Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Page 8
Helgarblað 15.–18. maí 20158 Fréttir
Fæst hjá Jóni & Óskari.
Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind.
Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is.
Norðurljós
Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni
er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum.
Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis.
Northern lights
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
98
9
Men frá 16.900 kr.
Lokkar 15.900 kr.
Bráðaútskipti á
Landspítalanum
n Ný tæki fyrir 1,5 milljarða króna til Landspítalans á þessu ári n Mikill vandi hefur safnast upp
L
ækningatæki, sem kosta
samanlagt einn og hálfan
milljarð króna, eru væntan-
leg á Landspítalann á þessu
ári. Tækin koma úr tæplega
30 tækjaflokkum og er heildarverð
tækjanna í hverjum flokki aldrei
undir 10 milljónum króna.
Að sögn Björns Jónssonar,
deildarstjóra heilbrigðis- og upp-
lýsingatæknideildar, eru mörg af
gömlu tækjunum komin á síð-
asta snúning. „Í raun má segja að
mörg þessara tæki sem við erum
að kaupa séu nánast bráðaútskipt-
ingar,“ segir Björn.
Hann bætir við að flest gömlu
tækin séu orðin tíu til fimmtán ára
gömul og að eðlilegt hefði verið að
skipta þeim út mun fyrr.
Var í tómu tjóni
Fjárveitingin til tækjakaupa í ár er
um 1,5 milljarðar króna en í fyrra
var hún 1,3 milljarðar. „Árin þar
á undan var þetta í tómu tjóni.
Það er mikill vandi búinn að safn-
ast upp og sem betur fer er verið
að vinna í honum. Ef við náum
að halda þessu fjármagni í þrjú
til fjögur ár í viðbót þá ættum við
að vera komin í nokkuð góð mál,“
segir Björn.
Áður en fest eru kaup á tækjun-
um í gegnum útboð fer fram ná-
kvæmt forgreiningarferli þar sem
óskir um ný tæki frá öllum svið-
um Landspítalans koma fram.
Listinn er oft upp á 5 til 6 millj-
arða króna, sem síðan er þrengdur
þannig að hann rúmist innan fjár-
heimilda. Vegna sumra tækjanna
þarf að standa í framkvæmdum
við sjúkrastofur, rífa niður veggi
eða breyta innréttingum. Á með-
al nýrra tækja sem keypt verða á
þessu ári eru hjartaþræðingar-
tæki, röntgentæki og speglunar-
búnaður.
Þarf sérstaka fjárveitingu í
jáeindaskanna
Enn er mikil þörf fyrir jáeindaskanna
á sjúkrahúsinu. Hann kostar um
einn milljarð króna og er notaður til
að koma auga á útbreiðslu krabba-
meins. Fjöldi sjúklinga þarf á ári
hverju að fara til útlanda til að kom-
ast í slíkan skanna. „Við höfum alltaf
þurft að ýta slíkum tækjum lengra
á undan okkur því þau hafa ekki
rúmast inn í fjárheimilda. Það þarf
eigin lega sér fjárveitingu í þau.“
2/3 tímans fyrir framan tölvu
Lækningatæki og tölvukerfi bland-
ast sífellt meira saman og skilin
eru að verða sífellt óskýrari, að
mati Björns. „Öll þessi lækninga-
tæki í dag skila orðið gögnum í
miðlægt kerfi, sem við köllum raf-
ræna sjúkraskrá. Það eru endalaus-
ar tölvur um alla ganga á spítalan-
um og talað er um að læknar eyði
allt að tveimur þriðja hluta af sín-
um tíma fyrir framan tölvu í dag,“
útskýrir hann. n
600 milljóna
framkvæmdir
í sumar
Framkvæmdir fyrir um 600 milljónir
króna eru fyrirhugaðar á Landspítalan-
um í sumar.
Miklar utanhússviðgerðir verða
framkvæmdar, þar á meðal á útveggj-
um á húsnæði spítalans að Landakoti,
Grensási, við Hringbraut og í Fossvog-
inum.
Útigarður verður einnig endurnýj-
aður á Kleppi, auk þess sem breytingar
verða gerðar á húsnæði bráðamóttöku
kvennadeildar við Hringbraut. Það ver-
kefni er unnið með viðbótarframlagi frá
Líf styrktarfélagi, sem styrkir starfsemi
kvennadeildarinnar. Að sögn Aðalsteins
Pálssonar, deildarstjóra fasteignadeildar
Landspítalans, kostar framkvæmdin
á bilinu 50 til 60 milljónir króna og Líf
leggur 24 milljónir króna til hennar.
Mygla hefur komið upp í húsakynnum
Landspítalans undanfarin ár og reynt
verður að vinna bug á vandamálinu í
sumar. „Við erum alltaf að glíma við raka-
skemmdir vegna lekra þaka og útveggja.
Þessar framkvæmdir eru liður í því að
stöðva leka og koma í veg fyrir frekari
skemmdir,“ segir Aðalsteinn.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is „Ef við náum að
halda þessu fjár-
magni í þrjú til fjögur
ár í viðbót þá ættum
við að vera komin
í nokkuð góð mál
Björn Jónsson
Björn segir að
þörfin fyrir ný
tæki sé orðin
mjög brýn.
Mynd Sigtryggur Ari
Lýsing
Röntgentæki (föst/skyggni/móbíll) (12 tæki yfir 3-4 ár)
Skurðþjarkur (Davinci róbot)
Vararafstöð í Fossvogi
Diskastæður fyrir klínísk gögn
Speglunartæki (um 50 tæki)
Gegnumlýsingartæki á HB
C-Röntgenbogar (1 stór, 1 minni)
Kjarnarannsókn
Hjartaþræðingartæki, stofa 2
Svæfingavélar á skurðstofum, fasi III (3 stk.)
Tæknilegir innviðir v. lækningatækja
Mónitorar, fasi III (10 stk.)
Skurðarborð (18 borð yfir 3 ár)
Geislaplönunarkerfi v. línuhraðals
Dauðhreinsiofnar (2 stk.)
Ósæðadælur (3 stk.)
Autoklavar f. veirufræði (2 stk.)
Massagreinir
Skurðstofulampar (18 lampar yfir 2 ár)
Aðgerðasmásjá
Hjartaómtæki
Mósatæki
Maldi Tof rannsóknartæki
Endurnýjun sjúkrarúma (600 rúm yfir 3-4 ár)
Þvottavélar/þurrkskápar fyrir speglunardeild
Blöndunarskápar f. apótek (2 stk.)
Davinci þvottavél f. aðgerðaþjarka
Frumuflæðisjá f. blóðbankann
Háhraðagreinir
Gjörgæslukerfi
Sneiðmyndatæki í FV (viðbót)
Segulómtæki, uppfærsla í FV
Steinbrjótur
Monitorar f. fæðingarvakt
Svið
Rannsóknarsvið
Skurðsvið
Öll svið
Öll svið
Lyflækningasvið
Rannsóknarsvið
Aðgerðasvið
Rannsóknarsvið
Lyflækningasvið
Aðgerðasvið
Öll svið
Flest svið
Aðgerðasvið
Lyflækningasvið
Aðgerðasvið
Skurðsvið
Rannsóknarsvið
Rannsóknarsvið
Aðgerðasvið
Aðgerðasvið
Lyflækningasvið
Rannsóknarsvið
Rannsóknarsvið
Flest svið
Lyflækningasvið
Flæðissvið
Aðgerðasvið
Aðgerðasvið
Rannsóknarsvið
Aðgerðasvið
Rannsóknarsvið
Rannsóknarsvið
Skurðsvið
Kvenna og barnasvið
Kaup á lækningatækjum 2015
nr.
A1
A2
A3
A4
A5
A6
A7
A8
A9
A10
A11
A12
A13
A14
A15
A16
A17
A18
A19
A20
A21
A22
A23
A24
A25
A26
A27
A28
A29
B1
B2
B3
B4
B5
Listi yfir lækningatækjakaup á árinu 2015 (A1-A29). Það efsta er dýrast og svo koll af kolli.
Nokkur verkefni eru reyndar eftirhreytur frá fyrra ári og sum eru svokallaðir rammasamn-
ingar þannig að búnaðurinn er keyptur á nokkrum árum. Verkefni sem eru merkt B1-B5 á
að ráðast í á næsta ári en undirbúningur vegna þeirra hefst á þessu ári.
Stærstu verkefnin í ár eru rammasamningur um röntgentæki til 3–4 ára, endurnýjun
alls speglunarbúnaðar og nýtt hjartaþræðingartæki.