Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 6
Helgarblað 15.–18. maí 20156 Fréttir Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.þrif.net Fyrirtæki og húsfélög, gerum tilboð ykkur að kostnaðarlausu Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir íbúðir sem eru í túristaleigu Hefur þú þörf fyrir þrif A ð sögn Skarphéðins Guð- mundssonar, dagskrár- stjóra RÚV, hefur heildar- kostnaður við þátttöku Íslands í Eurovision að mestu stað- ið í stað undanfarin ár og er áætlað að svo verði einnig í ár. „Kostnaður- inn er um 30 milljónir króna. Einu breytingarnar sem verða á kostnaði til eða frá varða hvar og þá hversu nálægt okkur keppnin fer fram og stefnir í að sá kostnaður verði í með- allagi í ár, þar sem keppnin verður haldin í Vín, og þar með innan áætl- unar,“ segir Skarphéðinn. Alls mun RÚV senda 21 einstak- ling út til Vínarborgar, þar sem að keppnin fer fram. Þar er María Ólafs- dóttir söngkona fremst í flokki en einnig munu fjórir bakraddasöngv- arar halda út, einn af þeim er Frið- rik Dór Jónsson. Fimmti bakraddar- söngvarinn, sem þar með fyllir upp í sex manna hámarksfjölda keppenda á sviðinu, verður Ásgeir Orri Ás- geirsson, einn af höfundum lagsins. RÚV sendir einnig út meðhöfunda Ásgeirs, þá Pálma Ragnar Ásgeirs- son, en hann og Ásgeir eru bræður, og Sæþór Kristjánsson. Með í för verður einnig systir þeirra bræðra, Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, en hún hannar klæðnaðinn sem María Ólafsdóttir mun skarta í keppninni. „Ég get hins vegar staðfest við þig hér og nú að hópurinn er síst stærri í samanburði við fyrri ár. Hann er að jafnaði jafnstór á milli ára því um það eru skýrar reglur hversu margir mega að hámarki vera á sviðinu og til aðstoðar. Aðrir í fylgdarliðinu, fyrir utan sjálfa flytjendur, eru starfs- menn RÚV sem halda utan um verk- efnið, gera þáttinn Leiðin til Vínar og halda utan um framkvæmdina. Þess- ir aðilar eru jafnmargir og áður. Þar erum við nú sem endra nær mun fá- mennari en nánast allar aðrar þjóðir sem taka þátt,“ segir Skarphéðinn að lokum. n bjornth@dv.is Eurovision kostar um 30 milljónir RÚV sendir 21 til Austurríkis Eurovision Allt að sex manns mega vera á sviðinu í hverju atriði í Eurovision. Líkt og í fyrra, þegar Pollapönkarar vörðu heiður lands og þjóðar, þá munu Íslendingar full- nýta kvótann í ár. Fyrir utan sex flytjendur mun 15 manna lið fylgja keppendunum út. Fjórir greinst með hettusótt Á undanförnum tveimur vikum hafa fjórir einstaklingar greinst með hettusótt á Íslandi. Um er að ræða fullorðna óbólu- setta einstaklingar búsetta á suðvestur horni landsins. Þetta kemur fram á Facebook-síðu sóttvarnalæknis. Hettusótt er mjög smitandi veirusýking sem leggst oftar á börn en fullorðna. Sýkingin er yfirleitt hættulaus og gengur fljótt yfir en hún er þekkt fyrir að valda slæmum fylgikvillum sér- staklega hjá unglingum og full- orðnum. Eftir að farið var að bólu- setja gegn hettusótt árið 1989 hefur sjúkdómnum nánast ver- ið útrýmt á Íslandi en þó kom hér upp faraldur 2005–2006 þar sem 113 manns greindust, flestir óbólusettir. Síðast greindist hér eitt tilfelli árið 2013. Engin meðferð er til við hettusótt en besta fyrirbyggjandi meðferðin er bólusetning, seg- ir á vef sóttvarnalæknis. Hér á landi er bólusett við 18 mánaða og 12 ára aldur með bóluefni sem inniheldur einnig bólu- efni gegn mislingum og rauðum hundum. „Litlir faraldrar eins og þessi minna á mikilvægi bólu- setninga og minna jafnframt á þá staðreynd að hér geta brot- ist út litlir faraldrar gegn ýms- um bólusetningasjúkdómum ef þátttakan er undir væntingum,“ segir á vef sóttvarnalæknis. Rispaði „fokk“ á vélarhlífina „Þetta er eiginlega alveg glóru- laust,“ segir Björgvin Sigurðsson, en skemmdarvargur rispaði orðið fokk á vélarhlíf bíls fjölskyldunn- ar í gærdag en hann segir í sam- tali við DV að það hafi gerst ein- hvern tímann á bilinu 16.30 og 18.00 í gærdag. Unnusta hans, Jóna Birna Óskarsdóttir, birti á Face- book mynd af hlífinni og má þar sjá að bíllinn er illa farinn eftir skemmdarverkið. Parið óskar eftir vitnum að skemmdarverkinu en bílnum var lagt við fjölfarinn göngustíg í Skip- holti. Björgvin segir að kostnað- urinn vegna skemmdarverksins geti hlaupið á tugum þúsunda, „og jafnvel hátt í 200 þúsund krónur,“ bætir hann við. Átta milljarða pakki í smíðum n Formaður SGS svartsýnn n Vaxandi kvíði innan ferðaþjónustunnar R íkisstjórnin hefur gefið ádrátt um mögulega hækkun persónuafsláttar úr liðlega 50 þúsund krónum á mánuði í 65 þúsund krónur. Sam- kvæmt heimildum DV hefur þeirri hugmynd verið hreyft að skerða persónuafslátt með hækkandi tekj- um. Þannig gagnist hækkun persónu- afsláttar mest þeim sem lægst hafa launin. Ekki er talið ósennilegt að hækkun persónuafsláttar kostaði rík- ið 5 til 7 milljarða króna í skatttekjum. Verið að undirbúa aðgerðir Fleira kemur til eins og fækkun tekju- skattsþrepanna sem lagst hefur illa í þá sem telja að beita eigi skattkerfinu til að jafna kjörin. Á þessari stundu er talið líklegt að hugmyndin um fækk- un þrepa verði blásin út af borðinu. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur sakað stjórnarliða um tómlæti gagn- vart hörðustu vinnudeilum síðari ára- tuga en taki nauman fundartíma Al- þingis í karp um nýja virkjunarkosti. Í vikunni buðu allir stjórnarandstöðu- flokkarnir fram krafta sína ef það gæti liðkað fyrir samningum. Stuðningur stjórnarandstöðunnar getur komið húsnæðisfrumvörpum Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráð- herra til góða. Bæði frumvörpin, um aukin stofnframlög ríkis og sveitar- félaga til félagslega húsnæðiskerfisins annar vegar og hækkun húsaleigu- bóta og annarra húsnæðisbóta hins vegar, eru afar fjárfrek. Eftir því sem næst verður komist verður síðar- nefnda frumvarpið senn afgreitt úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu, en þá á það eftir að fara fyrir ríkisstjórn og þingflokka áður en það verður lagt fram á Alþingi. Samkvæmt heimild- um DV er ætlað að rúmum tveimur milljörðum króna verði varið í nýjar húsaleigubætur. Að öllu samanlögðu er því að sjá að ríkisstjórnin geti hugs- að sér að leggja fram 8 til 9 milljarða króna til lausnar vinnudeilunum sem bíta æ meir með hverjum degi. Svartsýni Þungt hljóð er í talsmönnum Starfs- greinasambandsins (SGS) sem telja tilboð Samtaka atvinnulífsins um 23,5 prósenta hækkun á samnings- tíma fjarri þeim kröfum sem sett- ar hafi verið fram. Næsti samninga- fundur hjá Ríkissáttasemjara verður á mánudag en að óbreyttu leggja fé- lagsmenn innan SGS niður vinnu næstkomandi þriðjudag og miðviku- dag. Semjist ekki á næstunni blasir við ótímabundið verkfall SGS sem hefst þriðjudaginn 26. maí eftir hvíta- sunnuhelgina. Mikill uggur er inn- an ferðaþjónustunnar sem siglir inn í háannatíma ársins í júní, júlí og ágúst. Svipaða sögu er að segja innan sjávar- útvegsins sem þarf að landa, vinna og verka afla, meðal annars smábáta, en strandveiðar og helsti veiðitími krókaveiða er yfir sumartímann. 14 prósent í raun Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, segir tilboð SA um 23,5 prósenta hækk- un á samningstímanum hvergi nærri kröfum sambandsins. „Við semjum ekki á þessum nótum. Í raun er boðin 14 prósenta hækkun launa á þremur árum, 6, 4,5 og 3,5 prósent. Svo er ver- ið að bjóða 8 prósent fyrir að færa dag- vinnutímabilið frá sex á morgnana til sjö á kvöldin og lækka yfir vinnuálagið sem kæmi í staðinn fyrir það. Í raun eru þetta bara 14 prósent á þremur árum eða um 30 þúsund krónur fyrir fólk á okkar taxta. Það er langt frá því sem við höfum sett okkur.“ Björn lýs- ir stöðunni sem afar þröngri eins og ástatt er. „Þetta er í hnút og ég er ekki bjartsýnn. En það getur alltaf eitthvað gerst og allt farið af stað.“ Taugatrekkt ferðaþjónusta Björn kveðst verða var við að fyrirtæki og jafnvel greinar hafi sett þrýsting á SA. Ferðaþjónustan óttast af- leiðingar verkfalla í byrjun sumars og er kannski fúsari til að semja en ýms- ir aðrir. „Ferðaþjónustan er sú grein sem á mest undir núna. Ég held að sé ýtt hraustlega á SA að gera eitthvað í málunum.“ Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA, hefur sagt opin- berlega að hækkun dagvinnulauna komi best þeim sem lægst hafi laun- in auk þess sem áherslan á dagvinnu á kostnað yfirvinnu stuðli að meiri launajöfnuði kynjanna. Í fréttum RÚV í gær sagði hann það rétt mat Más Guðmundssonar seðlabankastjóra að tilboð SA væri á brúninni og væri jafnvel farið fram af henni. n Jóhann Hauksson johannh@dv.is Svartsýnn „Ferðaþjónustan er sú grein sem á mest undir núna. Ég held að sé ýtt hraustlega á SA að gera eitthvað í málun- um,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Húsnæði og kjör Eygló Harðardóttir fé- lagsmálaráðherra gæti átt góðan stuðning stjórnarandstöðunnar við frumvarp um hækkun húsaleigubóta og fleira. „Ferðaþjónustan er sú grein sem á mest undir núna Taugaspenna Háannatími ferða- þjónustunnar fer í hönd. Víðtæk og ótímabundin verkföll blasa við strax eftir hvítasunnu að öllu óbreyttu. Mynd REuTERS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.