Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 29
Helgarblað 15.–18. maí 2015 Umræða 29
Myndin Þúfa Nokkrir vaskir ferðalangar leggja leið sína upp á Þúfu, útilistaverk Ólafar Nordal við Grandagarð. mynd sigtryggur ari
Hamingjan býr í
okkur
Ég vildi ekki særa
neinn
Það er enginn
reiður
Borghildur sverrisdóttir stendur fyrir hamingjunámskeiði. – DV Oddný Eir Ævarsdóttir skrifaði bók um barnleysi. – DV Faðir drengs sem keyrt var á er ekki reiður vegna óhappsins. – Pressan
Mest lesið
á DV.is
1 „Fólkið sem dó í Súðavík og Flateyri hafði komið
sér fyrir á vísum snjóflóða-
svæðum“ Snorri Óskarsson, oft
nefndur Snorri í Betel, segir að syndin
hafi komið við sögu í snjóflóðunum í
Súðavík og Flateyri á síðasta áratug
síðustu aldar. Mannskaðinn sem þá varð
hafi því ekki verið guðs verk því menn
hafi haft frjálst val. Ummæli í þessa veru
lætur Snorri falla í löngum umræðum
um hinstu rök tilverunnar á Facebook.
Þau hafa, eðli málsins samkvæmt, fallið
í grýttan jarðveg.
Lesið: 44.560
2 Hrottafengið einelti á Akureyri: „Við viljum öll
að þú farir og kveikir í þér“
Elísabet Rósa Gunnarsdóttir, 17 ára
stúlka frá Akureyri, hefur þurft að
þola gróft einelti nánast alla sína
skólagöngu. Hún hefur meðal annars
fengið skilaboð þar sem hún er hvött til
að fremja sjálfsvíg. Hún sagði sögu sína í
viðtali við Pressuna.
Lesið: 24.793
3 Nemendur verða að þreyta lokaprófið naktir
Nemendur sem hafa skráð sig í kúrs í
sjónrænum listum hjá Ricardo Domingu-
ez, dósent í Háskólanum í Kaliforníu í San
Diego, þurfa að undirgangast lokapróf
sitt naktir vilji þeir standast próf. Kennar-
inn sjálfur er einnig nakinn í prófinu.
Lesið: 24.251
4 Aðgengi fyrir fatlaða, samt ekki: „Þetta er það
grillaðasta sem ég hef séð“
„Þetta er það grillaðasta sem ég hef
séð,“ segir Jón Gunnar Benjamínsson,
ötull talsmaður bætts aðgengis
fyrir fatlað fólk, þegar DV sýndi honum
ljósmynd af inngangi við félagsheimilið
Dalabúð í Búðardal en þar hafa staðið
yfir framkvæmdir við meðal annars
inngang félagsheimilisins. Búið var að
steypa ramp fyrir hjólastólaaðgengi, en
fyrir framan hann hafði verið komið fyrir
handriði svo ekki var hægt að komast að
dyrum byggingarinnar.
Lesið: 22.940
5 Berst við húðkrabba-mein: Birti „selfie“ á
Facebook Tawny Willoughby eyddi
mörgum klukkutímum í að ná hinni full-
komnu brúnku þegar hún var í mennta-
skóla og notaði til þess ljósabekki. Nú
glímir hún við húðkrabbamein.
Lesið: 21.320
S
amgöngur skipta okkur Ís-
lendinga öllu máli við að
nýta tækifærin sem Ísland
býður upp á, margir sækja
vinnu um langan veg og
skipulag þjónustu er þannig að
við reiðum okkur á samgöngur til
að nýta hana. Samgöngur eru því
heilbrigðismál, menntamál, vel-
ferðarmál, atvinnumál og þannig
mætti áfram telja. Flugið hefur
mikið vægi í samgöngum hér, og
skipulag þjóðfélagsins byggist á því
að við komumst hratt á milli lands-
hluta og landa, svo ekki sé talað um
að vöxtur atvinnulífsins síðustu ár
byggir á verulegu leyti á flugi til og
frá landinu.
samvinna millilandaflugs og
innanlandsflugs
Flugið um Keflavíkurvöll og sá
skurðpunktur austurs og vesturs
sem þar hefur myndast gefur okk-
ur ótal tækifæri sem mikilvægt er
að hlúa að. Samhliða uppbyggingu
í Keflavík felast mikil tækifæri í
að koma á millilandaflugi til eins
eða fleiri flugvalla á landsbyggð-
inni. Reglulegt flug til annarra
landshluta getur breikkað mark-
hóp ferðaþjónustunnar, dreift álagi
á landið, skapað atvinnutækifæri,
aukið fjárfestingu og tryggt fram-
boð á þjónustu allt árið. Nýlega
ákvað ríkisstjórn Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar að skipa starfs-
hóp sem hefur það hlutverk að
kanna hvernig koma megi á reglu-
legu millilandaflugi um flugvellina
á Akur eyri og Egilsstöðum. Niður-
staða hópsins á að geta nýst hvar
sem er á landinu þó að sérstaklega
sé unnið með þessa tvo velli.
Innanlandsflugið getur einnig
nýst betur til að dreifa ferðamönnum
um landið. Nauðsynlegt er að horfa
á tækifærin sem í því felast sem sér-
stakt verkefni og það ættu hags-
munaaðilar að kanna frekar. Þar
þarf m.a. að huga að samgöngum
milli Keflavíkurflugvallar og Reykja-
víkurflugvallar og því hvort þjónusta
við ferðamenn geti bætt nýtingu í
innanlandsflugi án þess að úr verði
árekstrar við hlutverk flugsins í al-
menningssamgöngum.
alvarleg aðför að samgöngum
Núverandi staða á Reykjavíkur-
flugvelli skapar hins vegar marg-
háttað óöryggi. Mikilvægasti hluti
innanlandsflugsins er að sjá fyrir
almenningssamgöngum til land-
svæða sem liggja fjarri höfuð-
borginni eða eru „eyjar“ með til-
liti til annarra samgangna. Þessu
hlutverki má ekki stefna í hættu
með gerræðislegum vinnubrögð-
um borgaryfirvalda. Nýlegar skýr-
slur vinnuhópa innanríkisráðherra
um gjaldtöku og félagshagfræði-
lega greiningu á innanlands-
flugi sýna glöggt að íbúar landsins
treysta á flugið en kostnaður við
það er of hár. Þá sýna niðurstöð-
ur nýlegra kannana að margir íbú-
ar landsins hafa áhyggjur af stöðu
Reykjavíkurflugvallar og könnun
MMR frá því í apríl 2015 sýnir að
78% landsmanna vilja að neyðar-
brautin verið opin áfram. Í Reykja-
vík eru 68% á móti lokun brautar-
innar. Í fréttum í vikunni var vitnað
til þess að braut 06/24 á Reykja-
víkurflugvelli, neyðarflugbrautin,
var notuð 128 sinnum á fyrstu 119
dögum þessa árs. Lendingar og
flugtök voru 54.590 á árinu 2014 og
að fara þarf allt aftur til ársins 2007
til að finna meiri notkun á flugvell-
inum. Flugfélög og þeir sem nýta
flugið, einstaklingar, fyrirtæki og
opinberar stofnanir, hafa orðið fyr-
ir umtalsverðum viðbótarkostnaði
vegna tíðrar röskunar á flugi í vetur
og ekki væri kostnaðurinn og taf-
irnar minni ef brautirnar á vellin-
um væru færri.
Í ljósi þessa er það alvarlegt mál
að nýlega gaf Reykjavíkurborg út
framkvæmdaleyfi í nálægð við völl-
inn en ljóst er að þær framkvæmd-
ir geta vart haldið áfram í samræmi
við áætlanir nema fyrst verði far-
ið í breytingar á skipulagsreglum
borgarinnar. Þessi ákvörðun er í
hæsta máta undarleg í ljósi þess
að á sama tíma fjallar Samgöngu-
stofa um möguleg áhrif af lokun
flugbrautar 06/24 og að nefnd um
könnun flugvallarkosta undir for-
ystu Rögnu Árnadóttur hefur ekki
lokið störfum.
sameiginlegt hagsmunamál
okkar allra
Ólöf Nordal innanríkisráðherra sendi
nýlega bréf til Reykjavíkurborgar
þar sem er áréttað er mikilvægi þess
að Reykjavíkurborg fylgi gildandi
skipulagsreglum og virði þá stjórn-
sýslumeðferð sem nú er í gangi, hjá
Samgöngustofu og Rögnunefndinni.
Þá hafa þingmenn Framsóknar-
flokksins lagt fram frumvarp á Al-
þingi um skipulags- og mannvirkja-
mál á Reykjavíkurflugvelli. Þar er
lagt til að Alþingi beri ábyrgð á
gerð skipulagsáætlana og taki þátt
í veitingu framkvæmdaleyfa og
byggingarleyfa á Reykjavíkurflug-
velli. Flugvöllur á höfuðborgarsvæð-
inu er forsenda þess að flug geti gegnt
hlutverki í almenningssamgöngum
á landinu. Í ljósi þessa hlutverks er
því grundvallarkrafa að flugvöllur-
inn verði ekki skertur nema aðrar
lausnir séu til staðar. Við verðum að
horfa á heildarsamspil millilanda-
flugs og innanlandsflugs í framtíð-
inni og nálgast málið af ábyrgð. Sam-
göngur í strjálbýlu landi eru ekki
einkamál ákveðinna sveitarfélaga,
heldur mikilvægt og sameiginlegt
hagsmunamál okkar allra. n
Horfum á heildamyndina
„Núverandi staða
á Reykjavíkurflug-
velli skapar hins vegar
margháttað óöryggi.
Líneik anna sævarsdóttir
Alþingismaður Framsóknarflokksins
Kjallari