Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016 Vegna mikillar sölu vantar okkur fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, á söluskrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum, endilega hafðu samband sem fyrst, í síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533-4200 eða arsalir@arsalir.is Ágæti fasteigna eigandi ! Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi. VINNINGASKRÁ 21. útdráttur 22. september 2016 535 9102 22517 30437 38893 49404 63376 73838 610 9827 22878 30754 39003 49438 63442 74000 633 10615 23089 30780 39507 49531 63795 74172 1117 11024 23368 31673 39888 49672 63823 74361 1429 11859 23449 32452 39949 49760 63923 74440 1645 12930 23514 32855 40129 51242 64025 74454 1765 13243 23663 33022 40769 52159 64087 74459 2018 14862 23757 33290 40887 53145 64209 74694 2068 14930 23886 33341 41007 53822 64436 74721 2499 15106 23956 33401 41336 54853 64826 74851 2725 15123 23997 33469 41372 54923 64851 74923 2748 15558 24614 33503 41397 55028 65037 75262 2870 15581 24724 33552 41446 55048 65227 75375 3132 15660 24863 33572 42144 55139 65822 75655 3255 15849 25194 33610 42425 55308 66107 76048 3257 16032 25316 34019 42797 55699 66246 76068 3671 17654 25721 34640 42971 55731 66350 76589 3739 18714 25861 34684 43178 56273 66818 77088 3869 19445 26140 34690 43427 56378 67041 77157 4044 19460 26337 34912 43831 56864 67783 77282 4085 19463 26542 35051 44002 57917 68079 77544 4907 19869 26970 35300 44107 58094 68240 77808 5374 19876 26971 35445 44369 58468 68459 77963 5433 20051 27643 35541 44463 58612 68521 78029 6157 20056 27925 35648 44516 59151 68586 78048 6237 20065 28024 35848 45258 59216 68881 78049 6279 20097 28226 35947 45373 59470 70234 78735 6872 20124 28328 36720 45389 59756 70294 79254 7559 20504 28357 36897 45629 59774 70464 79475 7667 21092 28675 37017 47157 59844 71448 79627 7719 21267 28923 37326 47264 60001 71940 79729 7892 21377 28998 37532 47646 60731 72109 8134 22020 29256 37746 47675 61241 72586 8388 22092 29394 37815 48479 61605 73068 8398 22099 29444 38000 48589 61814 73144 8610 22448 29745 38216 48866 62092 73601 9099 22493 30362 38575 49107 62427 73664 327 10295 20214 32900 42195 53758 59486 70160 1107 10493 21009 33588 43168 54255 60296 71640 1664 11019 21909 34577 43870 54943 62345 73118 4430 11517 25710 34738 45438 55430 62611 74021 4709 11609 26087 34752 47618 55438 64412 76291 6484 12054 26530 35424 48052 55546 64509 77990 7712 12089 26788 35576 48997 55653 64743 78090 8354 13266 27192 35721 49145 55660 66482 78092 8628 13613 30098 35891 50191 56468 66647 78577 8673 14082 30392 36228 51949 56596 67231 9060 15705 30450 40467 52835 58067 68420 9362 16149 30602 40605 53441 58184 69054 9445 19620 30650 42051 53620 58429 69808 Næsti útdráttur fer fram 29. september 2016 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 53859 57910 59547 70524 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9075 20118 33230 39645 54422 62173 10266 24356 35979 45819 54482 65596 18464 24998 36061 46606 57824 66102 18582 28705 38570 51081 61561 75812 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 5 3 9 5 7 Ævin er full af litlum molum, sætum og beiskum, súrum og sterkum. Molum sem veita nýja sýn og reynslu sem þú berð. Þetta geta verið fúlir molar, jafnvel harðir, meiðandi og ógeðslegir. Stundum fylgja þeim ný tækifæri og stundum geta þeir leitt til nýrra kynna. Jafnvel kanntu að upplifa mikla gleði vegna þeirra, a.m.k. um stundarsakir. Sum- ir molarnir geta jafnvel orðið að gull- molum sem þú hefðir ekki viljað missa af. Ævin er full af svona molum. Hún er samansett af litlum brotum sem púslað er saman á óskiljanlegan og oft á tíðum mjög öfugsnúin hátt. Útkoman er algjörlega einstök ævi einnar óendanlega dýrmætrar mann- eskju. Manneskju sem skiptir meira máli í heildarmyndinni en þú kannt að halda og öllu máli í augum höf- undar og fullkomnara lífsins. Slepptu ekki takinu Hugum því að rótunum. Gætum að því hver við erum, fyrir hvað við stöndum og hvert við viljum stefna. Verum svo í stöðugri endurskoðun svo við gleymum okkur ekki og verð- um reikul í spori á ævinnar göngu og á lífsins leið. Til að sjá skýrar fram á veginn þurfum við nefnilega stundum hrein- lega að gráta til að hreinsa sársauka fortíðarinnar. Horfðu um öxl af virðingu og með þakklæti þrátt fyrir allt. Horfðu fram á við í von þrátt fyrir vonbrigði og efasemdir. Líttu í kringum þig með kær- leiksríkum augum og af umhyggju. Því þá vex og dýpkar trúin á lífið. Slepptu aldrei takinu á lífinu, þótt þú skiljir ekki alltaf hvers vegna og í hvað þú heldur. Því ekkert er okkur dýr- mætara en lífið sjálft. Sá sem uppgötvar að hann er elskaður af Guði hlýtur að taka að lifa hamingjuríku lífi í þakklæti. Taka að gefa af sér, læra að njóta og launa fyrir lífið sem við þiggjum óverð- skuldað að gjöf. Lífið er nefnilega gjöf sem heldur ferskleika sínum og vara mun að eilífu. Ævi mannsins er eitt en líf hans annað. Þótt samofið sé um stundar sakir. Því að þótt ævin fjari út, heldur lífið áfram og ekkert fær það stöðvað. Látum því eftir okkur að leyfa þakklætinu að móta öll okkar sam- skipti og alla okkur veru. Leyfum því að smitast á jákvæðan hátt manna á milli, frá hjarta til hjarta svo við fáum lifað í sátt og samlyndi þrátt fyrir allt og alla. Þakklæti er nefnilega meðvituð ákvörðun og lífsstíll. Lifi lífið! Meðvituð ákvörðun og lífsstíll Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Látum eftir okkur að leyfa þakklætinu að móta öll okkar sam- skipti og alla okkur veru. Leyfum því að smitast svo við fáum lif- að í sátt og samlyndi. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Núverandi rík- isstjórn hefur einungis eitt markmið og það er að borga niður skuldir. Hún hefur engar áhyggjur af þeim sem búa nú í landinu því hún hefur þetta göfuga markmið að allt sem skipti máli sé að borga niður skuldir. Þetta eru hennar ær og kýr og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur lýst því yfir að verði hann áfram við völd að loknum kosningum í næsta mánuði verði ekki gerðar neinar breytingar á þeirri stefnu sem nú er rekin. Þá vita menn það, að Sjálf- stæðisflokkurinn mun halda áfram að borga niður skuldir á næsta kjör- tímabili ef hann verður áfram í rík- isstjórn. Með öðrum orðum sagt, þá er flokknum sama um þá sem hér búa, því öllu skiptir að borga niður skuldir. Það er nokkuð sama hvar borið er niður, það má ekki setja pen- ing í neitt, því við þurfum að borga niður skuldir. Tökum nokkur dæmi. Aldraðir og ör- yrkjar Eldri borgarar og þeir sem minna mega sín ná ekki endum sam- an og lifa við slíkar að- stæður að skömm er að. Almannatrygginga- kerfið er í slíku fjár- svelti að það nær ekki að sinna því hlutverki sem því var ætlað og auk þess eru svo miklar skerðingar í kerfinu að engu tali tekur. Lífeyrissjóðakerfið, sem menn áttu að njóta í ellinni er nú þannig, að ef menn fá greiðslur úr því kerfi, sem þeir hafa þó greitt í alla starfsævina, koma skerðingar á greiðslum úr almannakerfinu. Það vantar fullt af peningum í þetta kerfi, en ekkert kemur frá þessari rík- isstjórn, því við þurfum að borga nið- ur skuldir. Skólarnir Allir skólarnir eru í fjársvelti og gildir þá einu hvort talað er um skóla á háskólastigi eða á leikskólastigi. Allir sem reka þessar stofnanir koma varla í fjölmiðla öðruvísi en kvarta og kveina undan fjársvelti. Fólk hverfur unnvörpum úr störfum við skólana vegna þess að önnur störf gefa meiri pening. Auknar kröfur um lengra nám hjá starfsfólki skólanna hlýtur að kalla á hærri laun, en það virðist ekki vera skilningur né vilji til að auka fjármagn til þessara þátta, því við þurfum að borga niður skuldir. Heilbrigðiskerfið Allar heilbrigðisstofnanir landsins eru í fjársvelti og langar biðraðir eru í að komast í bráðnauðsynlegar að- gerðir. Heilbrigðisráðherrann kemur aftur og aftur í fjölmiðla og segist skilja áhyggjur manna vegna þessara mála, en því miður, það eru ekki til neinir peningar, því við þurfum að borga niður skuldir. Samgöngukerfið Vegakerfið annar ekki þeirri auknu umferð sem hlýst af miklum fjölda ferðamanna sem hingað koma. Vega- kerfið er sprungið og því orðið öllum hættulegt. Kannski hafa þeir sem þátt tóku í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi verið að segja ráðherra ferðamála að hún hafi ein- faldlega ekki staðið sig í embætti, þegar þeir kolfelldu hana í prófkjör- inu. Ráðherrann sagðist ekki líta á þessa niðurstöðu sem vantraust á sig, heldur sem vantraust á stjórnmálin. Ráðherrann hefði hins vegar átt að segja að þetta væri þeirri stjórn- arstefnu sem hún fylgdi að kenna hvernig fór. Að lokum Að sjálfsögðu þarf að standa í skil- um varðandi skuldir, en ef allt annað er látið reka á reiðanum og ekkert hugsað um þá sem búa í þessu landi eru stjórnvöld á rangri leið. Eðlilegt viðhald verður að vera á húsum og heimilum manna og hið sama gildir um aðra þætti samfélagsins. Við lif- um ekki nema einu sinni og við eigum að hafa þann metnað að öllum líði vel. Það getur ekki verið eina markmið okkar Íslendinga að eyða síðustu ár- unum í að greiða niður skuldir. Það er döpur framtíðarsýn. Nú borgum við niður skuldir Eftir Guðmund Oddsson » Gott er að borga nið- ur skuldir, en ef það er á kostnað þess að endurbæta og laga okk- ar helstu grunnstoðir, þá er það heldur döpur framtíðarsýn. Guðmundur Oddsson Höfundur er fyrrverandi skólastjóri BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Vetrarstarf Bridsfélags Kópavogs hafið Vetrarstarf Bridsfélags Kópavogs hófst sl. fimmtudag, 15. sept. Spilað var fyrsta kvöldið af þrem- ur í hausttvímenningi. Staðan: Árni M. Björnsson - Leifur Kristjánss. 207 Þorsteinn Berg - Helgi Viborg 193 Hjálmar Pálsson - Friðjón Þórhallss. 185 Erla Sigurjónsd. - Guðni Ingvarsson 183 Hallgr. Hallgrímss. - Sigm. Stefánss. 170 Félag eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 12. september var spilað á 13 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S: Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnss. 356 Jón Þ. Karlsson – Jón Hákon Jónss. 342 Guðm. Sigursteinss. – Jónas Elíasson 339 A/V: Helgi Hallgrss. – Óskar Ólafsson 367 Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 360 Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 351 Fimmtudaginn 15. sept var spilað á 11 borðum. Efstu pör í N/S: Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnss. 288 Jón Þ. Karlsson – Björgvin Kjartanss. 250 Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 226 Jón H. Jónsson – Bergljót Gunnarsd. 220 A/V: Axel Lárusson – Hrólfur Guðmss. 279 Elín Guðmanns. – Friðgerður Benedikts. 251 Tómas Sigurjs. – Jóhannes Guðmanns. 249 Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 229 Atvinnublað alla laugardaga mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.