Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Page 57
Ljósmóðurstörf
» í heimahúsum
Samningur Félags íslenskra hjakrunarfrædinga viö
Tryggingastofnun ríkisins um heimaþjónustu vió sængurkonur.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gerði fyrir stuttu samkomulag við
Tryggingastofnun ríkisins um heimaþjónustu hjúkrunarfræðinga sem hafa
Ijósmæðraréttindi við sængurkonur vegna fæðinga o" umönnunar. Er
samningurinn samhljóða samningi Ljósmæðrafélags Islands sem gerður
var fyrir nokkrum árum. Fjölmargir hjúkrunarfræðingar, sem hafa
ljósmæðraréttindi og starfa sem Ijósmæður, hafa stéttarfélagsaðild að
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þessir félagsmenn, sem hafa sinnt
heimaþjónustu við sængurkonur skv. samningi Ljósmæðrafélagsins, fóru
fram á það við stjórn Félags íslenskra hjnkrunarfræðinga að félagið beitti
sér fyrir því að sams konar samningur yrði gerður við Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga l’.h. félagsmanna sinna. Meginástæðan var að við-
komandi hjúkrunarfræðingum fannst þeir heittir þrýstingi að skipta um
stéttarfélag þar sem þær notfærðu sér samning LMFÍ um heimaþjónustu
við sængurkonur. Samningurinn var undirritaður 20. febrúar sl. og
höfðu þá farið fram ha*ði óformlegar og formlegar viðræður við
Tryggingastofnun ríkisins um nokkurt skeið, en jafnframt hafði formaður
LMFI verið upplýstur um framvindu málsins á hverjum tíma. Sjónarmið
Tryggingastofnunar varðandi beiðni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
um gerð þessa samnings var m.a. að stofnuninni væri skylt að gera samn-
ing við stéttarfélag um tiltekna þjónustu sem stofnunin semur um sem
hefði félagsmenn sem ujtpfylltu sömu skilyrði um starfsréttindi og
félagsmenn annars félags. Annað fæli í sér mismunun.
Samningur um Ijósmóðurstörf í
heimahúsum frá 20. febrúar 1997
Samningur milli Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og Trygginga-
^ stofnunar ríkisins (TR) um
greiðslu fyrir ljósmóðurstörf
vegna fæðinga og umönnunar
sængurkvenna í heimahúsum.
1. gr.
TR greiðir hjúkrunarfræðingum, sem
hafa réttindi ljósmæðra, fyrir að annast
sængurkonur við fa-ðingar, sem fram
fara utan fæðingarstofnana, þar sent
greitt er fyrir vistunina, shr. ]>ó 4. gr.
2. gr.
Greiðslur samkvæmt samningi þessum
fara eftir gjaldskrá sem grundvallast á
]>ví að hjúkrunarfræðingur starfi sem
verktaki og beri sjálfur allan kostnað
við nauðsynleg ta*ki og annað sem starfi
hans fylgir, þ.m.t. bifreið.
Gjaldskráin skal breytast einu sinni
á ári, í fyrsta sinn 1. janúar 1998.
Skulu 75% af fjárhæðum gjaldliðanna
fylgja breytingum á launavísitölu, en
25% neysluvísitölu. hvort tveggja miðað
við vísitölur næstliðins desemher-
mánaðar. Verði breytingar innan árs
10% eða meiri ber ])ó að leiðrétta gjald-
skrána í samræmi við þær.
3. gr.
Miðað við grunn vísitalna í desentber
1996 er gjaldskrá fyrir heimafæðingar
þannig:
I. Aðstoð við fæðingu, þ.e. eftirlit
fyrir fæðingu, móttaka barns og
aðstoð í framhaldi af því (18,6
klst.) 27.058 kr.
II. Hver vitjun eftir fæðingu (1,8 klst.)
2.618 kr.
Miðað er við tvær vitjanir fyrstu
fjóra dagana og eina vitjun næstu
þrjá eða hámark 11 vitjanir. 28.798
kr.
III. Bráðaútkall til sængurkonu eftir
fæðingu (1,8 klst.) 2.994 kr.
I’urfi hjúkrunarfræðingur að leita
aðstoðar á sjúkrahúsi vegna fæðandi
konu á hann rétt á greiðslu fyrir þann
thna sein hann hefur sinnt konunni.
4. gr.
Heimilt er að nota gjaldskrárliði II og
III í 3. gr. fyrir umönnun sængur-
kvenna, sem fara heini af fæðingardeild
innan 36 klst. eftir fæðingn, enda leggi
hjúkrunarfræðingur fram með reikningi
skv. 6. gr. ljósrit fæðingartilkynningar
og önnur nauðsynleg gögn.
5. gr.
Hjúkrunarfræðingar gefa út sérstaka
skýrslu um hverja fæðingu í heimahúsi.
Skal móðirin fá alrit af lienni til þess að
framvísa hjá viðkomandi umboði TR
með umsókn um dagjieninga vegna
fæðingar í heimahúsi, shr. f-lið 36. gr.
almannatryggingalaga.
6. gr.
Reikningar hjúkrunarfræðings skulu
staðfestir af sængurkonu. Þeir skulu
sendir TR til greiðslu ásanit tilheyrandi
gögnum, sbr. 4. og 5. gr.
7. gr.
Samningur Jiessi gihlir frá 1. mars 1997
og er ujipsegjanlegur með ])riggja
mánaða fyrirvara.
Yfirlýsing vegna ljósmóðurstarfa
frá 26. fehrúar 1997
Samninganefnd Trygginga-
stofnunar ríkisins hefur sam-
Jjykkt að TR greiði fyrir allt að
sjii vitjanir til sængurkonu Jiegar
um fæðingu andvana barns er að
ræða og ákvæði santnings TR og
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga um Ijósmóðurstörf eiga við
að öðru leyti.
T í M A R 1T HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. TBL. 73. ÁRG. 1997
121