Fréttatíminn - 26.02.2016, Síða 80
Það er hægt bjóða upp á fleira
en kransakökur og marsipan-
hnallþórur í fermingar-
veislunni. Baksturinn getur
verið einfaldari og alls ekki
síðri.
Skagfirsku systurnar Þorbjörg Þórhildur
og Kristín Rannveig Snorradætur halda
úti matarblogginu Eldhússystur (eld-
hussystur.com). Þær hafa alla tíð haft
gaman af því að baka og ákváðu í fyrra
að leyfa fleirum að njóta og úr varð þessi
vefur sem hefur notið mikilla vinsælda.
Fréttatíminn leitaði til systranna og bað
þær um að gefa lesendum uppskrift sem
auðvelt er að gera fyrir marga. Þorbjörg,
eða Tobba, varð fyrir svörum þar sem
Kristín býr í Stokkhólmi og gaf okkur
uppskriftina að þessari sænsku sítró-
nukladdköku sem ætti að renna ákaf-
lega ljúflega niður í veislugestina.
KRINGLUNNI ISTORE.IS
iPhone 6s
Frá 124.990 kr.
iPad mini
Frá 69.900 kr.
Sérverslun með Apple vörur
Fallegu Apple vörurnar
fást í iStore Kringlunni
10 heppnir sem versla Apple tæki frá
1. mars til 15. maí vinna miða á Justin Bieber.
Dásamleg sítrónu-
kladdkaka í veisluna
Sítrónukladdkaka | U.þ.b. 40 bitar
Aðferð
Hitið ofninn í 175°C. Þvoið sítrónurnar (ekki verra
að kaupa lífrænar sítrónur, sérstaklega þegar á að
nota börkinn). Fínrífið börkinn af sítrónunum og
pressið út 4-6 msk. af safanum. Geymið til hliðar.
Bræðið smjörið í potti. Takið pottinn af hitanum.
Blandið restinni af hráefninu vel saman í skál og
hellið brædda smjörinu saman við, ásamt sítrónu-
berkinum og safanum. Smyrjið ofnskúffu (u.þ.b.
30x41) með smjöri og stráið jafnvel brauðmylsnu
eða kókosmjöli í það. Gott er að sníða bökunar-
pappír í mótið svo auðveldara sé að ná kökunni
upp úr forminu. Hellið deiginu í skúffuna. Bakið
kökuna mitt í ofninum í u.þ.b. 30 mínútur. Kakan
á að vera aðeins bökuð í jöðrunum en klesst í
miðjunni. Látið kökuna kólna alveg, skerið niður
í ferninga, stráið þá flórsykri á hana til skrauts og
berið fram með þeyttum rjóma.
Ljósmynd | Hari Þorbjörg Þórhildur, önnur Eldhússystra, mælir
með sítrónukladdköku í fermingarveisluna.
Fermingar
Hráefni
3 sítrónur
450 g smjör
9 egg
9 dl sykur
2 msk
vanillusykur
7,5 dl hveiti
flórsykur
til skrauts
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG?
HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIÐ DREIFING@FRETTATIMINN.IS
8 | fréttatíminn | HeLGin 26. FeBrúar–28. FeBrúar 2016