Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Page 43
• Heilbrigðismat nætur- og vaktavinnustarfs-
manna þeim að kostnaðarlausu
Næturvinnustarfsmenn og vaktavinnustarfsmenn
sem vinna hluta vinnuskyldu sinnar að næturlagi,
skulu eiga kost á heilbrigðismati sér að kostnaðar-
lausu áður en ráðning fer fram, og síðan reglulega
á a.m.k. þriggja ára fresti. Þessa réttar skal getið
í ráðningarsamningi.
Áhrif viimutímasamningsiiis á
vinnutíma hjúkrunarfræðinga:
Enn er ekki ljóst hver verða endanleg áhrif vinnu-
tímasamningsins á vinnutíma hjúkrunarfræðinga.
M.a. á eftir að koma í ljós hvað kemur út úr þeirri
endurskoðun sem fara á fram á þeim vaktavinnu-
kerfum sem í gangi eru á heilbrigðisstofnunum í dag.
Einnig er óljóst hver verður niðurstaða kjarasamn-
inga milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og
atvinnurekenda hjúkrunarfræðinga um þessi efni en
eins og áður sagði þá er stefnt að niðurstöðu fyrir
30.6.1998 og ljóst er að þessi endurskoðun mun taka
tíma og krefjast mikillar vinnu.
Hjúkrunarfræðingar fá nú greiddar að meðaltali
7 klst. í yfirvinnu í hverri viku samkvæmt upp-
lýsingum frá Kjararannsóknarnefnd opinberra
starfsmanna. I vinnutímasamningnum er kveðið á um
að hámarksfjöldi yfirvinnutíma í hverri viku skuli
vera 11 klst. að meðaltali af virkum vinnutíma yfir
sex mánaða tímabil fyrir starfsmenn í fullu starfi. I
þessu sambandi ber að geta þess að hér eru aðeins
taldir með unnir virkir tímar en ekki endilega gx-eidd-
ir tímar. Af þessum tölum má álykta sem svo að Kk-
legt sé að vinnutímasamningurinn muni ekki hafa
mikil áhrif á fjölda yfirvinnustunda hjá hjúkrunar-
fræðingum því að meðaltali vinni hjúkrunarfræðing-
ar mun minni yfii'vinnu en hámarkið er samkvæmt
vinnutímasamningnum. Þó er það mjög einstaklings-
hundið hvað hver og einn vinnur mikla yfirvinnu og
því geta ákvæði vinnutímasamningsins um 48 klst.
hámarks vinnutíma haft mikil áhrif á vinnu einstakra
hjúkrunai'fræðinga eða innan ákveðinna hópa.
Lokaorð
Það er full þörf á að endurskoða ríkjandi vakta-
vinnukerfi á heilbrigðisstofnunum í dag. A þrískipt-
um vöktum þar sem hver vakt er 8 klst. að lengd líða
oft ekki nema 8 klst. á milli vakta og það þýðir að
stai'fsmenn ná ekki nema 5-6 klst. svefni t.d. á milli
kvöld- og morgunvaktar. Þessar aðstæður eru óvið-
unandi og mai'gir hjúki'unarfræðingar hafa haft sam-
band við félagið vegna þessa og óskað eftir því að
félagið leggi sitt af mörkum til að breyta þessu
fyrirkomulagi. En á hitt verður einnig að líta að það
getur verið mjög erfitt og flókið fyrir félagið að sernja
um breytingar sem þessar vegna þess að hver og einn
starfsmaður hefur ráðið sig með persónubundnunx
ráðningarsamningi inn í ákveðið vinnufyi'ii'komulag
sem væntanlega hentar honum og hans fjölskyldu-
aðstæðum. Skipulag vinnutíma hefur einnig mikil
áhrif á kjör stai'fsmanna og breyttur vinnutími getixr
leitt til breyttra kjara. Það er því ljóst að þó nxikil
þörf sé á því að endurskoða vinnufyrirkomulag hjá
mörgum hjúkrunarfi'æðingum þá verður að fara var-
lega í allar þess háttar bi'eytingai'.
Vigdís Jónsdóttir, hagfrœðingur
V
Herra og dömu
sjúkrasokkar
í öllum litum
REMEDIA
Borgartúni 20 • Sími 562 7511
skor i urvali
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. TBL. 73. ÁRG. 1997
107