónir í skaðabætur. Bankinn keypti tryggingu Málið snýst um kaup bankans á hlutabréfum í bankanum sjálfum frá 7. nóvember 2007 til 25. júlí 2008 fyrir 1,208 milljarða í fimm viðskiptum. Sagði í stefnu málsins að saknæmið hefði falist í því að kærðu hefðu „af ásetningi eða stórfelldu gáleysi“ gefið samþykki fyrir umræddum kaupum. Vísar Hæstiréttur til ráðningar- samnings stjórnendanna þar sem bankinn skuldbatt sig til að taka vá- tryggingu, svokallaða hefðbundna stjórnendatryggingu, sem eigi að bæta tjón af athöfnum eða athafna- leysi stjórnenda og taldi Hæstiréttur að bankinn hefði firrt sig rétti til að krefja þá um bætur. tfh@mbl.is Sýknaðir af kröfum Landsbankans Yngvi Örn Kristinsson Sigurjón Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.