Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Síða 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Síða 47
Sumarorlof Hér eru nokkrar upplýsingar varðandi sumarorlof til athugunar fyrir félagsmenn (Tölustafir í svigum eru viðkomandi greinar í kjarasamningi). • Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl, þegar orlofs- rétturinn er áunninn (4.3.1). • Sumarorlofstímabil er frá 15. maí til 30. september (4.4.1) . • Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsmenn, hvenær orlof skuli veitt. Hann skal tilkynna, í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast (4.5.1) . • Starfsmenn eiga rétt á að fá a.m.k. 160 vinnuskyldu- stundir (20 virka daga) í orlofi á sumarorlofstímabilinu (4.5.1). • Orlof sem tekið er að loknu sumarorlofstímabili lengist um 1/4 (4.4.3). • Orlof sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil lengist um 1/4 ef það er að ósk vinnuveitanda (4.4.3). • Ef starfsmaður veikist í orlofi telst veikindatíminn ekki til orlofs, enda séu veikindin sönnuð með vottorði eins fljótt og við verður komið (4.6.1). • Hafi starfsmaður ekki getað tekið orlof vegna veikinda frá þeim tíma er hann átti að taka orlof til loka þess orlofstökuárs, á hann rétt á að fá orlofslaun sín greidd. • Heimilt er að fresta töku orlofs í allt að eitt ár með samþykki yfirmanns. Ef starfsmaður ákveður, með samþykki yfirmanns, að fresta töku orlofs þá þarf hann að ljúka því fyrir lok síðara orlofstökuársins (4.7.1). • Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns þá geymist orlofið til næsta árs, eða þá ber að greiða honum yfin innukaup fyrir starf sitt þann tíma (4.7.2). Ef starfsmaður vinnur í stað þess að taka orlof skal hann fá staðfestingu þess efnis hjá sínum yfirmanni. Það er á ábyrgð yfirmanns að tilkynna launadeild þegar hann hefur samþykkt að starfsmaður muni vinna í orlofi. Orlofsréttur ef unnið er hlutastarf: Ef starfsmaður vinnur hlutastarf allt orlofsárið þá er orlofsréttur hans sama hlutfall af 192, 216 eða 240 vinnuskyldustundum eins og starfið er mikill hluti af fullu starfi. Dæmi: Ef starfsmaður með yfir 18 ára prófaldur vinnur 80% slarf allt orlofsárið þá er orlofsréttur hans 240 x 0,8 = 192 vinnuskyldustundir. Orlofsréttur ef unnið er hluta af orlofsórinu: Ef starfsmaður hefur unnið hluta úr orlofsárinu, er orlofs- rétturinn reiknaður þannig að deilt er með 12 (mánuðir á ári) í orlofsrétt starfsmannsins eins og hann væri fyrir heilt orlofsár og síðan margfaldað með mánaðarfjölda í starfi fram til 30 apríl. Dæmi: Ef starfsmaður með yfir 18 ára prófaldur hefur starf 1. september þá er orlofsréttur hans 240 x 8/12 = 160 vinnuskyldustundir. Vaktavinnufólk í hlutastarfi á að fá lengingu á orlofi þegar helgidagar (aðrir en laugardagar og sunnudagar) koma inn á orlofstímann. Lengingin er jafnhátt hlutfall af vinuustundum á sérstökum frxdögum eins og starfið er mikill hluti af fullu starfi. Dæmi: Ef starfsmaður er í 60% starfi, vinnur þrjár 8 tíma vaktir í viku, og einn sérstakur frídagur fellur á orlofsviku (t.d. frídagur verslunarmanna) þá teljast: 24 - (8*0,6) = 19,2 vinnuskyldustundir í orlofi þá vikuna. Orlofsfé Lógmarksupphæð orlofsfjár/orlofsframlag: Lengd orlofs: Lengd orlofs fer eftir prófaldri eða aldri. Lágmarksorlof eru 16 vinnuskyldustundir fyrir hvem unninn mánuð í fullu starfi. Taflan hér að neðan sýnir áunnið orlof eftir prófaldri og aldri. ^étaldur/aldur: ÁunnlO orlof / orlofsréttur: I f^Prófaldur aldur vinnuskvldustundir: é ári á mánuBi vinnudaaar j á ári (8 klst.) I 1 o árum 192 16 24 ár -> eöa 40ára 216 18 ,^__18 ár -> eöa 50 ára 240 20 Taflan sýnir áunnið orlof eða orlofsrétt miðað við lullt starf. Samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkiunarfræðinga er lágmarksupphæð orlofsfjár, öðm nafni orlofsframlag, eftirfarandi: 9.2% af maímánaðarlaunum orlofstökuársins f 4. þrepi 204. launaflokks. Samkvæmt núgildandi launatöílu er því lágmarksupphæð orlofsfjár 7.558 ki\ Lágmarksupphæð orlofsfjár / orlofsframlag er greidd þeim starfsmönnum sem vinna eingöngu dagvinnu eða vinna mjög litla álags- og yfirvinnu. Þeir sem vinna álags- og yfirvinnu fá orlofsfé af þeirri vinnu sem hér segir: Prófaldur innan við 10 ár 10.17% Við 10 ára prófaldur eða 40 ára aldur 11.59% Við 18 ára prófaldur eða 50 ára aldur 13.04% Orlofsfé er lagt inn á póstgíróreikning eða bankareikninga og greitt út eftir lok orlofsárs. Orlofsprósentan kemur yfirleitt ekki fram á launaseðli svo fylgjast þarf með því að hún sé rétt. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2 . tbl. 72. árg. 1996

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.