Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 46
Helgarblað 15.–18. maí 201546 Lífsstíll Xprent ehf - Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Sími 777-2700 - email:xprent@xprent.is Tess er mætt Fyrirsæta í yfirstærð vekur athygli T ess Holliday er fyrirsæta í yfir­ stærð sem fékk samning hjá fyrirsætuskrifstofunni MiLK Model Management í janúar. Í vikunni birti Tess fyrstu mynd­ irnar af sér á samskiptamiðlinum Instragram en myndirnar voru tekn­ ar af ljósmyndaranum Catherine Harbour. „Svo glöð að geta loksins deilt þessum myndum … Þakka um­ boðsskrifstofunni minni fyrir að ýta mér út úr þægindahringnum,“ skrif­ aði fyrirsætan á Instragram. Tess, sem er 29 ára, vonast til þess að geta breytt módelheiminum. „Að mínu mati hefurðu ekki gert nóg ef einhver horfir á myndirnar þínar án þess að finna fyrir einhverju,“ sagði Tess í viðtali við Daily Mail. „Jákvætt eða neikvætt, myndirnar eiga að vekja einhverjar tilfinningar. Það hef­ ur alltaf verið mitt markmið. Ég vil ögra hugmyndum samfélagsins um fegurð og því hvaða týpur eru sam­ þykktar í þessum bransa og heimin­ um öllum. Það er ekki nein ein rétt leið til að vera kona eða til að vera falleg. Við eigum allar að eiga okkar stað.“ Holliday hefur verið virk á sam­ félagsmiðlunum og ýtti til að mynda úr vör herferðinni #EffYour­ BeautyStandards, þar sem hún hvatti konur til að deila myndum. „Ég var orðin þreytt á að að heyra að ég gæti ekki klæðst þessu og hinu og að ég þyrfti að fela líkama minn. Ég sagði f… ég klæði mig í það sem ég vil.“ n Tess Holliday Fyrirsætan vill breyta því hvernig fólk hugs- ar um konur og fegurð. T helma Einarsdóttir greindist með alvarlegt fæðingarþung­ lyndi eftir að hún eignaðist eldri strákinn sinn, sem í dag er tveggja og hálfs árs. Hún fékk aðstoð fagaðila við að vinna úr þunglyndinu, en það hjálpaði henni einnig mikið að skapa eitthvað sjálf. Thelma settist niður á kvöldin þegar strákarnir hennar voru sofn­ aðir og fór að búa til fallegar mynd­ ir í myndvinnsluforritum. Fyrst fyrir sjálfa sig, en framleiðslan vatt fljót­ lega upp á sig. Upphaflega voru þetta aðallega myndir af börnum, ásamt fæðingarupplýsingum, settar saman á skemmtilegan hátt. Thelma kallaði hönnunina Orð í ramma. Fær innblástur úr náttúrunni „Svo í lok nóvember stofnaði ég Thelma Einars. Ég fékk svo rosa­ lega góð viðbrögð eftir að ég setti grafíkina inn á Facebook­síðuna að ég ákvað að halda áfram. Þá hafði ég gert græna demantinn og bleiku fuglana,“ segir Thelma en fuglana og demantinn má sjá á meðfylgjandi myndum. „Stuttu eftir það var mér boðið að vera með á jólamarkaði og svo vatt þetta upp á sig og ég fór að gera fleiri litaútgáfur og öðruvísi týp­ ur.“ Thelma sækir innblástur í nátt­ úruna, úr hinum ýmsu áferðum og formum sem þar er að finna. „Það að hanna hefur hjálpað mér ótrúlega að ná bata,“ segir Thelma einlæg. „Með því fæ ég útrás fyrir að gera það sem ég elska og sam­ hliða vinna í erfiðleikunum. Þetta er algjörlega eitthvað sem ég vil gera það sem eftir er. Draumurinn er að eignast mína eigin vinnustofu einn daginn.“ Uppgötvuð á Instagram Thelma færist nær draumnum með hverju skrefinu, en grafík hennar fæst nú í versluninni Hröfnu á Laugaveginum og Litlu hönnunar­ búðinni á Strandgötu í Hafnarf­ irðinum. Svo er hún nýlega farin að senda myndir til Ástralíu. „Ég fékk tölvupóst frá konu sem hafði fundið mig á Instagram en hún var búin að vera að fylgjast með mér þar og fannst myndirnar mínar fallegar. Hún var að stofna sína eigin netverslun með skandinav­ íska hönnunarvöru og vildi endilega kaupa af mér myndir til að selja í versluninni sinni. Það eru algjör for­ réttindi að fá svona viðurkenningu og virkilega hvetjandi fyrir mig að halda áfram.“ Thelma segir myndir sínar prent­ aðar á hágæða pappír en þær er hægt að fá í nokkrum stærðum. Sumar myndanna koma í takmörkuðu upp­ lagi sem gerir þær enn eigulegri. Hægt er að skoða grafík Thelmu á www.thelmaeinars.com og á www. facebook.com/thelmaeinarsdesign. n solrun@dv.is Selur myndirnar sínar í Ástralíu n Thelma fór að skapa til að vinna sig út úr fæðingarþunglyndi n Hönnunin komin í verslanir Dreymir um vinnustofu Thelma fær útrás fyrir sköpunargáfuna með hönnun sinni og dreymir um að eignast sína eigin vinnustofu. Fékk góð viðbrögð Eftir að Thelma birti myndir af hönnun sinni á Facebook fóru pantanirnar að hrúgast inn. Til Ástralíu Áströlsk kona sem var að setja upp verslun með skandinavískri hönnun heillaðist af myndum Thelmu eftir að hún sá þær á Instagram. „Það að hanna hefur hjálpað mér ótrúlega að ná bata
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.