Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Page 47
Helgarblað 15.–18. maí 2015 Lífsstíll 47 Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð og samþykkt af Mannvirkjastofnun. Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna og léttir þrif. Stigahúsateppi Mikið úrval! Mælum og gerum tilboð án skuldbindinga og kostnaðar Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Sérverslun með teppi og parket Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is C annes- kvikmyndahátíðin hefur verið haldin síðan 1939. Fyrst í stað var hún smá í sniðum en upp úr 1950 fór hún að vekja heimsathygli, enda flykktust þá helstu stjörn- ur veraldar á Rívíeruna, til dæmis þokkadísirnar Sophia Loren, Grace Kelly og Brigitte Bardot. Þessar gyðjur skörtuðu sínu feg- ursta og nutu sín á rauða dreglin- um á milli þess sem þær sleiktu sól- ina á ströndinni. Enn gera stjörnur það sama og er nú til fyrirbæri sem kallast „Cannes-tíska”. Hún er blanda af fínustu síðkjólum sem til eru yfir í afslappaðan strandar- og snekkjufatastíl. Í tilefni þess að nú fer alþjóðlega kvikmyndahátíðin að hefjast ákvað Hönnunarhornið að rifja upp tíma- lausar tískumyndir og fegurðardís- ir. Sjón er sögu ríkari! n Cannes-tískan í áranna rás Þegar tískugoðsagnir safnast saman á Rívíerunni Rendur Catherine Deneuve mætti í rönd- óttum síðkjól á hátíðina árið 1966. Áberandi Heimsins ýktasti púff-kjóll birtist 1987. Elizabeth Taylor verður seint þekkt fyrir látleysi í smekk. Á nærfötunum Madonna var fræg fyrir að hneyksla á opinberum viðburðum og var Cannes-hátíðin engin undantekning. Hún mætti á rauða dregilinn árið 1991 í nærfötum eftir Jean Paul Gaultier. Stórglæsileg Blake Lively stal sviðsljósinu árið 2014 í sínum Gucci Première-kjól. Síðar á árinu vann hún til verðlauna fyrir kjólinn. Klassísk fegurð Fegurðardísin Sophia Loren mætti í erma- lausum prinsessukjól á Cannes árið 1955. Bert á milli Magabolur- inn og Jane Birkin slógu í gegn á hátíðinni 1966. Bátatíska Grace Kelly í snekkjufötum árið 1955. Litagleði og stíll U mhverfisvænar, sjálfbærar og fallegar flöskur njóta vax- andi vinsælda. Íslendingar eru alltaf að taka stærri skref í átt að umhverfisvænum lífsvenjum og alltaf er hægt að tileinka sér fleiri góða siði. Þessar litríku flöskur eru frá Ítalska merkinu „24 bottles”. Hægt er að nota flöskurnar undir drykki en einnig undir olíur og krydd. Flöskurnar eru lausar við BPA-efni, ryðfríar og fal- legar og eru búnar til með það í huga að spara plast. Lekkert í eldhúsinu og í borðstof- unni á öllum menningarheimilum. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.