Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Side 10
Helgarblað 15.–18. maí 201510 Fréttir
G
uðmundur Þ. Þórhalls
son, framkvæmdastjóri
Lífeyris sjóðs verzlunar
manna, er launahæstur
framkvæmdastjóra stærstu
lífeyrissjóða landsins. Hann hækk
aði einnig mest í launum milli ára
þegar ársreikningar fyrir árin 2013
og 2014 eru skoðaðir, eða um 6,7
prósent. Árslaun hans eru nú á
við ársiðgjöld 226 verkamanna
með 300 þúsund krónur á mánuði.
Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna segir að horft
hafi verið til launaþróunar þegar
ákvörðun var tekin um að hækka
launin.
Vilhjálmur Birgisson verka
lýðsforingi furðar sig á að á sama
tíma og laun framkvæmdastjór
anna voru hækkuð umtalsvert hafi
launafólk verið neytt til að sam
þykkja 2,8 prósenta hækkun í kjara
samningum. Segir hann ljóst að hin
samræmda launastefna hafi ekki
náð til toppanna í lífeyrissjóðun
um.
DV skoðaði ársreikninga síðast
liðinna tveggja rekstrarára hjá
nokkrum af stærstu lífeyrissjóðum
landsins og kom í ljós að laun allra
framkvæmdastjóra þeirra höfðu
hækkað milli ára, mismikið þó,
en allir umfram þau 2,8 prósent
sem launamenn samþykktu. Það
eru stjórnir sjóðanna sem ákveða
laun framkvæmdastjóranna og
starfskjör en þær eru skipaðar full
trúum bæði atvinnulífsins og laun
þega.
Villa í ársreikningi Gildis
Þegar ársreikningar Gildis lífeyris
sjóðs voru skoðaðir kom í ljós að
laun framkvæmdastjóra hans, Árna
Guðmundssonar, höfðu hækkað
um 8,6 prósent milli ára. Árslaun
Árna voru samkvæmt þeim ríflega
22,4 milljónir króna árið 2013 en
orðin tæplega 24,4 milljónir 2014.
DV leitaði skýringa á hækkuninni
hjá Þorsteini Víglundssyni, stjórn
arformanni sjóðsins, og fengust
þau svör að villa hefði verið gerð í
ársreikningi ársins 2013.
„Þetta eru rangar upplýsingar í
ársreikningi,“ segir Þorsteinn í sam
tali við DV eftir að hafa látið kanna
málið. „Inn í töluna fyrir 2013
vantar bifreiðastyrk, sem síðan er
óbreyttur milli ára, upp á 1.200
þúsund krónur eða 100 þúsund á
mánuði. Það skýrir skekkjuna. Þá
er hækkunin um 3,4 prósent.“
Þorsteinn segir að fyrirspurn DV
vegna málsins hafi komið flatt upp
á hann sem stjórnarformann því að
engin umræða eða ákvörðun hefði
verið tekin af stjórninni um slíka
hækkun. „Það var bara þessi al
menna hækkun samkvæmt ráðn
ingarsamningi.“
Ef gert er ráð fyrir þessum 1.200
þúsund króna styrk inn í árslaun
Árna fyrir árið 2013 var hann með
23,6 milljónir en tæpar 24,4 millj
ónir 2014. Það gerir hækkun upp á
3,1 prósent og mánaðarlaun upp á
2.032 þúsund á mánuði.
Launahæstur hækkar mest
En það var engin villa í ársreikn
ingum Lífeyrissjóðs verzlunar
manna. Þar var tekin ákvörðun um
að hækka laun Guðmundar úr ríf
lega 30,5 milljónum á ári í tæplega
32,6 milljónir, eða um 6,7 prósent.
Það þýðir að mánaðarlaun Guð
mundar hækkuðu um 172 þúsund
krónur á milli ára. Ásta Rut Jón
asdóttir, stjórnarformaður Lífeyris
sjóðs verzlunarmanna, segir að
spurð að horft hafi verið til ýmissa
þátta launaþróunar þegar stjórnin
ákvað að hækka laun langlauna
hæsta framkvæmdastjórans í úttekt
DV fyrir síðasta ár.
„Horft var m.a. til launakönnun
ar VR en skv. könnuninni árið 2013
hækkuðu heildarlaun félagsmanna
um 6,9% en grunnlaun hækkuðu
um 7,5%. Jafnframt var launavísi
tala Hagstofunnar skoðuð fyrir
árið 2013 og var breyting launa
meðal fyrirtækja í fjármálaþjón
ustu og lífeyrissjóða 7,1% og var
breyting launa á almennum vinnu
markaði á sama tíma 6,1%,“ segir
Ásta Rut í skriflegu svari við fyrir
spurn DV. Hún segir enga ákvörðun
liggja fyrir um hækkun launa fram
kvæmdastjórans fyrir árið 2015.
Milljónir í bílahlunnindi
Einn stærsti lífeyrissjóður landsins,
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis
ins (LSR), hefur ekki birt ársreikn
ing fyrir árið 2014 þar sem ársfund
ur sjóðsins fer ekki fram fyrr en 21.
maí næstkomandi. Nýjustu upp
lýsingar liggja því ekki fyrir um
breytingar milli ára þar en fram
kvæmdastjórinn Haukur Hafsteins
son var með 21 milljón króna í árs
laun árið 2013.
Hjá Festu lífeyrissjóði hækkuðu
laun framkvæmdastjórans Gylfa
Jónassonar um tæplega fimm pró
sent milli ára, úr rúmlega 14,8
milljónum á ári í 15,6. Það ger
ir hækkun um alls 740 þúsund
krónur milli ára, um 61 þúsund
á mánuði. Athygli vekur að í árs
reikningi eru bifreiðahlunnindi
Heill heimur af pylsum!
Hrísateig 47
Pylsur á pönnuna
en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið
að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti.
Gæðapylsur og skinkur án allra auka-
og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir
uppskriftum frá öllum heimshornum.
Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla!
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
UPPFYLLIR
SKILYRÐI
NÁLARAUGANS
Paleo
GABS
SCD
Launahæsti Lífeyris-
stjórinn hækkaði mest
n Mánaðarlaunin hækkuðu um 172 þúsund milli ára n Árslaun á við iðgjöld 226 verkamanna
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Það er alveg
greinilegt miðað
við þetta að samræmd
launastefna hefur ekki
gilt fyrir fulltrúa lífeyris-
sjóðanna.
Launahæstur af þeim stóru Laun Guðmundar Þ.
Þórhallssonar, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlun-
armanna, voru hækkuð um 6,7% milli ára. Hann er nú með
2,7 milljónir á mánuði. Stjórnarformaður segir að horft hafi
verið til launaþróunar við ákvörðunina.
6,7%
hækkun
Launþegar fengu 2,8% á sama tíma og topparnir fengu meira
Á sama tíma og laun framkvæmdastjóra stærstu lífeyrissjóðanna voru að hækka milli áranna 2013 og 2014 voru
undirritaðir kjarasamningar þar sem launþegar fengu 2,8% hækkun fyrir tilstilli hinnar samræmdu launastefnu. Bent
er á að verkafólk hafi fengið launahækkun upp á 9.750 krónur í þeim samning.