Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 38
Helgarblað 15.–18. maí 201538 Neytendur
Frístundastyrkir sveitarfélaga
Frístundastyrkir eru mjög mismunandi eftir sveitarfélögum og hér er tæpt á þeim helstu.
Seltjarnarnesbær gerir best við barnafjölskyldur. Frístundastyrkur bæjarfélagsins er
50.000 krónur á hvert barn 6 til 18 ára.
n Seltjarnarnes: 50.000 kr. á hvert barn 6–18 ára
n Reykjavík: 35.000 kr. á hvert barn 6–18 ára
n Kópavogur: 30.000 á hvert barn 5–18 ára
n Mosfellsbær: 25.000 á hvert barn 6–18 ára
n Hafnarfjörður: Á mánuði, 1.700 fyrir 6–12 ára og 2.550 fyrir 13–16 ára.
Á ári alls 20.400 eða 30.600
n Reykjanesbær: 15.000 á hvert barn 6–16 ára
n Akureyri: 12.000 á hvert barn 6–17 ára
Dæmi um sveitarfélög sem greiða ekki frístundastyrki eru Vestmannaeyjabær og Ísa-
fjarðarbær, hver ástæðan er skal ósagt látið. Mögulega eru íþróttafélög bæjarins styrkt
með öðrum hætti sem kemur fram í æfingagjöldum.
Fótbolti
Æfingagjöld: 22.500–94.000
Skór : 5.000–39.900
Legghlífar: 5.990
Sokkar: 2.990
Æfingagalli: 15.790
Treyja: 7.900
Fótbolti: 7.990
Húfa: 2.490
Samtals: 70.650–176.960
Handbolti
Æfingagjöld: 35.000–67.000
Skór: 9.990–17.990
Æfingagalli: 15.790
Treyja: 6.990
Stuttbuxur: 3.990
Handbolti: 5.000
Húfa: 2.490
Samtals: 79.250–119.250
Þetta kostar að æfa íÞróttir
n Boltaíþróttirnar ódýrastar n Fimleikar og golf skera sig úr n Sveitarfélögin koma mismikið til móts við foreldra n Félagsleg pressa um flottan búnað
Ó
dýrast er að stunda
boltaíþróttirnar, fótbolta,
handbolta og körfubolta,
þegar tekin voru saman
æfingagjöld og kostnaður
við fatnað og ýmsan búnað
vinsælustu íþrótta landsins. DV
skoðaði sjö vinsælar íþróttir;
fótbolta, handbolta, körfubolta, golf,
fimleika, frjálsar og golf. Þó verður
að segjast að kostnaðurinn við að
æfa þessar vinsælustu íþróttirnar
er mjög sambærilegur, sérstaklega
hjá yngstu iðkendum. Fimleikar
og golf skera sig þó aðeins úr hvað
varðar kostnað enda er þar hægt að
fjárfesta í fjölbreyttum og misdýrum
fylgihlutum, eitthvað sem börn og
unglingar sem hafa stundað sínar
íþróttir lengi gera að einhverju leyti
kröfu til.
Hvatapeningar skipta máli
Kostnaður við þátttöku barna í
íþróttum og tómstundum er yfirleitt
liður sem að foreldrar setja ekki
fyrir sig, leyfi fjárhagsstaðan slíkt
á annað borð. Óumdeilt virðist að
íþróttaiðkunin eða tómstundirnar
eru uppbyggilegar, stuðla að
bættri heilsu, betri árangri
í námi, geta hjálpað
börnum félagslega og
hafa forvarnargildi
á unglingsárunum.
Samfélagslega er því
greinilegur ávinningur af
slíkri iðkun barna og því
sjá flest öll sveitarfélög
hag sinn í því að hvetja
foreldra til þess að stuðla
að íþróttaiðkun barna
sinna. Sú hvatning kemur
í formi hvatapeninga,
eða frístundastyrkja.
Styrkirnir eru nokkuð mismunandi
eftir sveitarfélögum en skipta
óneitanlega verulegu máli.
Heildarkostnaður
sjö íþróttagreina
DV tók saman heildarkostnað við
þær sjö íþróttir sem eru vinsælar
meðal barna og unglinga. Um er
að ræða boltaíþróttirnar fótbolta,
handbolta og körfubolta sem og
fimleika, frjálsar íþróttir, sund og golf.
Æfingagjöld eru fastur liður og mjög
mismunandi eftir íþróttum en að
auki bætist við kostnaður af fatnaði
og ýmsum búnaði. Sá kostnaður er
afar misjafn eftir greinum.
Félagsleg pressa um
flottan fatnað og búnað
DV ræddi við
foreldra sem
standa að
þátttöku
barna
sinna í
öllum
greinum.
Rauði
þráðurinn
varðandi
kostnað
við
fatnað og búnað var sá að þegar
börnin byrja að prófa íþróttina er
aðeins fjárfest í grunnbúnaði sem
þarf ekki að vera dýr en um leið og
börnin hella sér í sportið af krafti
þá eykst krafan um betri og flottari
búnað, sem og að pressa er sett á
að fjárfest sé í ýmiss konar varningi
merktum íþróttafélaginu sem barnið
æfir hjá. Krafan um betri búnað,
til dæmis flottustu fótboltaskóna á
markaðinum, virðist vera að stórum
hluta félagsleg, að sögn viðmælenda
DV.
Ýmsir afslættir létta undir
Málið fer að flækjast þegar börnin
eru orðin fleiri en eitt og
einnig er afar algengt að
krakkar séu að æfa fleiri
en eina íþróttagrein. Mörg
börn prófa fjölmargar
greinar áður en þau finna
hvar áhuginn liggur en
ekki er óalgengt að tvær,
í einhverjum tilfellum
þrjár, íþróttagreinar
séu stundaðar af kappi.
Íþróttafélögin
koma til
móts við
foreldra
í
slíkum aðstæðum með
afslætti af gjöldum ef
stundaðar eru fleiri en
ein grein undir merkjum
félagsins. Einnig er yfirleitt
boðið upp á systkinaafslætti
af æfingagjöldum.
Framkvæmdin
Ódýrustu æfingagjöldin í
hverri íþróttagrein
miðast við
yngstu
flokkana
en
dýrustu
við eldri
krakka
sem eru
langt komin í sinni íþrótt. Reynt var
að finna ódýrustu sem og dýrustu
kostina sem í boði voru hvað varðar
fatnað og búnað. Það er rétt að
taka fram að ekki er um tæmandi
upptalningu á verði að ræða, ætlunin
er mun frekar að gefa vísbendingar
um þann kostnað sem
lendir á barnafjölskyldum.
Í samantekt DV er einblínt
á æfingagjöld, fatnað
og búnað en rétt er að
geta þess að stór hluti af
mögulegum kostnaði
felst í keppnisferðum
og æfingabúðum,
innanlands sem og
erlendis. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Fimleikar
Æfingagjöld: 46.290–221.100
Bolur: 4.490–25.000
Leggings: 4.990
Hipsters (stuttbuxur): 3.900
Ólar (fyrir tvíslá): 8.990
Ólapoki: 2.790
Æfingagalli félags: 12.000
Fimleikaskór: 5.000–9.000
Úlnliðsbönd: 2.390
Hárteygjur: 1.290
Samtals: 92.130 - 290.540
70.650–
176.960
92.130–
290.540
79.250–
119.250