Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 40
Helgarblað 15.–18. maí 201540 Skrýtið Sakamál A ustin Sigg lýsti með einu orði gjörðum sínum þegar hann fékk lífstíðardóm í nóvember 2013. Dómar- inn við umdæmisdómstól Jefferson-sýslu í Colorado í Banda- ríkjunum, Stephen Munsinger, og saksóknarinn í máli Austins voru sammála um að Austin hefði hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að það sem hann hafði verið sak- felldur fyrir væri „illska“. Stephen Munsinger hafði á orði: „Illska er greinilega raunveruleg. Hún sýndi sig í samfélagi okkar 5. október 2012. Þann dag bar hún nafnið Austin Sigg.“ Ákæruatriðin á hendur Austin voru fimmtán talsins og nokk- ur þeirra tryggðu honum þyngsta dóm sem hægt var að kveða upp og að hann myndi aldrei um frjálst höf- uð strjúka á ný. Þegar þarna var kom- ið sögu var Austin 18 ára að aldri. Morð og mannránstilraun Austin Sigg hafði í október 2013 ját- að sig sekan um öll fimmtán ákæru- atriðin, þar á meðal að hafa myrt 10 ára stúlku, Jessicu Ridgeway, og árás á skemmtiskokkara við Ketner-vatn í maí 2010 með mannrán í huga. Austin var 17 ára þegar hann myrti Jessicu og hefði því samkvæmt lögum átt að fá lífstíðardóm með möguleika á reynslulausn eftir 40 ára afplánun. En Stephen Munsinger var ekki á þeim buxunum og kvað upp þann úrskurð að Austin skyldi afplána 86 ár að auki eftir 40 ár í fangelsi. Mótmæli verjanda Austins, sem sagði slíka refsingu ganga í bága við stjórnarskrána, vera grimmilega og óvenjulega, féllu í grýttan jarðveg hjá dómaranum sem sagði: „Þetta mál krefst lífstíðardóms.“ Kjökrandi móðir Síðustu tvo daga réttarhaldanna, þegar dómarinn fór yfir ákæru- atriðin og hámarksrefsingu fyrir hverja ákæru fyrir sig, var Austin þögull sem gröfin. Hann horfði beint fram og leit ekki eitt andartak í átt að fjölskyldu Jessicu eða móður sinni, Mindy. Mindy kjökraði látlaust þegar farið var í smáatriðum yfir verkn- að Austins, en þegar dómarinn kvað upp úrskurð sinn horfði hún ró- lyndislegum augum á son sinn. Sjálf hafði móðir Jessicu yfirgefið dóm- salinn áður en aðstoðarríkissak- sóknarinn Hal Sargent lýsti síðustu jarðvistarstundum Jessicu. Tveggja klukkustunda misþyrmingar Dómsalurinn var þéttsetinn og nán- ast kjökrað í hverju horni þegar Hal lýsti málavöxtum; Austin hefði beðið í aftursæti Jeep-bifreiðar sinnar og fylgst með Jessicu. Hann hefði beðið þar til hún var komin alveg að bíln- um og þá gripið hana, fjötrað og fleygt inn í aftursætið. Hal sagði að erfitt væri að gera sér í hugarlund hvað Austin hefði gert við Jessicu en „við vitum að hann misþyrmdi henni kynferðislega“. Hal Sargent fór yfir þær tæpu tvær klukkustundir sem Austin hélt Jessicu fanginni í svefnherbergi íbúðar sinnar. Austin neyddi Jessicu til að horfa á bíómynd á meðan hann klippti hár hennar og lagði fram fatn- að sem hann vildi að hún klæddist. Síðar reyndi Austin að kyrkja Jessicu með plastbandi en það skarst inn í hendur hans og síðar sagði hann lögreglu að hann hefði ekki „haft nægt vogarafl“ til að ljúka verk- inu þannig. Notaði hendurnar Þegar upp var staðið sá Austin þann kost vænstan að nota berar hend- urnar til að kyrkja Jessicu og það tók hann um þrjár mínútur. Þegar hann sá krampakippi fara um líkama hennar lét hann renna sjóðandi heitt vatn í baðkar og keyrði höfuð hennar ofan í það. Þarna lét Hal staðar numið; sagð- ist ekki vilja lýsa í smáatriðum hvernig Austin sundurlimaði lík Jessicu. Sjálf- ur hafði Austin sagt lögreglu að hann hefði verið að fullnægja kynferðislegri fantasíu. „Kannski,“ sagði Hal, „orðar Austin Sigg þetta best,“ – „Illska lýsir orða best því sem ég hef gert.“ Móðirin hafði samband við lögreglu Jessica Ridgeway hvarf 5. október 2012 og á tímabili tóku yfir 1.000 manns og 75 löggæslustofnanir þátt í leit að henni. Þann 23. október hafði Mindy, móðir Austins, samband við lög- reglu og sagði að sonur hennar hefði viðurkennt að hafa rænt Jessicu og myrt. Austin hafði á orði við móður sína að hann væri skrímsli og það yrði að refsa honum. Ef Austin Sigg sagði þetta við móður sína má með sanni segja að honum hafi orðið að ósk sinni því hann mun sennilega ekki kemba hærurnar utan veggja fangelsis. n LAKKVÖRN +GLJÁI Sterk og endingargóð gljávörn! Made in GerMany Since 1950 Hefur hlotið frábæra dóma! Illska að nafni Austin Sigg n Morðinginn sagðist hafa fullnægt kynferðislegri fantasíu n Það tók hann þrjár mínútur að kyrkja fórnarlamb sitt Fórnarlambið Jessica Ridgeway upplifði hrylling síðustu stundir lífs síns. Morðinginn Austin Sigg sagði verknað sinn vera illsku. „Þegar hann sá krampakippi fara um líkama hennar lét hann renna sjóðandi heitt vatn í baðkar og keyrði höfuð hennar ofan í það.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.