Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Page 62
Helgarblað 15.–18. maí 201562 Fólk
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Hágæða parketplankar
á góðu verði
Ástarsorg
innblÁstur plötunnar
Máni Orrason er 17 ára tónlistarmaður sem býr á Spáni
É
g elska að koma til Íslands og
þá sérstaklega til að spila,“
segir tónlistarmaðurinn ungi
Máni Orrason sem býr á
Alicante á Spáni.
Pabbi rokkaðri
Máni, sem er 17 ára, er að senda frá
sér sína fyrstu plötu, Repeating Patt-
erns. Aðspurður lýsir hann tónlist
sinni sem alþýðutónlist, poppi og
rokki. „Ég prófaði eiginlega bara allt
á þessari fyrstu plötu. Ég hef verið að
spila frá ellefu ára aldri, þá byrjaði ég
að spila á gítar. Við erum öll í tónlist í
fjölskyldunni, syngjum eða spilum á
hljóðfæri,“ segir hann og bætir við að
flest séu þau á svipaðri bylgjulengd
í tónlistinni. „Nema pabbi. Hann er
rokkaðri en við hin.“
Tíu systkini
Máni hefur búið á Spáni frá tveggja
ára aldri, þegar foreldrar hans fluttu
út með fjölskylduna, og hann segir
gott að búa í sólinni. „Þar sem ég
bý á miklu túristasvæði er minna
um spænska menningu og meira af
breskri. Ég geng í breskan skóla og
nánast allir vinir mínir eru Skotar.
Annars er tvennt ólíkt að vera hér um
vetur eða sumar. Á veturna er lítið að
gerast hérna og bara gamalt fólk og
Spánverjar,“ segir Máni sem kemur
úr stórum hópi systkina. „Við erum
tíu talsins. Pabbi átti fjögur börn áður
en þau mamma hittust og mamma
eitt. Svo eignuðust þau fimm saman.
Sjálfur er ég í miðjunni, gleymda
miðjubarnið, sem er ástæðan fyrir
því að ég þurfti að gera eitthvað sér-
stakt til að ná athygli þeirra,“ segir
hann hlæjandi.
Ástarsamband sem endaði illa
Máni, sem mun halda útgáfutón-
leika þann 29. maí í Austurbæ, hefur
vakið athygli fyrir þroskaða texta. „Ég
hef alltaf reynt að vera mjög heiðar-
legur í textagerð og auk þess reynt
að fylgjast með því sem er að gerast í
kringum mig og reyna að meika ein-
hvern sens úr því. Svo hef ég alltaf
elskað tónlistarmenn eins og Bob
Dylan, Bruce Springsteen og Bítlana
og pælt mikið í þeirra textum og reynt
að skilja hvað sé frábært og af hverju.
Mér finnst textinn jafn mikil vægur og
lagið sjálft,“ segir Máni og játar því að
ástarsorg hafi einnig haft áhrif á text-
ana. „Ég átti kærustu, það samband
endaði illa en varð innblástur fyrir
mig til að gera þessa plötu.“
Elskar ströndina
Máni er í skóla þar sem hann er að
læra spænsku, leiklist, tónlist og
upptökur. „Ég er sem sagt að klára
breska A-levels-menntaskólann
með grunnskólaprófinu. Í sumar
ætla ég svo að spila mikið á Íslandi
og í Þýskalandi,“ segir hann en bæt-
ir við að hann hafi ekki gert upp við
sig hvar hann muni enda í framtíð-
inni. „Það eru ákveðnir hlutir sem ég
elska við Alicante, eins og ströndin,
sjórinn, veðrið og svo er fjölskyldan
mín náttúrlega hérna. En það sem
ég elska við Ísland er kúltúrinn. Þar
er svo miklu meira af ungu fólki sem
er að gera eitthvað skapandi og ég
sakna þess.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Máni Orrason Finnst
gott að koma til Íslands
og spila.
Mynd PEPAVALERO FOTOGRAFIA
Saknar Íslands Máni flutti til Alicante
þegar hann var tveggja ára.
„sjálfur er ég í miðj-
unni, gleymda miðju-
barnið, sem er ástæðan
fyrir því að ég þurfti að
gera eitthvað sérstakt til
að ná athygli þeirra.
„Ég er mjög stolt“
Tanja Ýr lætur drauminn rætast og stofnar fyrirtæki
É
g hef lengi notað gerviaugnhár
og alltaf fundist þau setja punkt
yfir i-ið í förðun. Hins vegar var
ég alltaf að klippa þau sundur
og saman til að gera þau eins og ég vil
hafa þau því sjálf vil ég að þau líti út
fyrir að vera eðlileg,“ segir fegurðar-
drottningin Tanja Ýr Ástþórsdótt-
ir, sem opnaði vefsíðuna beautybyt-
anja.is þar sem hún selur tólf týpur af
gerviaugnhárum sem hún hefur látið
hanna fyrir sig.
Tanja Ýr stefnir á að koma með fleiri
vörur á markað. „Þetta tekur allt tíma
og ég get ekki sagt hvaða vara kemur
næst. Ég er ekkert endilega að einblína
á Ísland og ef allt gengur upp mun var-
an fara í sölu í alþjóðlegri verslunar-
keðju. Að stofna mitt eigið fyrirtæki
hefur verið minn draumur og loksins
hefur hann ræst. Ég er mjög stolt.“
Tanja, sem er að læra hugbúnað-
arverkfræði, segist lítið hafa notað
námið til að koma fyrirtækinu á legg.
„Ég tók eitt ár í fjármálaverkfræði og
tók þar lítið námskeið um stofnun fyr-
irtækja. Þaðan tók ég aðallega tvö ráð
sem ég hef nýtt mér mikið. Annars
vegar að nota síðu eins og Odesk til
að hjálpa mér að finna fólk sem vinn-
ur við það sem ég þarf á að halda og
hins vegar varðandi þróunarvinnu,
að spyrja mig í sífellu af hverju þetta
en ekki hitt og fá aðra til að segja sína
skoðun. Maður getur orðið pirraður af
þessu en lærir mjög mikið af því. Ég
ætla samt að klára námið því það verð-
ur gott að hafa það til vara.“
Tanja segir fegurðardrottningar-
titilinn hafa hjálpað sér til að láta
drauminn rætast. „Ég efast um að
ég væri á þessum stað ef ég hefði
ekki unnið Ungfrú Ísland. Í gegnum
keppnina hafa augu mín opnast fyrir
ýmsum tækifærum og ég sjálf kynnst
mér betur. Nú mun ég ekki láta neitt
stoppa mig.“ n
Lætur drauminn rætast Tanja Ýr er
að læra hugbúnaðarverkfræði og hefur
stofnað sitt eigið fyrirtæki.
Ungfrú Ísland Tanja Ýr segir titilinn hafa
hjálpað sér við að láta drauminn rætast.
indiana@dv.is