Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Qupperneq 47
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
HjiUmmarfræðingar
Okkur er sönn ánægja að bjóða ykkur til starfa á
Landspítalanum. Hér gefst ykkur kostur á að
öðlast reynslu við fjölbreytileg hjúkrunarstörf,
tækifæri til að taka þátt í ýmsum verkefnum á
sviði hjúkrunar og klínískum hjúkrunar-
rannsóknum. Skipulagsform hjúkrunar er með
ýmsum hætti. I boði er starfsaðlögun með
stuðningi reyndra hjúkrunarfræðinga og
vettvangsheimsóknir á deildir. Sá möguleiki er
fyrir hendi að hjúkrunarfræðingar geti flutt sig á
milli deilda eftir ákveðinn tíma, óski þeir þess.
Lausar eru stöður á eftirtöldum deilduin:
Lýtalækningadeild 13-A
Deildin er 10 rúma deild.
Bæklunarskurðdeild 13-G
Deildin er með 22 rúm.
Þvagfæra- og æðaskurðlækningadeild 13-D
Deildin er 25 rúma deild.
Taugalækningadeild 32-A
Deildin er með 22 rúm fyrir sjúklinga
með vefræna taugasjúkdóma.
Oldrunarmatsdeild 11-B
Deildin er 10 rúma deild.
Lmignadeild, Vífilsstaðaspítala
Deildin er 30 rúma og 20 rúm um helgar.
Hjúkrunardeild, VífQsstaðaspítala
Deildin er 19 rúma fyrir langveika lungnasjúklinga.
Húð- og kynsjúkdóniadeild
Deildin er annars vegar 13 rúma, 5 sólarhringa á
Vífilsstöðum og liins vegar göngudeild í Þverholti 18.
Legudeild kvennadeildar 21-A
Deildin er með 15 rúm.
Sérhæfð á sviði almennra og illkynja kvensjúkdóma.
Barnaspítali Hringsins
Lyflækningadeild barna 12-E.
Deildin er 14 rúma almenn lyflækninga-
deild fyrir börn að 16 ára aldri.
Ungbarnadeild 13-E er 12 rúma blönduð handlækninga-
og lyílækningadeild fyrir hörn undir tveggja ára aldri.
Krabbaineins- og lyflækningadeild 11-E
Deildin er með 21 rúm.
Svæfingadeild
Upplýsingar veitir
Hrund Sch. Thorsteinsson hjúkrunarfranikvæinda-
stjóri í síma 560-1000 - kalltæki.
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og f jnr- mólaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18, og í upplýsingum á Landspítala. Öllum umsáknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
HjiLkrun þekking í þína þágu
A sjúkrahúsi Reykjavíkur eru nú lausar stöður á hjúkrun-
arsviði. Við getum boðið upp á margvísleg spennandi at-
vinnutækifæri fyrir metnaðargjarna og glaðlynda hjúkrun-
arfræðinga. Sjúkrahús Reykjavíkur er fjölbreyttur vinnu-
staður Jiar sem hjúkrunarfræðingum gefst tækifæri til að Jijálfa
huga og hönd í hinum fjölmörgu sérgreinum hjúkrunar.
Slysa- OJ^ bráðasviö. Slysa- og bráðasvið sinnir mörgum
spennandi og krefjandi verkefnum. Má þar nefna móttöku
og hjúkrun bráðveikra og slasaðra, símaráðgjöf, forgangs-
röðun, áfallahjálp og hjúkrun þolenda kynferðisofbeldis.
Göngudeild G-3 sinnir eftirliti og ráðgjöf. Nánari upplýsing-
ar veitir sviðsstjóri slysa- og bráðasviðs, Erna Einarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í s. 525-1705 eða deildarstjór-
ar viðkomandi deilda.
Öldrunarsvið. Öldrunarjijónusta sjúkrahússins er að mestu
leyti staðsett á Landakoti en ein legudeild er í Fossvogi.
Starfsemin er mjög fjölbreytt. Unnið er í teymisvinnu að því
að finna bestu meðferðarúrræði fyrir hvern einstakling og
fjölskyldu hans.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri öldrunarsviðs, Anna
Birna Jensdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í s. 525-
1888 eða deildarstjórar viðkomandi deilda.
Lyflækninga- og endurhæfingarsvið. Á lyflækningasviði
eru almennar Iyfjadeildir og hjartadeild með mjög fjölhreytt
verkefni. Þar er einnig barnadeild Jiar sem áhersla er á
heildstæða þjónustu við börn og fjölskyldur Jieirra. Á
Grensásdeild eru sjúklingar með ýmsa taugasjúkdóma og
verkjavandamál ásamt sjúklinguin sem Jiarfnast umfangs-
mikillar endurhæfingar vegna sjúkdóma eða slysa.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri lyflækninga- og endur-
hæfingasviðs, Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í s. 525-1555 eða deildarstjórar viðkomandi dedda.
Skurðlækningasvlð. Á skurðsviði eru legudeildir fyrir að-
gerðasjúklinga, skurðstofur, svæfingadeild, gjörgæsludeild
og dagdeild. Sem dæmi um aðgerðir, sem gerðar eru á
sjúkrahúsinu, eru heila- og taugaaðgerðir, háls-, nef- og
eyrnaaðgerðir, brjósthols- og kviðarholsaðgerðir, bæklunar-
aðgerðir og aðgerðir á Jivagfærum. Tækifæri til Jijálfunar og
Jiekkingaröílunar eru Jiví fjöbnörg og spennandi.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri skurðlækningasviðs,
Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í s. 525-
1305 eða deildarstjórar viðkomandi deilda.
Geðsvlð. A geðsviði er rekin þjónusta við bráðveika og lang-
veika geðfatlaða. Þjónustan er á formi innlagna, dagvistun-
ar, hópvinnu og endurhæfingar. Þar gefst því tækifæri til að
kynna sér mörg mismunandi meðferðarform á flóknum og
krefjandi vandamálum. Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri
geðsviðs, Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í s. 525-1405 eða deildarstjórar viðkomandi deilda.
Mörg tækifæri gefast til símenntunar og þátttöku í rannsókn-
arvinnu undir leiðsögn Auðnu Agústsdóttur, verkefnastjóra
við rannsóknir. Við leggjum áherslu á vinsamlegt og faglegt
starfsumhverfi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín.
Verið velkomin að leita upplýsinga á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra í Fossvogi í síma 525-1221 eða beint hjá viðkom-
andi hjúkrunarframkvæmdastjóra eða deildarstjóra.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 73.ÁRG. 1997
239