Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Side 48
Helgarblað 15.–18. maí 201548 Sport S teven Gerrard, fyrirliði Liverpool, býst við því að lokaleikur hans á Anfield verði tilfinningaríkur. Enski landsliðsmað- urinn fyrrverandi mun kveðja heimavöllinn sem hann hefur spilað á í sautján ár þegar Liver- pool tekur á móti Crystal Palace á laugardaginn. Í viðtali við Sky Sports sagðist Gerrard ekki geta lofað því að hann muni ekki fella tár en fyrr- verandi liðsfélagi hans, Jamie Carragher, hélt því fram að hann myndi bresta í grát á vellinum. „Ég er ekki eins og hann. Ég er ekki úr steini,“ sagði hann. „Ég er ekki eins karlmannlegur og Jamie.“ „Við verðum að sjá hvað gerist. Ég er ekki vanur að tárast þegar ég verð tilfinningasamur. Venju- lega get ég haldið aftur af mér en við verðum að bíða og sjá. Það er engin skömm að því að gráta,“ sagði Gerrard, sem spilar með L.A. Galaxy í Bandaríkjunum á næstu leiktíð. „Sterling á að skrifa undir“ Gerrard nýtti einnig tækifærið og ítrekaði áskorun sína á Raheem Sterling að ungstirnið skrifi und- ir nýjan samning við félagið. Segir hann Brendan Rodgers vera rétta stjórann fyrir hann. „Sterling á að skrifa undir að JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er Náðu sér aldrei á strik n Tíu leikmenn sem hafa floppað hjá Barcelona n Tveir komu frá Arsenal n Hæfileikamenn sem brugðust á Nou Camp B arcelona hefur lengi verið stórveldi í knattspyrnuheim- inum og hefur jafnan á að skipa einu albesta félagsliði heims. Félagið er þekkt fyrir að framleiða fyrsta flokks knattspyrnu- menn, svo sem eins og Lionel Messi, Xavi Hernandez og Andres Iniesta, en hefur einnig látið mjög til sín taka á leikmannamarkaðnum. Félagið hefur í gegnum tíðina keypt frábæra leikmenn á borð við Ronaldinho, Johan Cruyff og Luis Figo. En leikmannaviðskipti eru ekki alltaf dans á rósum, ekki á Spáni frekar en Englandi. Sportskeeda. com hefur tekið saman lista yfir 10 leikmenn sem Barcelona keypti, sem stóðu ekki undir væntingum. n baldur@dv.is 1 Javier Saviola Kom frá: River Plate 2001 Kaupverð: 36 milljónir evra Fjöldi leikja (mörk): 123 (49) Fór til: Real Madrid 2007 Þó að Saviola hafi skorað um 50 mörk fyrir Barcelona stóð hann aldrei undir væntingum. Hann var um tíma kallaður „næsti Maradona“ en það varð aldrei. Barcelona lánaði hann til Monaco og Sevilla áður en hann var seldur til erkióvinanna í Real Madrid, sem er eitthvað sem gerist afar sjaldan. Þeir vildu sárlega losna við hann. Hann var einfaldlega ekki nógu góður að klára færin. 2 Marc Overmars Kom frá: Arsenal 2000 Kaupverð: 40 milljónir evra Fjöldi leikja (mörk): 97 (15) Fór til: Og Ahead Eagles 2008 Overmars var fenginn til Barcelona til að leysa af goðsögnina Luis Figo. Oversmars hafði spilað frábærlega fyrir Arsenal. Hann gerði vissulega ágæta hluti hjá Barcelona en komst aldrei með tærnar þar sem Figo hafði hælana. Hann stóð með öðrum orðum ekki undir 40 milljóna evra verðmiða. Skortur á frumkvæði einkenndi leik hans á kantinum. 3 Gabriel Milito Kom frá: Zaragoza 2007 Kaupverð: 20 milljónir evra Fjöldi leikja (mörk): 48 (1) Fór til: Independiente 2011 Milito upplifði það sem fæstir knattspyrnu- menn vilja upplifa; hann stóðst ekki læknisskoðun hjá stórveldinu Real Madrid. Læknateymi Barcelona gaf varnarmann- inum hins vegar grænt ljós. Það hefðu þeir ekki átt að gera því Milito sleit krossband og reif vöðva hægri vinstri á meðan hann var hjá Barcelona. Fjárfestingin var slæm. 4 Dmytro Chygrynskiy Kom frá: Shaktar Donetsk 2009 Kaupverð: 25 milljónir evra Fjöldi leikja (mörk): 31 (1) Fór til: Shaktar Donetsk 2010 Kaup Peps Guardiola á Úkraínumanninum geta hæglega talist til þeirra verstu í hans stjóratíð hjá félaginu. Chygrynskiy spilaði heila 851 mínútu fyrir félagið og var til hreinna vandræða inni á vellinum; hann var klaufi með boltann, tímasetti tæklingar illa og gaf mörk. Varnarmaðurinn var látinn fara við fyrsta tækifæri. 5 Gerard Lopez Kom frá: Valencia 2000 Kaupverð: Óljóst Fjöldi leikja (mörk): 91 (5) Fór til: Monaco 2005 Lopez kom upp í gegnum unglingaakademíu Barcelona en fékk ekki samning við félagið og var látinn fara frítt. Hann fór til Valencia og spilaði vel þar. Hann var lánaður til Alaves 1998–1999 og var þaðan keyptur aftur til Barcelona. Lopez skoraði fimm mörk í 92 leikjum en tókst aldrei að slá í gegn. 6 Philippe Christanval Kom frá: Monaco 2001 Kaupverð: 17 millj- ónir evra Fjöldi leikja (mörk): 31 (0) Fór til: Marseille 2003 Christanval var hugsaður sem maðurinn sem kæmi í stað Lilian Thuram. Hann stóð aldrei undir þeirri ábyrgð sem honum var falin og gekk illa að aðlagast hraðanum. Hann lét hafa eftir sér að það að spila í þriggja manna varnarlínu hentaði honum illa. Hann fór til Marseille og loks til Fulham þar sem hann lék síðast. 7 Geovanni Deiberson Kom frá: Cruzeiro 2001 Kaupverð: 21 millj- ón evra Fjöldi leikja (mörk): 26 (1) Fór til: Benfica 2003 Stöðugleiki var það sem helst vafðist fyrir Geovanni. Hann sýndi á ferli sínum á köflum hæfileika til að skora mörk upp úr engu, til dæmis með Hull City á Englandi. Hjá Barcelona hins vegar gekk hvorki né rak. Hann skoraði eitt mark í 26 leikjum undir stjórn Carles Rexach. Hann reyndi fyrir sér hjá ótal liðum á ferli sínum. Tilfinningaríkur lokaleikur á Anfield Steven Gerrard kveður heimavöllinn eftir sautján ára spila mennsku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.