Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 54
Bækur og
bæklingar
Losnum við reykinn
Öndum léttar
Sjúkrahúsin í Reykjavík hafa á
undanförnum mánuðum unnið að átaki í
tóbaksvörnum. Starfsmannaþjónusta
Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur gefið út
bækling til upplýsingar fyrir þá sem vilja
hætta að reykja. Rakel Valdimarsdóttir,
forstöðumaður, hefur tekið efnið saman,
hannað bæklinginn og er
ábyrgðarmaður. Bæklingurinn fjallar um
hvernig auðveldast er að hætta
reykingum og ná tökum á vanabindingu
nikótíns. M.a. erfjallað um algengustu
nikótínlyfin, styrkleika þeirra,
notkunarreglur, lengd meðferðar og
hliðarverkanir. Þá er fjallað um
algengustu einkenni ofskömmtunar
nikótínlyfja, hver helstu fráhvarfseinkenni
eru og hvernig takast má á við þau og
hvernig unnt ef að koma í veg fyrir
bakslag. '
Næring og mataræði
Danska hjúkrunarfélagið hefur gefið út
bókina „Næring og mataræði“. í
fréttatilkynningu frá félaginu segir að
næring og mataræði sé mikilvægur hluti
meðferðar sjúklinga og tilgangur
bókarinnar sé að veita hjúkrunarnemum
gagnlegar upplýsingar varðandi þessa
þætti. Þetta er áttunda útgáfa bókarinnar
og í henni er að finna viðbótarkafla um
tengsl hjúkrunar og næringar, mataræði
sem getur komið í veg fyrir sjúkdóma,
mataræði sem hentar sjúklingum með
hina ýmsu sjúkdóma, sjúkrahúsfæði,
sérfæði. Að sögn útgefenda hentar bókin
bæði hjúkrunarnemum og
hjúkrunarfræðingum, í henni eru
fjölmargar myndir og töflur og í lok hvers
kafla er bent á ýtarefni fyrir þá sem
áhuga hafa á að lesa meira um tiltekna
efnisflokka.
Monitoring ambient air
quality for health impact
assessment
Útgefandi WHO 1999.
Laboratory Diagnosis of
Sexually
Transmitted Diseases
Útgefandi WHO 1999
Listin að spegla
meltingarveginn
Holsjárskoðanir og holsjáraðgerðir
Ritinu er ætlað að fræða nema í
heilbrigðisfræðum, hjúkrunarfræðinga og
lækna um holsjárskoðanir, þ.m.t. tilgang,
ábendingar, frábendingar, framkvæmd
og undirbúning fyrir rannsóknir.
Fræðsluefni á íslensku hefur fram að
þessu verið af skornum skammti og er
ritinu ætlað að bæta þar úr. Ásgeir
Theodórs yfirlæknir og Guðjón Leifur
Haraldsson læknanemi hafa tekið efnið
saman. Bæklingurinn er til sölu á
meltingarsjúkdómadeild St.
Jósefsspítala.
Námskeið
Námskeið Endurmenntun-
arstofnunar Háskóla íslands
Þroski á unglingsárum
M.a. verður fjallað um sjálfsmynd
unglinga, vitrænan og siðrænan þroska á
unglingsárum.
Kennari: dr. Sigurlína Davíðsdóttir, lektor,
við HÍ.
Tími: 3.,4. og 6. mars kl. 8:30-12:30
Verð: 9.500 kr.
Áhrif sjónvarps á börn og unglinga
Fjallað um áhrif sjónvarps á íslensk börn
og unglinga og lögð sérstök áhersla á
sambandið milli ofbeldismynda og
andfélagslegrar hegðunar.
Kennari: Guðbjörg Hildur Kolbeins, lektor
í hagnýtri fjölmiðlun.
Tími:17. mars kl. 14:00-18:00, 18. mars
kl. 10:00-14:00, 24.mars kl. 14:00-18:00
og 25. mars kl. 10:00-14:00.
Verð: 8.800 kr.
Fíkniefni: Verkun, einkenni og útlit
Vísbendingar um neyslu unglinga og
hvaða ráðstafana er hægt að grípa til í
slíkum tilvikum. Möguleg úrræði innan
skóla og utan hans.
Umsjón: Aldís Yngvadóttir,
deildarsérfræðingur hjá
Námsgagnastofnun og afbrotafræðingur.
Tími: Akureyri, 4. maí kl. 10:00-17:00.
Verð: 8.800 kr.
Sjálfsvígsfræði
með sérstöku tilliti til sjálfsvíga ungs
fólks.
Sjálfsvígsfræði og sjálfsvígsatferli.
Kennarar: Wilhelm Norðfjörð og Hugo
Þórisson sálfræðingar.
Tími: 5. maí kl. 9:00-16:00 og 6. maí kl.
9:00-13:00.
Verð: 10.800 kr.
Áfengissýki foreldra og áhrif hennar
á heimilislífið
Hvaða áhrif hefur áfengissýki foreldra á
börn? Hver er munurinn á því að vera
áfengissjúk kona og að vera
áfengissjúkur karlmaður? Tengsl
trúarhugmynda við misnotkun áfengis og
bata.
Kennari: dr. Sigurlína Davíðsdóttir, lektor
við HÍ.
Tími: 17.,18. og 20. mars kl. 8:30-12:30.
Verð: 9.500 kr.
Upplýsingatækni-tölvunýting
Markmið námsins er að kynna notkun
upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
Fjallað verður um aðferðafræði,
almennan og sérhæfðan hugbúnað fyrir
heilbrigðisstofnanir og notkun hans í
rekstri og stjórnun. M.a. verður fjallað um
sérhæfðan hugbúnað fyrir
heilbrigðisstofnanir, notkun tölvupósts og
Internets, upplýsingaleit, stefnumótun,
áætlanagerð og framtíðarsýn.
Kennari: Jón Freyr Jóhannsson
forstöðumaður kerfisfræðideildar
Ríkisspítalanna.
Tími: 27. apríl kl. 16:00-20:00, 29. apríl
kl. 9:00-13:00 og 4., 11., og 18. maí
kl. 16:00-20:00.
Verð: 16.200 kr.
54
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000