Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.09.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is AUDI A6 2.0 TDI S-LINE nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, S-line innan og utan.VERÐ AÐEINS 6.990.000 Raðnr. 254356 M.BENZ G 350 CDI BLUETEC nýskr. 9/2014, ekinn 39 Þ.km, dísel, sjálfskiptur (7 gíra). Mjög vel búinn aukahlutum og lítur út sem nýr! Verð 21.900.000 kr. Raðnr. 254866 M.BENZ C 220d AVANTGARDE nýskr. 09/2015, ekinn 8 þkm, 170 hö diesel, sjálfskiptur (7 gíra). VERÐ AÐEINS 6.990.000 kr. Raðnr.255217 M.BENZ E 200 BLUETEC AVANTGARDE nýskr. 03/2015, ekinn 19 Þ.km, dísel, sjálfskiptur (7 gíra). Verð 6.690.000 kr. TILBOÐ AÐEINS 5.999.000 kr. stgr. Raðnr. 255421 RENAULT MASTER DCI100 L2H2 nýskr. 2013, 4 stk. eknir 44-54 Þ.km, dísel, 6 gíra. Verð frá 2.999.000 kr.+ vsk. Raðnr. 255424 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr, snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin. Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is toppaðu gærdaginn ASÍ og BSRB hafa tekið höndum saman um að krefja stjórnvöld um breytingar á fæðingarorlofskerfinu. Samtökin krefjast þess að greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi verði óskertar upp að 300.000 kr., að há- marksgreiðslur verði 600.000 kr. og að fæðingarorlof verði 12 mánuðir. Í tilkynningu frá samtökunum segir að til að sýna mikilvægi þess að búa við gott fæðingarorlofskerfi sé fólk hvatt til að segja sögu sína í stuttu máli á samfélagsmiðlum og merkja með myllumerkinu #betra- faedingarorlof. Í tilkynningunni segir að markmið fæðingarorlofslaga sé að börnum sé tryggð samvera við báða foreldra og að konum og körlum sé kleift að sam- ræma fjölskyldu og atvinnulíf. Rann- sóknir sýni að núverandi kerfi tryggi ekki að þetta markmið nái fram að ganga. „Það er forgangsmál að endur- skoðun eigi sér stað og horft verði til framtíðar. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um nauðsyn endurskoð- unar og að breytinga sé þörf hefur ekki verið brugðist við,“ segir í til- kynningunni. Vilja 12 mánuði og 600.000 í há- marksgreiðslur Morgunblaðið/Ásdís Fæðingarorlof ASÍ og BSRB segja vera forgangsmál að endurskoða það. Lagt er til að rúmlega 50 milljóna króna framlagi verði á fjáraukalögum ársins 2016 varið til að styrkja flóð- varnargarð við Vík í Mýrdal. Vegna ágangs sjávar eru mannvirki á iðn- aðarsvæðinu í hættu ásamt land- græðslu og jafnvel Hringvegurinn. Til stendur að byggja viðbótarsand- fangara þvert á fjöruna á næsta ári. Sjórinn hefur verið að brjóta land í Vík á síðustu áratugum. Reynt hefur verið að verjast því með ýmsum að- gerðum, meðal annars landgræðslu. Fangar sandinn Sandfangari sem byggður var í til- raunaskyni 2011 hefur sannað gildi sitt. Hann var byggður þvert á fjör- una og hefur safnað sandi innan við sig og lengt fjöruna framan við íbúð- arbyggðina á sandinum. Skörð komu í sandfangarann snemma árs 2015 og þarf að hlaða hann betur upp. Tölu- vert landbrot var austan við sand- fangarann í byrjun desember 2015. Í skýringum í frumvarpi til fjár- aukalaga sem fjármálaráðherra lagði fram á Alþingi í fyrradag kemur fram að sjávarrofið fyrir neðan iðnaðar- hverfið sé nú komið að fyrirframsettri aðgerðarlínu og orðið nauðsynlegt að grípa til frekari varna. Gert hafi verið ráð fyrir verkefninu á samgönguáætl- un 2017 til 2019 en hraða þurfi fram- kvæmdum og ljúka þeim á næsta ári. Ástæðan er sú að ef það kemur mikið veður næsta vetur er talin mikil hætta á verulegu tjóni á byggingum, land- græðslu og jafnvel vegi. Heildarkostnaður við byggingu garðs er áætlaður um 256 milljónir kr. Ríkissjóður greiðir meginhluta þess kostnaðar en sveitarfélagið lítinn hluta. Nýi garðurinn á að koma tæpum kílómetra austan við núverandi sand- fangara. Vigfús Þór Hróbjartsson, fulltrúi á sviði skipulags- og byggingamála hjá Mýrdalshreppi, segir að búið sé að ganga frá skipulagsmálum vegna byggingar nýja garðsins. helgi@mbl.is Flýta sjóvörn- um við Vík Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson Landbrot Sjór gekk yfir flóðvarnargarðinn og yfir á lóð Vegagerðarinnar austast í iðnaðarhverfinu í Vík í óveðrinu aðfaranótt 8. desember 2015. Ákveðið hefur verið að flýta byggingu varnarmannvirkja til að forða frekara tjóni.  Nýr varnargarður byggður á næsta ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.